Fréttablaðið - 20.07.2011, Page 10

Fréttablaðið - 20.07.2011, Page 10
20. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR10 ALLIR SAMAN NÚ TIL GÓÐS HLAUPUM H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 1 1 -0 7 3 3 ... og svo tek ég við og tek næstu tíu... Ég tek fyrstu tíu í boðhlaupinu ... ... gaman að ná heilu maraþoni með félögunum ... SKIPULAGSMÁL Fyrirtækið Kjarna- búð íhugar nú að stefna Bolung- víkurkaupstað eftir að lóð, þar sem fyrirtæki áformaði að reisa tuttugu hús fyrir ferðamenn, var úthlutað fyrir- tækinu Ice - landic Sea Ang- ling í byrjun þessa mánaðar. Haukur Vagns son, for- svarsmaður Kjarnabúða, segir að gert h a f i v e r i ð deiluskipulag á svæðinu þar sem Kjarnabúð hafi óskað eftir lóðum þar fyrir húsin í apríl 2008. Enn frem- ur segir hann að seinagangur bæjaryfirvalda við að vinna deiluskipulagið hafi orðið til þess að 300 milljóna fjármögnun sem búið var að tryggja til verk- efnisins hafi farið forgörðum. Það var þýska fyrirtækið Kingfisher Reisen, sem er einn af stærstu ferðaþjónustuaðilum í Evrópu í sölu stangveiðiferða, sem var í samstarfi við Kjarnabúðir í þessu verkefni. Elías Jónatansson, bæjarstjóri Bolungarvíkurkaupstaðar, segir að ekki hafi verið hægt að úthluta Kjarnabúð lóðinni þar sem fyrir- tækið hafi ekki lagt inn form- lega umsókn. Auk þess sé lóð sem Haukur hafi upphaflega haft mestan áhuga á árið 2008 enn á lausu. „Haukur hefur í þrígang verið hvattur til þess að senda inn með formlegum hætti umsókn um þær lóðir sem hann eða Kjarna- búð hyggst byggja á,“ segir Elías. „Fyrst munnlega á fundi 31. mars 2010, næst með formlegu bréfi 8. apríl 2010 og nú síðast með tölvu- bréfi þann 31. maí síðastliðinn.“ Haukur segir hins vegar að fyr- irtækið hafi sótt um árið 2008 og síðan staðfest við bæjaryfirvöld skriflega að sú umsókn stæði og fyrirtækið hygðist enn nýta lóð- ina. Í framhaldi af því benti Elías Hauki á að hafa samband við Gísla Gunnlaugsson, byggingar- fulltrúa Bolungarvíkurkaupstað- ar, um það hvernig ferlinu skyldi háttað. Haukur segist hafa gert það og hafi verið að tryggja að fjármögnunin væri fyrir hendi áður en hann legði inn þessa umsókn. Haukur segir að hann sé ásamt lögfræðingi sínum að undirbúa málshöfðun. Bæði hafi tafirnar á deiliskipulaginu valdið þeim tjóni og nú verði hann fyrir skakkaföll- um þar sem mjög margir ferða- menn sem komi til frístundaveiða vilji búa í einbýlishúsum en ekki á hótelherbergjum og íbúðum svo fyrirtækið verði af miklum fjölda hafi það ekki yfir einbýlishúsum að ráða. Elías segist ekki kvíða því ef Kjarnabúð stefni bænum. „Við höfum gert allt sem í okkar valdi stóð en við getum ekki gengið svo langt að sækja um fyrir hann ef hann vill það ekki sjálfur,“ segir hann. jse@frettabladid.is Hyggst stefna bænum Fyrirtæki í Bolungarvík hyggst stefna bænum fyrir að úthluta lóð sem það sótti um árið 2008. Bæjarstjórinn segir að fyrirtækið hafi ekki sótt um þessa lóð. ELÍAS JÓNATANSSON HAUKUR VAGNSSON FRÁ HÖFNINNI Í BOLUNGARVÍK Haukur Vagnsson segir að nokkur sveitarfélög hafi boðið fyrirtæki hans að koma og nú sé hann farinn að íhuga að róa úr annarri höfn eftir skipulagsdeiluna við Bolungarvíkurkaupstað. MYND/VILMUNDUR HANSEN DANMÖRK Hvenær er barn orðið svo þungt að heilsa þess skað- ast? Og hvenær er skaðinn svo mikill að taka þarf barnið frá foreldrunum? Danski þjóðar- flokkurinn segir að um þetta verði sveitarfélögin að vera sammála til þess að hægt sé að taka afstöðu til hvort alltof þung börn séu vanrækt. Heilbrigðisstarfsfólk í Danmörku hefur svo miklar áhyggjur af mikilli ofþyngd skólabarna að það hefur greint sveitarfélögunum frá þeim. Starfsmenn á deild fyrir of þung börn á Holbæk-sjúkrahús- inu hafa á undanförnum tveim- ur árum greint sveitarfélögum frá 85 tilfellum. Í fimm tilfell- um fengu fjölskyldurnar aðstoð frá sveitarfélagi sínu. - ibs Danski þjóðarflokkurinn: Samræma þarf fitumörk barna BANDARÍKIN Bandaríska bóka- verslanakeðjan Borders er gjald- þrota og verður lögð niður. Alls verður 399 verslunum lokað og yfir 10 þúsund starfsmenn missa vinnuna. Borders er stærsta bókaversl- anakeðjan í Bandaríkjunum á eftir Barnes & Noble. Hún var stofnuð 1971 og þegar rekstur- inn gekk sem best voru verslan- irnar 1.250 í Bandaríkjunum auk útibúa í Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Singapore og Bretlandi. Reksturinn fór að ganga verr vegna kreppunnar og samkeppni við lestölvur. Gripið var til þess ráðs að selja verslanir en það dugði ekki til. - ibs Lestölvurnar höfðu áhrif: Borders bóka- risinn gjaldþrota LÖGREGLA Lögreglan á Vestfjörð- um er þessa dagana að skoða skróplista þann sem gefinn er út af Skráningarstofu um skoð- un ökutækja. Fyrst í stað verða skráningarnúmer fjarlægð af ótryggðum ökutækjum. Þá geta ökumenn sem ekki hafa fært ökutæki sín til hefðbundinnar skoðunar átt á hættu að skráning- arnúmer ökutækja þeirra verði fjarlægð án frekari aðvörunar. Lögreglan fylgist einnig með lagningu ökutækja og hafa nokkr- ir ökumenn fengið sekt fyrir slík brot. Notkun farsíma og öryggis- belta er líka til skoðunar og mega þeir sem verða staðnir að slíkum brotum eiga von á sekt. - jss Hert eftirlit á Vestfjörðum: Lögregla skoðar skróplistann ÞAKINN BÝFLUGUM Undir þessum býflugnahjúp leynist kínverskur býflugnabóndi, sem er þarna keppa við annan býflugnabónda. Þessi sigraði með 26 kíló af býflugum utan á sér. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.