Fréttablaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 82
11. júní 2011 LAUGARDAGUR46 folk@frettabladid.is 21 ÁR var leikkonan Fran Drescher gift Peter Marc Jacobson. Eftir skilnaðinn viðurkenndi hann fyrir henni að hann væri samkynhneigður. Hjónin fyrrverandi eru enn miklir vinir og er Drescher mikil baráttukona fyrir réttindum sam- kynhneigðra. Jennifer Lopez giftist þjóninum Ojani Noa í byrjun árs 1997 og ent- ist hjónabandið í heilt ár. Eiginmað- urinn hefur þó ekki alveg horfið úr lífi Lopez því hann veitir enn viðtöl um tíma þeirra saman. Í nýlegu sjónvarpsviðtali sakar Noa söngkonuna um að hafa haldið ítrekað framhjá honum og í tilraun til að bjarga hjónabandinu hafi þau leitað ráða hjá göldr- óttri ömmu hans. „Við tókum þátt í fórnarat- höfn þar sem Jenni- fer var böðuð upp úr hænsnablóði til þess að hreinsa burtu syndir hennar. Á eftir var hún böðuð upp úr vígðu vatni og nudduð með hreinsandi jurtum. Á meðan bað amma mín guðina um að bjarga hjónabandi okkar,“ sagði Noa. Dýrafórnir eru algeng- ur hluti af santería, heið- inni trú sem er stunduð í Púertó Ríkó en þaðan koma foreldrar Lopez. Söngkonan hefur þó neit- að að hafa nokkru sinni stundað santería. J-Lo baðaði sig upp úr hænsnablóði FÓRNAÐI HÆNSNUM Jennifer Lopez á sér skuggalega fortíð. Liðsmenn hljómsveitarinn- ar Hnotubrjótanna fögnuðu útgáfu fyrstu plötu sinnar á Jómfrúnni á fimmtudags- kvöldið. Heimir Már Pét- ursson og Þór Eldon eru aðalmennirnir í bandinu. Góður andi var á Jómfrúnni á fimmtudagskvöldið þegar liðs- menn Hnotubrjótanna buðu vinum og vandamönnum í hlustunarpartí. Plata sveitarinnar, Leiðin til Kópa- skers, er nýkomin út og markar hún endurkomu Heimis Más Pét- urssonar fréttamanns á tónlistar- sviðið. Þór Eldon gítarleikari vann plötuna með Heimi og ýmsir kunn- ir aðstoðarmenn spila með þeim félögum. Plötu Hnotubrjót- anna vel fagnað FÖGNUÐU HNOTUBRJÓTUNUM Jón Ólafsson, Alda Karen Rúnarsdóttir og Rúnar Þór Pétursson, bróðir Heimis Más, mættu á Jómfrúna til að heyra afraksturinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Heimir Már Pétursson og Þór Eldon voru ánægðir með veisluna. Hrund Einarsdóttir og Andrea Jónsdóttir útvarpskona. Heimir Már heilsaði upp á Láru Ómars fréttakonu og Hauk Ólavsson eiginmann hennar. Vinnufélagar Heimis Más af Stöð 2, þau Erla, Andri og Eva, studdu sinn mann. Andrea Gylfadóttir og Didda voru hressar. Ási í Gramminu og Árni Glóbó seldu grimmt af nýju plötunni. Bíó ★★★ The Myth of the American Sleepover Leikstjóri: David Robert Mitchell Aðalhlutverk: Claire Sloma, Marlon Morton, Amanda Bauer David Robert Mitchell heitir leikstjóri þessarar lágstemmdu myndar um eina nótt í lífi ung- linga í ónefndu úthverfi í Banda- ríkjunum. Persónurnar eru nokk- uð margar og sögur þeirra fléttast saman eftir því sem líða tekur á nóttina. Claudia fer í náttfata- partí til ókunnugrar stúlku og fer þaðan með glóðarauga. Rob er ástsjúkur furðufugl með fóta- blæti sem ráfar um hverfið í leit að stúlku sem hann sá í stórmark- aði. Scott er sjúklega ástfanginn af tvíburasystrum og getur ekki gert það upp við sig hvora hann girn- ist meira. Og svo er það Maggie, en hún dröslast um á reiðhjóli með nördalegri vinkonu sinni í leit að eldri strákum. Hér höfum við prýðilegt dæmi um mynd sem hefur kostað lítið sem ekkert í framleiðslu en tekst þrátt fyrir það að halda áhorfand- anum við efnið og nokkuð spennt- um. Þetta er fyrsta mynd leikstjór- ans og hún ber þess merki að hér er hæfileikaríkur maður á ferð. Leik- arahópurinn er nokkuð góður og fæstir leikaranna hafa leikið áður í kvikmynd. Claire Sloma er áber- andi efnilegust og líklega er það henni að þakka fremur en höfund- inum að persóna hennar, Maggie, verður hálfgerð aðalpersóna. The Myth of the American Sleepover er nostalgísk mynd um unglinga en höfðar líklega frekar til fullorðinna. Væri ég unglingur í dag og líf mitt á einhvern máta líkt því sem við sjáum í myndinni hefði ég eflaust takmarkaðan áhuga, en sem fullorðinn var myndin óþægi- leg upprifjun á því hversu mikið skemmtilegra það var að vera ung- lingur. Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Nokkuð gott þrátt fyrir galtóma pyngju. Ég hlakka til að fylgjast með höf- undinum. Mynd um unglinga, fyrir fullorðna Forsýningar um helgina á óvæntustu stórmynd sumarsins Forsýnd Laugardag 11. júni kl. 22.50 – Álfabakka Forsýnd Sunnudag 12. júní kl. 20.00 – Forsýnd Sunnudag 12. júní kl. 23.30 – Forsýnd Mánudag 13. júní kl. 20.00 – Forsýnd Mánudag 13. júní kl. 20.00 – Kringlunni Rallycross 3. Umferð Íslandsmótsins 12.j úní
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.