Fréttablaðið - 20.07.2011, Page 14

Fréttablaðið - 20.07.2011, Page 14
14 20. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 N eyðin vegna þurrkanna í Austur-Afríku, þeirra mestu í áratugi, er gríðarleg. Milljónir manna, og stór hluti þeirra börn sem eru vannærð fyrir, líða þar hungur sem mun leiða til dauða ef ekkert verður að gert. Ástandið í Sómalíu hefur farið hríðversnandi undanfarnar vikur og talið er að tvöfalt fleiri börn séu þar van- nærð nú en var í mars síðastliðnum. Ekki er búist við rigningu á svæðinu fyrr en í september eða október og fyrr mun ástandið ekki breytast. Það kemur því til kasta alþjóðlegra hjálparsamtaka og þjóða heimsins að koma því fólki til bjargar sem þarna býr. Frétt gærdagsins um að Össur Skarphéðinsson utan- ríkisráðherra hefði lofað fram- lagi íslenska ríkisins upp á að minnsta kosti 18,5 milljónir gegnum íslensk hjálparsamtök og Matvælahjálp Sameinuðu þjóð- anna var góð. Það er mikilvægt að Ísland liggi ekki á liði sínu við að draga úr neyð þeirra sem svelta í Sómalíu og nágrannaríkjum. Almenningi gefst einnig kostur á að leggja sitt af mörkum með því að styðja landssafnanir sem fara nú fram á vegum þriggja samtaka: Barnaheilla - Save the Children á Íslandi, Unicef og Rauða krossins. Með því að hringja í tiltekin símanúmer er upp- hæð sem dregin er frá næsta símareikningi lögð til söfnunar- innar. Almenningur virðist sem betur fer hafa tekið nokkuð vel við sér og talsvert fé hefur safnast þrátt fyrir að svo virðist sem náttúruhamfarir eins og flóð og jarðskjálftar veki iðulega meiri athygli og viðbrögð fjölmiðla og almennings en neyð sem kemur hægt og bítandi eins og Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, benti á í frétt blaðsins í gær. Íslendingar hafa aldrei orðið fyrir hörmungum sem hægt er að líkja við þær sem nú dynja á fátæku fólki í Sómalíu, Keníu og Eþíópíu. Það er því ágætt að hafa í huga að þrátt fyrir það höfum við á stundum verið andlag fjársafnana meðal almenn- ings í öðrum löndum, safnana sem hafa skipt sköpum fyrir þá sem í hlut áttu. Á síðustu áratugum má minnast safnana vegna snjóflóða á Vestfjörðum og Vestmannaeyjagoss. Áhersla hjálparstofnana beinist að því að meðhöndla vannærð börn en sú upphæð sem þarf til að gerbreyta horfum barns sem er vannært er ekki há á okkar mælikvarða. Jafnframt þarf að bólu- setja börnin við sjúkdómum sem farnir eru að láta á sér kræla á þurrkasvæðunum og ógna lífi þeirra og sjá fólki fyrir hreinu og drykkjarhæfu vatni. Það er rík ástæða til að hvetja hvern þann sem aflögufær er til að skoða hvort hann eigi þess ekki kost að leggja fram upphæð sem stuðlar að því að draga úr þeirri miklu neyð sem nú ríkir í Afríku. Lág upphæð í íslensku samhengi getur bjargað lífi barns. Því fé er vel varið. HALLDÓR SKOÐUN Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Af einhverjum einkennilegum ástæð-um dúkkar upp, nú um mitt sumar, umræðan um hvort Reykjavíkurflug- völlur eigi að fara eða vera. Umræða sem er engan veginn tímabær þar sem sýnt er að ákvarðanir sem að þessu lúta þarf ekki að taka fyrr en á næstu 15-20 árum þar sem ekki hvarflar að neinum að skipuleggja byggð eða hefja fram- kvæmdir á flugvallarsvæðinu eins og mál standa nú. Mætti halda að umræðu- efni þjóðarinnar væru næg samt og ekki þyrfti að bæta við ótímabærri umræðu um eitthvað sem ekki þarf að taka afstöðu til fyrr en einhvern tíma í fjarlægri framtíð. Færsla þjóðvegarins frá Blönduósi. Það er mjög áhugaverð tillaga að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um skipu- lagsmál sveitarfélaga. En þá skyldu menn líka vera sjálfum sér samkvæm- ir og átta sig á til hvers það getur leitt. Þannig hlýtur það að fara í þjóðarat- kvæði næst þegar þess verður freistað að flytja þjóðveginn frá Blönduósi. Ég er sannfærður um að fjöldi landsmanna hefur skoðun á því máli og Blönduós- ingar eiga vafalaust víða stuðnings- menn fyrir því að halda vegarstæðinu óbreyttu frá því sem nú er. Einnig þegar kemur næst að því að reisa virkjun, hvort heldur er þegar kemur að því að bora eftir gufu á við- kvæmu landsvæði eða reisa stíflu fyrir nýtt virkjunarlón. Í þeim efnum er þá sjálfgefið að efnt verði til þjóðar- atkvæðis svo skera megi úr um rétt- mæti þeirra framkvæmda. Við þær aðstæður sem eru í samfé- lagi okkar eigum við Íslendingar ekki að efna til óvinafagnaðar og kynda undir umræðu af þessu tagi sem alltaf er hætt við að fari út í öfgar. Yfirvegaða umræðu um skipulagsmál er tímabært að taka þegar forsendur liggja fyrir; upplýsingar um landnýtingu, umferðar- magn og aðra valkosti sem skipta máli þegar slíkar ákvarðanir eru teknar. Þær upplýsingar eiga að vera þær nýj- ustu sem völ er á og það verður þá hvort eð er ekki fyrr en þörfin fyrir að taka ákvörðunina er orðin brýn. Ákvörðunin um framtíð Reykjavíkurflugvallar þarf ekki að eiga sér stað fyrr en að löngum tíma liðnum. Þjóðaratkvæði um skipulagsmál Skipu- lagsmál Bolli Héðinsson hagfræðingur Ný fjölmiðlakönnun Capacent Gallup staðfestir vinsældir Fréttablaðsins. Rúmlega 72% íbúa höfuðborgarsvæðisins á aldrinum 18-49 lesa að meðaltali hvert tölublað Fréttablaðsins - nær þrefalt fleiri en lesa næsta dagblað þar á eftir. Fólkið í landinu les Fréttablaðið Allt sem þú þarft... Prentmiðlakönnun Capacent Gallup. Apríl til júní 2011, meðallestur á tölublað. Skrítin launþegavernd Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar, fór mikinn í fjölmiðlum vegna gagnrýni á tillögur um fjórð- ungshækkun viðmiðunarverðs til sauðfjárbænda. Hann skammaði Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ, fyrir að hvetja neytendur til að láta verðið ráða kaupum sínum. Fjöldi félagsmanna ASÍ vinni í geiranum sem líða muni fyrir slíkan gjörning, segir Aðalsteinn. Það er rétt, en þess má geta að fjöldi félags- manna ASÍ vinnur líka í öðrum geirum kjötframleiðslunnar. Ef sala á lambakjöti dregst saman, eykst þá ekki einfaldlega sala á nautakjöti eða öðru kjöti? Og aðrir félagsmenn ASÍ græða á því. Og hvað með aðrar hækk- anir? Röksemdafærslu Aðalsteins hlýtur að mega heimfæra upp á aðrar hækk- anir. Hækki verð úr öllu valdi og neytendur sniðganga vöruna, þá hljóta einhverjir starfsmenn viðkomandi fyrirtækis að missa vinnuna. Neytendasjónarmið hljóta því eftir þessum rökum að stangast á við laun- þegavernd Aðalsteins. Neytendavernd lögbrjóta Flestir eru á því (alls ekki allir) að einhvers konar lög verði að vera í landinu. Til dæmis umferðarlög. Það má til dæmis ekki leggja bílum hvar sem er, jafnvel þótt þeir séu stórir og geti keyrt yfir steypta kanta. Þetta virðast flestir virða, þó að bílar á gangstéttum séu allt of algeng sjón. Þess vegna er sérkennileg sú krafa íþróttakappleikjahaldara og þeirra sem leikina sækja að geta einfaldlega skilið bílinn sinn eftir hvar sem er, rétt á meðan liðið þeirra spilar og njóta sérréttinda umfram aðra með því. Lítill ungmenna- félagsandi þar á ferð. kolbeinn@frettabladid.is Neyðarástand vegna þurrka í Afríku. Hægt að bjarga lífi barns

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.