Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.07.2011, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 20.07.2011, Qupperneq 4
20. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR4 ÍSRAEL, AP Ísraelski herinn stöðv- aði í gær för franskrar skútu sem stefndi í áttina að Gasaströnd. Ísraelsher segir skipverja ekki hafa sýnt neina mótstöðu. Skipinu var ætlað að vekja athygli á einangrun Gasasvæðis- ins með því að rjúfa þessa ein- angrun. Á síðasta ári stöðvaði Ísraelsher för heils skipaflota sem hafði þetta sama markmið, og létust þá níu manns í átökum við herinn. Ísraelsher var víða gagnrýndur eftir þau átök. - gb Skútu siglt til Gasa: Ísraelar stöðv- uðu för skútu Töldu seli á Vatnsnesi Um 30 manns tóku þátt í árlegri selatalningu Selaseturs Íslands á Hvammstanga. Alls taldi fólkið 1.033 seli á Vatnsnesi og Heggstaðanesi. Í fyrra voru taldir 1.057 selir. Svæðið sem talið var á er 100 kílómetra langt. Því er skipt upp í 27 svæði og fer talningin fram á sama tíma á öllum svæðum. Fóru talningarmenn um gangandi, ríðandi og á bát. HÚNAÞING VESTRA ORKUMÁL Landsvirkjun Power, dótturfélag Landsvirkjunar, og verkfræðistofan Verkís hafa gert samning við orkufyrirtæki í Georgíu um hönnun nýrrar vatns- aflsvirkjunar í Georgíu. Virkjunin verður í ánni Tergi í Kákasusfjöllum, nærri rússnesku landamærunum. Hönnuð verður rennslisvirkjun með stíflu, 1,6 kílómetra löngum veituskurði og sex kílómetra aðrennslisgöng- um, að því er fram kemur á vef Landsvirkjunar. Verkinu á að ljúka árið 2014. - bj Landsvirkjun Power í útrás: Hanna virkjun í Tergi í Georgíu VIÐSKIPTI Velta í dagvöruverslun jókst um 3,3 prósent á föstu verð- lagi í júní borið saman við sama mánuð í fyrra. Á sama tímabili dróst fataverslun saman um 6,5 prósent á föstu verðlagi. Verð á dagvöru hefur hækkað um 3,3 prósent á síðustu tólf mánuðum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í Smásöluvísitölu Rann- sóknarseturs verslunarinnar. Þar kemur einnig fram að velta skó- verslunar jókst um 4,7 prósent í júní og velta húsgagnaversl- unar um 6,2 prósent. Þá jókst sala á raftækjum um 8,5 prósent og sala áfengis um 1,2 prósent í sama mánuði. - mþl Smásöluvísitalan: Samdráttur í fataverslun VERSLUN Samdráttur varð í fataverslun í júní miðað við árið í fyrra. FÉLAGSMÁL Fjórir unglings drengir réðust á starfsmann á meðferð- arheimilinu Háholti í Skagafirði á sunnudag. Því næst læstu þeir starfsmanninn inni, stálu pen- ingum og struku á stolnum bíl. Meiðsl starfsmannsins voru minniháttar, að því er fram kemur á fréttavef Ríkisútvarps- ins. „Við lítum alltaf alvarlegum augum atvik af þessu tagi. Það er alveg ljóst að þegar um er að ræða líkamsárás og ég tala nú ekki um þegar ofan á þetta bæt- ist að þeir komust yfir bifreið, sem er nátt- úrulega dráp- stæki í sjálfu sér í höndum unglinga, er það háalvar- legur hlutur,“ sagði Bragi Guðbrands- son, forstjóri Barnaverndar- stofu um málið í samtali við Vísi. Unglingarnir eru fæddir árin 1993 og 1995. Að sögn varðstjóra lögreglunnar á Akureyri voru þeir handteknir á gistiheimili á Akureyri á mánudag. Þangað voru þeir sóttir af lögreglunni á Sauðárkróki en tveir þeirra voru svo fluttir á Stuðla í Reykjavík. Meðferðar- og skólaheimilið Háholt er einkarekið á grund- velli þjónustusamnings við Barnaverndarstofu. Þar dvelja 15 til 18 ára unglingar sem eiga við alvarlegan hegðunarvanda að stríða. Að sögn Braga verður farið yfir öryggismál í Háholti í kjöl- far málsins. - mmg Unglingar vistaðir á meðferðarheimilinu Háholti í Skagafirði struku: Réðust á starfsmann og læstu inni BRAGI GUÐ- BRANDSSON GENGIÐ 19.07.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 222,3404 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 116,97 117,53 188,43 189,35 165,69 166,61 22,218 22,348 21,091 21,215 17,974 18,080 1,4814 1,4900 186,06 187,16 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is STJÓRNSÝSLA ESA, eftirlitsstofn- un EFTA, hefur sent íslenskum stjórnvöldum tillögur um hvernig Íbúðalánasjóði verði breytt til að laga hann að reglum EES-samn- ingsins um ríkisaðstoð. Stofnun- in hafði áður veitt stjórnvöldum frest til andsvara, en hann virðist nú hafa verið styttur. Guðbjartur Hannesson vel- ferðarráðherra segist ekki skilja hvers vegna þessar tillögur komi nú. Stjórnvöld hafi haft frest fram til nóvem- ber til að leggja fram áætlun um hvernig Íbúða- lánasjóði yrði breytt. Hann seg i r þet t a koma sér mjög á óvart. „Við þurf- um að sjá hvað liggur að baki þessu, hvað hefur breyst.“ Athugasemdir stofnunarinnar byggja á dómi EFTA-dómstólsins frá 2006. Þar segir að íslenskum stjórnvöldum beri að skilgreina betur hlutverk Íbúðalánasjóðs í almannaþjónustu. Tryggja þurfi betur að ríkisaðstoð sú sem sjóð- urinn nýtur sé aðeins nýtt til almannaþjónustu, ekki starf- semi af viðskiptalegum toga. Með öðrum orðum, að skilja þurfi betur á milli samkeppnislegra og félags- legra þátta. „Við þurfum að skoða betur hvernig ríkisábyrgðirnar eru og hvernig sjóðurinn fellur undir eftirlitskerfið í samanburði við banka og annað. Við höfum ýtt þessu á undan okkur á meðan við sjáum hvernig samfélagið endur- reisir sig eftir bankahrunið,“ segir Guðbjartur. Eftirlitsstofnunin leggur til að þak verði sett á verð og stærð þess húsnæðis sem Íbúðalánasjóður lánar til. Með þessu á að koma í veg fyrir að ívilnanir tengdar félagslegri þjónustu komi við- skiptahluta starfseminnar til góða. Guðbjartur segir að málið verði skoðað og á því fundin lausn. Mikil vægt sé að viðhalda félags- legu húsnæðiskerfi. „Mikilvægi sjóðsins hefur aukist ef eitthvað er að undanförnu.“ Málinu er lokið af hálfu ESA samþykki íslensk stjórnvöld tillög- urnar innan sex vikna. Að öðrum kosti kann að fara svo að stofnunin hefji formlega rannsókn á grund- velli aðfinnsla sinna. Guðbjartur segir að krafa um sex vikna frest núna komi sér á óvart. kolbeinn@frettabladid.is Samþykki breyting- ar innan sex vikna Stjórnvöld verða að samþykkja innan sex vikna að setja þak á stærð og verð íbúða sem Íbúðalánasjóður fjármagnar. Tímafresturinn kemur mér á óvart, segir velferðarráðherra. Stjórnvöld höfðu frest til tillagna til fyrsta nóvember. GUÐBJARTUR HANNESSON ÍBÚÐIR Skilja verður á milli samfélagslegra og viðskiptalegra þátta Íbúðalánasjóðs samkvæmt kröfu ESA. Stofnunin hefur stytt þann frest sem stjórnvöld höfðu til tillagna um breytingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SVISS, AP Sjálfbær þróun sem dregur úr fátækt en varðveitir umhverfið verður meginviðfangs- efni næstu fimm ára í starfi Ban Ki-moon hjá Sameinuðu þjóð- unum. Þetta sagði framkvæmdastjór- inn á fundi Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar í gær. Hann mun hefja annað fimm ára kjörtímabil í starfi framkvæmdastjóra í byrj- un næsta árs. Hann sagði sjálf- bæra þróun tengja saman mörg önnur markmið, eins og lofts- lagsmál, heilbrigðismál, málefni kvenna og skort á mat, vatni og orku. - þeb Nýtt kjörtímabil hjá SÞ: Sjálfbær þróun næstu árin FRAMKVÆMDASTJÓRINN Ban Ki-moon hefur sitt annað kjörtímabil þann fyrsta janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 28° 20° 22° 24° 24° 15° 22° 21° 25° 21° 27° 31° 33° 20° 21° 23° 22°Á MORGUN hæg V-læg eða breytileg átt FÖSTUDAGUR Fremur hægur vindur, hvessir SV-til 10 13 14 12 14 11 9 6 11 9 9 3 2 3 2 3 2 4 2 4 1 3 13 12 14 14 15 1415 15 16 13 VINDUR AÐ SNÚAST Í dag verður svalt NA-til en snýst í V-átt á morgun og hlýnar og birtir til. Fallegt veður um allt land á morgun. Á föstudag snýst í S- átt, hvessir og fer að rigna SV-lands. En hægara um og nokkuð bjart NA-til Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.