Fréttablaðið - 20.07.2011, Qupperneq 6
20. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR6
HEILBRIGÐISMÁL Meira en tólf þús-
und manns greindust með mislinga
í Evrópu á fyrstu sex mánuðum
ársins, fleiri en allt árið í fyrra.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnun-
in hefur varað við því að tilfellum
fari fjölgandi, sérstaklega þar
sem meira sé um mannfagnaði á
sumrin. Stofnunin hvetur fólk því
til að láta bólusetja sig fyrir sjúk-
dómnum.
Bólusetning gefur fullkomna
vörn gegn sjúkdómnum, að því
er fram kemur á vef Landlæknis-
embættisins. - þeb
Evrópubúar láti bólusetja sig:
Varað við misl-
ingafaraldri
SKIPULAGSMÁL Þrátt fyrir ítrek-
aðar yfirlýsingar bæjaryfirvalda
í Hafnarfirði um að leggja dag-
sektir á eiganda lóðar í Hellu-
hrauni 2 hefur ekkert orðið af
því.
Fram kemur í fundargerð
byggingarfulltrúa að margar
kvartanir hafi borist vegna lóð-
arinnar. „Eigendum húsnæðis-
ins hefur margoft verið bent á
að fjarlægja gáma á lóðinni sem
ekki er leyfi fyrir,“ segir um
málið sem teygir sig meira en
þrjú ár aftur í tímann. Í tvígang
í fyrra var gefinn fjögurra vikna
frestur til úrbóta og því hótað að
ella yrði dagsektum beitt. „Verði
ekki brugðist við erindinu innan
fjögurra vikna mun skipulags- og
byggingarfulltrúi leggja dagsekt-
ir á lóðarhafa,“ ítrekar bygging-
arfulltrúinn nú enn tilmælin. - gar
Máttlitlar hótanir í Hafnarfirði:
Lóðareigandi
hunsar tilmæli
DANMÖRK Lene Espersen, utan-
ríkisráðherra Danmerkur, kveðst
ekki bera ábyrgð á því að Mar-
grét Þórhildur Danadrottning
veitti Khalifa, konungi Barein,
næstæðstu
orðu Dan-
merkur.
Orðan var
veitt nokkr-
um vikum
áður en
skotið var á
mótmælend-
ur í Barein
sem kröfðust
lýðræðisum-
bóta.
Í kjölfar
gagnrýni á tímasetningu orðu-
veitingarinnar hefur það hins
vegar orðið að samkomulagi
milli hirðarinnar og utanríkis-
ráðuneytisins að orðuveitingar
í tengslum við opinberar heim-
sóknir í framtíðinni verði ræddar
vandlega til þess að koma í veg
fyrir misskilning. - ibs
Orðuveitingar drottningar:
Breyting í kjöl-
far gagnrýni
MARGRÉT ÞÓRHILDUR
DANADROTTNING
SKIPULAGSMÁL Fyrirtækið Global
Fuel ehf., sem sérhæfir sig í sölu
eldsneytis og þjónustu við flug-
vélar og er með aðstöðu í suðvest-
urhluta Reykjavíkurflugvallar,
vill að Reykjavíkurborg selji sér
lóð við Skerjafjörð.
Í erindi til borgarinnar segir
að Global Fuel sé í örum vexti og
þurfi meira húsrými. Lóðin sem
fyrirtækið hefur augastað á er
suður af flugvallargirðingunni og
nær að göngustígnum í Skerja-
firði. Ætlunin er að byggja yfir
skrifstofur og geymslur og vera
enn fremur með veitingarekstur.
Skammt frá, við sama göngustíg,
er veitingahúsið Nauthóll. Lóðar-
umsókn Global Fuel hefur ekki
verið afgreidd. - gar
Eldsneytissali vill flugvallarlóð:
Meiri veitingar
við Skerjafjörð?
Finnst þér að sekta eigi fólk
fyrir að ganga illa um í höfuð-
borginni?
JÁ: 93,1%
NEI: 6,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú lagt fé í söfnun
hjálparsamtaka vegna hungurs-
neyðarinnar í Austur-Afríku?
Segðu þína skoðun á visir.is
UTANRÍKISMÁL Ákveðið var á fundi ríkisstjórn-
arinnar í gær að íslensk stjórnvöld muni
verja 18,5 milljónum króna til neyðaraðstoð-
ar í austanverðri Afríku, að tillögu Össurar
Skarphéðinssonar utanríkisráðherra.
Með þessu vilja stjórnvöld bregðast við því
neyðarástandi sem skapast hefur í Sómalíu,
Keníu, Úganda og Eþíópíu þar sem uppskeru-
brestur hefur orðið vegna þurrka og ófriðar í
Sómalíu.
Alls verða 12,5 milljónir veittar til
íslenskra hjálparsamtaka, en 6 milljónir fara
til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna
vegna hjálparstarfs í Sómalíu, en stofnunin
óskaði eftir framlagi frá Íslandi og öðrum
aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna. - bj
Íslensk stjórnvöld veita 18,5 milljónir til neyðaraðstoðar vegna hungursneyðar í austanverðri Afríku:
Bregðast við neyðarástandi vegna þurrka
Þrjú íslensk hjálparsamtök hafa sett af stað safnanir til að
bregðast við neyðarástandi í austurhluta Afríku.
UNICEF hefur þegar safnað um 11 milljónum króna.
Sigríður Víðis Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF á
Íslandi, segir söfnunina fara vel af stað. Safnað verði
áfram meðan ástandið í austanverðri Afríku batnar ekki.
Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um söfnun Rauða kross
Íslands. Um tvær milljónir hafa safnast í gegnum síma en
óvíst er hversu mikið hefur komið inn á bankareikninginn,
segir Þórir Guðmundsson, sviðsstjóri alþjóðasviðs RKÍ.
Upplýsingar um hversu mikið hefur safnast í söfnun
samtakanna Barnaheilla liggja ekki fyrir.
Yfir 13 milljónir króna safnast
EVRÓPUMÁL „Eftir eitt ár getum
við vonandi verið komin með sam-
komulag um nýja sjávarútvegs-
stefnu,“ sagði Maria Damanaki,
sem fer með sjávarútvegsmál í
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins eftir að hafa hlýtt á
viðbrögð sjávarútvegsráðherra
aðildarríkjanna við tillögum fram-
kvæmdastjórnarinnar.
Tillögunum var almennt vel
tekið en ráðherrarnir gerðu þó
ýmsar athugasemdir, meðal ann-
ars um það hvort raunhæft sé að
tillögurnar verði farnar að skila
árangri strax árið 2015 eða hvort
raunhæft væri að aðlaga mismun-
andi reglur aðildarríkjanna að
þessum breytingum.
Þegar Damanaki lagði tillögurn-
ar fram í framkvæmdastjórn ESB
í síðustu viku sagðist hún gera
sér grein fyrir að nú fari í hönd
erfiðasti tíminn, þegar sannfæra
þurfi ráðamenn í aðildarríkjunum
um ágæti þeirra.
„Það verður mikil vinna að fara
í gegnum þetta, en með góðri sam-
vinnu ætti það að takast,“ sagði
hún í gær. - gb
Framkvæmdastjórn ESB kynnti ráðherrum tillögur að nýrri sjávarútvegsstefnu:
Upphafið að löngum viðræðum
BRETLAND Í yfirheyrslum breskr-
ar þingnefndar yfir eigendum og
fyrrverandi framkvæmdastjóra
vikublaðsins News of the World
héldu þau öll því fram að þau
hefðu ekkert vitað um ólöglegt
athæfi á vegum blaðanna.
Hinn áttræði fjölmiðlakóng-
ur Rupert Murdoch sagði fram-
kvæmdastjóra og ritstjóra blað-
anna hafa séð um rekstur þeirra,
en að hann hafi sjálfur ekki verið
inni í daglegum störfum.
Sonur hans, James Murdoch,
sagðist sömuleiðis ekki hafa
vitað um ólöglegar símhleranir
eða mútugreiðslur til lögreglu
og Rebekah Brooks, fyrrverandi
framkvæmdastjóri blaðsins, vissi
heldur ekkert um hleranir eða
mútugreiðslur.
Öll sögðust þau hins vegar afar
leið vegna málsins og sögðust
sérlega hneyksluð á því að far-
sími þrettán ára týndrar stúlku,
sem síðar fannst látin, hafi verið
hleraður.
Murdoch eldri sagði sökina
liggja hjá fólki sem hann hafi
treyst, „en þeir ásaka kannski
fólk sem þeir treystu“.
Málið hefur haft mikil áhrif á
fjölmiðlaveldi Murdochs. Fyrir-
tæki hans hafa lækkað í verði á
fjármálamörkuðum og rekstri
News of the World var hætt eftir
168 ára samfellda útgáfu. Fram-
kvæmdastjóri og fyrrverandi
ritstjórar blaðsins hafa verið
handteknir, yfirmenn bresku
lögreglunnar hafa sagt af sér og
vaxandi þrýstingur er á David
Cameron forsætisráðherra.
Murdoch eldri sagði reyndar að
andstæðingar hans hefðu komið
af stað mikilli móðursýki vegna
málsins, sem hafi orðið til þess að
hann hafi ákveðið að hætta við að
bjóða í rekstur sjónvarpsstöðvar-
innar BSkyB.
Sean Hoare, blaðamaðurinn
sem upphaflega ljóstraði því upp
að hleranir hafi verið stundaðar á
News of the World, fannst látinn
á heimili sínu í gærmorgun.
Þrátt fyrir háan aldur lét
Rupert Murdoch það lítil áhrif
hafa á sig þótt maður hafi truflað
yfirheyrsluna með því að sletta á
hann raksápu. Wendy Deng, hin
kínverska eiginkona Murdochs
eldri, brá hins vegar snöggt við,
stökk upp og sló til árásarmanns-
ins. Yfirheyrslunni var haldið
áfram stundarfjórðungi síðar,
þegar maðurinn hafði verið hand-
tekinn og Murdoch þurrkað af
sér sápufroðuna.
gudsteinn@frettabladid.is
Feðgarnir segjast ekkert
hafa vitað um hleranirnar
Hvorki Rupert né James Murdoch sögðust hafa vitað um símhleranir á vegum blaða sinna, hvað þá mútu-
greiðslur til lögreglu. Feðgarnir sátu fyrir svörum hjá breskri þingnefnd í gær en gera þurfti stutt hlé á yfir-
heyrslunum eftir að maður úr áheyrendahópnum sletti raksápu á Rupert Murdoch.
RÁÐIST AÐ RUPERT Í miðjum yfirheyrslunum í gær réðst ókunnur maður að Rupert
Murdoch og sletti raksápu á hann. Wendi Deng, eiginkona Ruperts, stökk þá upp úr
stól aftan við eiginmanninn og reyndi að koma honum til varnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FJÖLMIÐLAFÁR Fjölmiðlar hafa fylgt Murdoch-feðgum eftir eins og skugginn síðan símhlerunarhneykslið komst í hámæli.
Murdoch-egðar komu fram fyrir þingnefnd í Whitehall í miðborg Lundúna í gær en sýnt var beint frá yfirheyrslunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Í HÖFUÐSTÖÐVUM ESB Richard Benyon,
sjávarútvegsráðherra Bretlands, í sam-
ræðum við Mariu Damanaki.
NORDICPHOTOS/AFP
HUNGURSNEYÐ Læknir skoðar tveggja mánaða
sómalískt barn sem þjáist af alvarlegri vannær-
ingu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJÖRKASSINN