Fréttablaðið - 11.06.2011, Side 89
Við leitum að öflugum einstaklingum sem hafa áhuga á að ná ár
okkar hóp. Um er að ræða fjölbreytt framtíðarstörf þar sem gerðar eru kröf
og fagleg vinnubrögð og samskiptahæfileika.
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi eru einnig
nauðsynlegir eiginleikar.
Komdu með á stær
skemmtistað í heim
Verslanir Nova eru í Kringlunni, Smáralind, Lágmúla,
MM Selfossi og á Glerártorgi Akureyri
Þjónustuver 519 1919 | www.nova.is | m.nova.is | Facebook | Twitter
Stærstiskemmtista›u
r
í heimi!
Sæktu um
fyrir
á starf@nova.i
s
júní21.
Starfsmaður í forritun – ekkert endilega
nördatýpa með þykk gleraugu, geitarskegg og í bol sem
stendur á: I love my mother!
Við leitum að konu eða manni við þróun hugbúnaðarlausna. Hjá
upplýsingatæknisviði Nova eru þróaðar margar skemmtilegar
lausnir í daglegum rekstri. Um er að ræða spennandi og fjölbreytt
vinnuumhverfi sem býður upp á nýjar áskoranir á hverjum degi.
Við nýtum Agile hugmyndafræði og tökum mið af skemmtilegum
Scrum og Kanban vinnuaðferðum í hópavinnu. Þróun lausna fer
fram í Windows og Java umhverfi.
Hæfniskröfur: Starfsmaður þarf að hafa brennandi áhuga á
orritun hugbúnaðarlausna. Erum að nota .NET, LINQ, C#, Java,
pring, Hibernate, HTML, CSS, Javascript, SQL og allt hitt stöffið
g því æskilegt að þekkja þetta eitthvað sem og að kunna að
úggla. Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði skilyrði.
Söluráðgjafi í fyrirtækjaþjónustu
– manneskja sem fyrirtæki elska að fá í heimsókn (það er
ekki djók, söluráðgjafarnir okkar eru vinsælir í alvörunni).
Hlutverk söluráðgjafa er m.a. fólgið í sölu á farsíma- og
fastlínuþjónustu til fyrirtækja, tilboðsgerð og heimsóknum til nýrra
og núverandi viðskiptavina. Við leitum að kraftmiklum einstaklingi
sem hefur ríka þjónustulund og frábæra samskiptahæfileika.
Góðir tekjumöguleikar því laun eru árangurstengd.
Hæfniskröfur: Sölureynsla og þekking á fyrirtækjamarkaði.
Háskólapróf eða önnur sambærileg menntun kostur. Áhugi á
tækninýjungum og reynsla úr starfsumhverfi tæknifyrirtækja
kostur.
Viðgerðafulltrúi – manneskja sem veit að það er
til lausn á öllum málum.
Starfið felur í sér umsjón með viðgerðamálum Nova. Hlutverk
viðgerðafulltrúa er m.a. fólgið í daglegum samskiptum við
viðskiptavini og tryggja þannig að þjónusta Nova við þá sé fyrsta
flokks.
Hæfniskröfur: Við leitum að manneskju með ríka þjónustulund
og þolinmæði. Góð tölvukunnátta og lipurð í mannlegum
samskiptum er nauðsynleg. Umsækjendur þurfa að hafa
stúdentspróf eða sambærilega menntun.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem
fyrst. Áhugasamir sendi inn ferilskrá með
upplýsingum um menntun og fyrri störf á
netfangið starf@nova.is fyrir 21.júní.
Sölu- og þjónusturáðgjafar í þjónustuver
– týpan sem virkar róandi á alla og maður treystir á að
hjálpi manni með hvað sem mann vantar.
Fyrir þann sem elskar að tala í síma, veita frábæra þjónustu og
veit ekkert skemmtilegra
en að selja.
Sölu- og þjónusturáðgjafar í verslun
– fólk sem er meira en fallegt andlit fyrirtækisins, það
er líka hluti af bestu sölumönnum landsins.
Fyrir þann sem elskar að koma fram, veita frábæra þjónustu og
veit ekkert skemmtilegra en að selja.
Hæfniskröfur: Jákvæðni, frumkvæði, kraftur og framúrskarandi
þjónustulund einkennir þann frábæra hóp sem okkur vantar
viðbót við. Allt þetta ásamt góðri tölvukunnáttu og lipurð í
mannlegum samskiptum er nauðsynlegt. Stúdentspróf eða
sambærileg menntun. Góðir tekjumöguleikar því laun eru
árangurstengd. Unnið er á vöktum.
Verslunarstjóri – maður eða kona sem getur unnið
með öllum og hefur gaman af því að skipuleggja og selja
(eins og dökkhærða stelpan í Friends, en samt ekki).
Okkur vantar öflugan einstakling sem ber ábyrgð á daglegum
rekstri í einni af verslunum Nova. Verslunarstjóri sinnir m.a.
starfsmannamálum, fræðslu, þjálfun, vaktaplani og
frammistöðumati. Verslunarstjóri vinnur náið með sölu- og
þjónustustjóra, innkaupastjóra, yfirmanni þjónustuvers og öðrum
verslunarstjórum.
Hæfniskröfur: Við leitum að aðila sem hefur reynslu af
stjórnunarstörfum (verslunarstjórn), er kraftmikill leiðtogi, hefur
mikinn metnað og frumkvæði. Góð tölvukunnátta, rík þjónustulund
og lipurð í mannlegum samskiptum er nauðsynleg. Stúdentspróf
eða sambærileg menntun. Góðir tekjumöguleikar því laun eru
árangurstengd. Unnið er á vöktum.
Reikningagerð – starfsmaðurinn sem elskar Excel.
Leitum eftir talnaglöggum einstaklingi við vinnslu reikninga,
afstemmingar og gæðaeftirlit. Unnið er með fjárhags- og
reikningakerfi.
Hæfniskröfur: Mjög góð þekking og Excel
reynsla skilyrði sem og þekking á Navison
eða öðru fjárhagskerfi. Menntun á sviði
viðskipta nauðsynleg.
Forritaðu framtíðina!
Meistaraflokkur Nova!
Ertu á réttri l
ínu?
Ertu smitandi
skemmtileg manneskja?
Stjórnaðu partíinu!
Enginn vandi, bara lausnir.
Við reiknum með þér!
d
a
g
u
r
&
s
t
e
in
i