Fréttablaðið - 20.07.2011, Síða 12

Fréttablaðið - 20.07.2011, Síða 12
20. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR12 Höfum opnað OUTLET í hluta verslunar okkar BYKO Kauptúni Kauptúni Opnunartímar í Kauptúni: Mán.-Fös.: 08:00 - 18:00 Laugardaga: 10:00 - 17:00 Sunnudaga: 11:00 - 17:00 50-80% afsláttur G A R Ð A B Æ SVÍÞJÓÐ Carl B. Hamilton, þing- maður Þjóðarflokksins í Sví- þjóð, leggur til að viðskiptavinir System bolaget, sænsku áfengis- verslunarinnar, geti fengið vör- urnar sendar heim. Bindindissam- tökin IOGT-NTO telja tillöguna ganga óþarflega langt og segja að þetta geti orðið nagli í líkkistu fernufyllibyttnanna. Viðskiptavinir Systembolaget geta nú pantað vörur af sérstök- um lista á netinu og sótt þær síðan í einhverja af áfengisverslununum. Hamilton bendir á að núverandi fyrirkomulag á rekstri System- bolaget sé háð samþykki almenn- ings. Þess vegna ætti markmiðið að vera fullkomin þjónusta fyrir allsgáða, fullorðna viðskiptavini. Eðlilegur afhendingartími ætti að vera tveir til fjórir dagar. Við afhendingu á móttakandi að sýna skilríki og að hann sé orðinn 20 ára. Móttakandinn á jafnframt að vera allsgáður. Bílstjórinn þarf einnig að vera orðinn 20 ára sam- kvæmt tillögu Hamiltons sem situr í stjórn Systembolaget. Hann bendir á að í Noregi sé nú þegar hægt að fá áfengi sent heim. - ibs Sænskur þingmaður vill heimsendingu áfengis en bindindissamtök eru ósátt: Gæti orðið nagli í líkkistu fernufyllibyttna ÁFENGISVERSLUN Systembolaget, eða áfengisverslun sænska ríkisins, hefur einkarétt á að selja vín. EFNAHAGSMÁL Ótti hefur grip- ið um sig beggja vegna Atlants- ála um að ný fjármálakreppa sé í aðsigi. Í Evrópu er skuldafarg að sliga nokkur ríki evrusvæðisins og björgunaraðgerðir hinna ESB- ríkjanna virðast ekki hafa skilað tilætluðum árangri. Í Bandaríkj- unum er vandinn af öðrum toga en þar er komið upp pólitískt þrátefli sem gæti, ef allt fer á versta veg, valdið greiðslufalli bandaríska rík- isins. Nick Clegg, varaforsætisráð- herra Bretlandi, hafði um helgina orð á hættunni sem virðist vera til staðar. Í viðtali við breska ríkis- útvarpið sagðist hann gífurlega áhyggjufullur vegna óvissunnar í Bandaríkjunum og skuldakrepp- unnar í Evrópu og bætti svo við að heimurinn gæti verið á barmi ann- arrar fjármálakreppu. Skuldakreppan í Evrópu hefur verið áberandi í fréttum síðustu misseri. Fyrst komu upp áhyggjur af getu Grikkja til að standa undir opinberum skuldum sínum, síðan Íra, þar á eftir Portúgala, svo aftur Grikkja og loks Ítala. Í hvert sinn hefur ESB brugðist við af of litlum krafti. Það að skuldakreppan hafi smit- ast til Ítalíu veldur mörkuðum þungum áhyggjum. Ítalía er þriðja stærsta hagkerfi evrusvæðisins en opinberar skuldir í ríkinu eru þre- falt meiri en skuldir Grikkja, Íra og Portúgala til samans. Ávöxtunarkrafa á ítölsk ríkis- skuldabréf hefur hækkað með miklum hraða síðustu daga og er nú rétt tæplega 6 prósent. Hækki ávöxtunarkrafan mikið meira gæti skuldabyrði Ítala reynst of mikil og þá myndi greiðslufall blasa við. Það gæti haft skelfilegar afleiðing- ar fyrir heimshagkerfið og jafnvel valdið því að evrusamstarfið liðað- ist í sundur. Það er þó varla líklegt enn sem komið er. Ljóst er að erfiðar ákvarðan- ir bíða leiðtoga ESB-ríkjanna en þeim hefur reynst erfitt að velja hverjir skuli bera kostnað krísunn- ar; kröfuhafar í gegnum afskrift- ir skulda, skuldarar í gegnum umfangsmikinn niðurskurð ríkis- útgjalda eða þá hinar ríkari þjóðir ESB í gegnum tilfærslur til vand- ræðaþjóðanna. Ætli lausnin liggi ekki í einhvers konar blöndu af öllu þrennu. Vandinn í Bandaríkjunum virð- ist vera auðveldari viðureignar því hann er í raun búinn til af stjórn- málamönnum því skuldir banda- ríska ríkisins, þrátt fyrir að vera í hærra lagi, eru ekki svo háar að bráður vandi blasi við. Vandinn er sá að þingmenn repúblikana, sem hafa meirihluta í fulltrúa- deild þingsins, neita að hækka skuldaþak bandaríska ríkisins án þess að ríkisútgjöld verði skorin harkalega niður. Barack Obama forseti og þingmenn demókrata hafa lýst yfir vilja til að koma til móts við kröfur repúblikana en það hefur strandað á bjargfastri kröfu repú- blikana um að engar breytingar megi gera á skattkerfinu, aðrar en þær að lækka skatta. Náist ekki samkomulag munu skuldir bandaríska ríkisins rekast á skuldaþakið 2. ágúst næstkom- andi sem gæti haft afar alvarlegar afleiðingar í för með sér. Því verð- ur þó eiginlega vart trúað að ekki náist samkomulag en skuldaþakið hefur alls 102 sinnum verið hækk- að frá því að lög voru sett um slíkt þak árið 1917. magnusl@frettabladid.is Óvissa í efnahagsmálum beggja vegna Atlantshafs Óvissa um framtíð evrusvæðisins og pólitískt þrátefli í Bandaríkjunum hefur skotið mörkuðum víða um heim skelk í bringu. Fari allt á versta veg gæti ný fjármálakreppa verið í aðsigi. ÁHYGGJUR AF ÍTALÍU Skuldakreppan í Evrópu hefur dreifst til Ítalíu sem er langstærsta hagkerfið sem áhyggjur hafa vaknað af. Leiðtogar ESB-ríkjanna hittast síðar í vikunni til að reyna að leysa vandann. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Rætt var við Má Guðmundsson seðlabanka- stjóra í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í gær. Þar sagði Már óvissuna í Evrópu og Bandaríkj- unum vera mikla þótt svo virtist sem markaðir byggjust heldur við því að Bandaríkin næðu að vinna úr sínum málum. Áhrifin hér af hrær- ingum erlendis yrðu minni en haustið 2008 og gjaldeyrishöftin gætu komið til góða. Már benti á að íslenska ríkið væri vel fjármagnað og nýbúið að taka lán á erlendum mörkuðum. Þá væri athyglisvert að sjá að skuldatryggingaálag íslenska ríkisins hefði haldist tiltölulega lágt þrátt fyrir þessa þróun. Verði þó samdráttur í Bandaríkjunum, Evrópu og eða víðar í heiminum myndi það þó alltaf hafa einhver áhrif á okkur þar sem aðgangur að lánsfé yrði erfiðari og aðstæður allar verri. Áhrifin hér á landi yrðu minni en 2008

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.