Fréttablaðið - 20.07.2011, Side 15

Fréttablaðið - 20.07.2011, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 20. júlí 2011 15 Í umræðunni, ekki síst þeirri sem fram fer á Facebook, vill bregða við blindri foringjatrú á dómstóla landsins. Öllu, smáu sem stóru, skal vísað til dómstóla, þeirra sömu sem í aðra röndina eru sak- aðir um hlutdrægni, vanhæfi og klíkuskap. Það er rétt eins og aðrar stofnanir þjóðfélagsins, þar á meðal fjórða valdið, fjölmiðlarn- ir, beri enga ábyrgð og hafi engu hlutverki að gegna. Að vísu getur verið þægilegt að einblína á þess konar æðri máttarvöld og komast þannig hjá því að líta í eigin barm. Síðasta umræðuefnið sprettur upp í kjölfar andláts ógæfumanns sem var á jaðri samfélagsins alla sína tíð. Nú virðist eiga að vekja hann til nýs og betra lífs með hjálp dómstólanna. Atvinnuhugsuðir og opinberar persónur rifja upp kynni sín af manninum og það sem virð- ist koma þeim á óvart er að hann hafi verið manneskja. Og hafin er undirskriftasöfnun á Facebook um að taka allt málið upp á nýtt. Stöldrum aðeins við. Sumir muna, aðrir ekki, hvílíkt norna- fár ríkti á Íslandi þegar þetta mál reið yfir fyrir 35 árum. Á meðan gjörsamlega óhæft réttarkerfi hélt fjölda manns í gæsluvarðhaldi mánuðum saman góluðu blaðasölu- drengirnir í Austurstræti fyrir- sagnir um sannleika dagsins þar sem einangraðir og varnarlaus- ir einstaklingar voru úthrópaðir morðingjar. Gífuryrðin flugu um sali Alþingis þar sem sumir þótt- ust sjá tengsl milli meintra glæpa og ákveðinna stjórnmálaflokka. Og þjóðin, almenningur, drakk allt þetta í sig og komst í stuð. Kjaftasögurnar spruttu og döfn- uðu – ímyndunaraflið og illkvittnin áttu sér engin takmörk. Á vordög- um var fluttur inn vestur-þýskur lögreglumaður sem átti að leysa hina miklu flækju sem lögreglu- mönnum hafði tekist að skapa á tæpu hálfu ári, allt frá því að Erla og Sævar voru handtekin fyrir póstsvindl rétt fyrir jól. Sök dómskerfisins þarf varla að ræða, hún liggur í augum uppi. Hún blasti við okkur sumum þá og tilraunir hafa verið gerðar til að lýsa henni í heimildarþáttum og bókum. Sumir fengu óverðtryggð- ar skaðabætur en ekki þá frekar en nú bæta peningar þann sársauka og skaða sem verður á lífi fórnar- lamba kerfisins það sem eftir er. Á þessum tíma setti enginn spurningarmerki við hæfi eða aðferðir lögreglunnar. Síðdegis- blöðin Dagblaðið og Vísir voru í brjálaðri samkeppni og beittu fyrir sig æsifyrirsögnum, Alþýðublaðið reyndi að feta í fótspor þeirra en hvergi örlaði á vandaðri og gagn- rýnni blaðamennsku. Í besta falli íþróttafréttamennsku sem átti þó engan veginn við. Allt þetta lapti almenningur í sig og var ekki seinn á sér að dæma menn á víxl. Með ýmsum formerkj- um. Ég man varla eftir nokkrum sem staldraði við og velti fyrir sér hvað þessi gauragangur gengi út á. Að vísu skrifaði Stefán Unnsteins- son bók þar sem hann gerði tilraun til að sýna lítilmagnanum skilning og krafsa í þá glansmynd sem þjóð- in, afkomendur víkinganna í bein- an karllegg, hafði af sjálfri sér. Þar sem aðeins hinir sterku lifa af. Lítið hefur þó breyst hvernig hin íslenska þjóð lítur á þá sem minna mega sín. Skuggaplönturnar sem alast ekki upp við svokallaðar eðli- legar aðstæður með foreldra á lífi og í fullri vinnu, sem búa ekki í mannsæmandi húsnæði eða fá þá alúð og uppörvun sem ættu að vera grundvallarréttindi allra barna. Í því sambandi nægir að minna á börn bandarískra hermanna sem ólust upp við skömm, fyrirlitningu og oftar en ekki fátækt. Það er áleitin spurning hvort upptaka málsins er besta aðferðin til að sýna Sævari virðingu. Hvort ekki væri þörf á að líta í eigin barm og leggja sitt af mörkum til að rjúfa vítahringinn. Leitast við að skapa samfélag manna þar sem allir fá að njóta sín hvernig sem þeir eru feðraðir. Slíkt uppgjör fjallar ekki ein- göngu um meinta sekt eða brot á refsilögum. Lög og réttur í hverju samfélagi eru mikilvæg en það þarf líka að eiga sér annað upp- gjör sem er ekki síður mikilvægt. Þá vilja gleymast allir hinir ein- staklingarnir sem áttu um sárt að binda vegna þessa viðurstyggilega sakamáls. Bæði þeir sem misstu heilsu eftir langa einangrun í klef- unum í Síðumúla en einnig aðstand- endur þeirra. Sem lágu ekki aðeins andvaka vegna ástvina sem voru geymdir bak við lás og slá heldur þurftu líka að mæta kjaftasögum og ónærgætnum athugasemdum á degi hverjum. Dómharkan var óheft. Þjóðin veigraði sér ekki við að taka þá af lífi ungu mennina, en skömmu áður höfðu aðrir menn hangið í sama gálga fyrir sömu sakir. Orðið áfallahjálp var ekki komið inn í íslenska tungu á þessum tíma. Þetta mál mun aldrei hverfa og því er mikilvægt að draga lærdóm af lífsreynslunni. Lexían er meðal annars sú að trúa ekki blint á kerfi og vald sem mennirnir hafa skap- að í nafni réttvísinnar. Einnig að orðum fylgir ábyrgð. Sú umræða sem blossar upp nú minnir óþyrmilega á þann æsing sem átti sér stað fyrir 35 árum. Stóryrði og yfirlýsingagleði. Og eitthvað ósmekklegt við að nýlát- inn maður sé gerður að kjölturakka sjálfskipaðra alþýðudómara. Er hún tilraun til friðþægingar eða vel yfirveguð ósk um betra samfé- lag? Í hverju ætti endurtaka máls- ins að felast? Margir málsaðilar eru horfnir af sjónarsviðinu og gögn málsins hugsanlega mein- gölluð. Ætti slík endurtaka að leysa gátuna miklu eða beina sjónum að meintu harðræði lögreglunnar? Því er brýnt að spyrja sig að því hvaða ávinningur væri af slíkri endur- upptöku. Mennirnir sem sátu inni og fjöl- margir aðstandendur þeirra hafa reynt að möndla eins vel úr lífi sínu og kostur er. Endurupptaka máls- ins myndi óneitanlega hræra uppi í sárri lífsreynslu þeirra. Því er mikilvægt að hugsa sig vel um og hafa hugfast að nærgætni skal höfð í nærveru sálar. Orð hafa ábyrgð Samfélagsmál Erla Sigurðardóttir blaðamaður og þýðandi Efling lýðræðisins Í lýðræðisríkjum er almenn-ingur handhafi valdsins. Þrátt fyrir það hefur valdið þjappast saman á hendur fárra á sviði stjórnmálanna og efna- hagslífsins. Við berum ábyrgð á því og þurfum að taka til hendinni, efla og dýpka lýð- ræðið. Okkur ber í raun skylda til þess. Ýmislegt hefur verið reynt erlendis í þessum efnum með góðum árangri. Eftirfarandi eru þrjú dæmi sem eru fallin til þess að dýpka lýðræðið og Lýðræðisfélagið Alda hefur lagt fyrir Stjórnlagaráð. 1. Að tryggja beina aðkomu allra þjóðfélagshópa að ákvarð- anatöku. Rannsóknir sýna að vald þjappast saman á hend- ur fárra innan stjórnmála- flokka. Þær sýna einnig að t.d. fólk með lágar tekjur og litla menntun kemst síður inn á þing eða í aðrar valdastöð- ur. Aldan leggur til að hluti þingmanna verði valinn með slembivali úr þjóðskrá. Þannig megi tryggja að sjónarmið almennings og allra þjóðfélags- hópa komist að, beint og milli- liðalaust. Slembivalsfulltrúar eru líklegri til þess að endur- spegla viðhorf heildarinnar en t.d. flokkakjörnir sem fylgja hugmyndafræði og baklandi. Slembivalsfulltrúar eru lík- legri til þess að leita umboðs og samstöðu um lausn fyrir heildarhag. Slembivalið tryggir aðkomu þeirra sem hingað til hafa ekki átt upp á pallborð- ið. Við upphaf lýðræðisins í Grikklandi hinu forna voru fulltrúar valdir með slembivali og nýleg dæmi t.d. frá Bresku- Kólumbíu hafa gefið góða raun. 2. Að tryggja lágmarksdreif- ingu valds: að ríkisvaldið sé þrískipt. Þingmenn og ráð- herra þarf að kjósa sérstaklega af almenningi og dómara þurfa aðrir að skipa en þingmenn og ráðherrar eða fulltrúar þeirra. Þingmenn eru nú þegar kjörnir af almenningi en lög- gjafarvaldið er mjög háð fram- kvæmdarvaldinu hérlendis. Víðs vegar er framkvæmd- arvaldið kjörið sérstaklega. Aldan telur rétt að allir ráð- herrar séu kosnir beint af almenningi og að hver sem er geti boðið sig fram til ráð- herraembættis. Til þess að ein- falda kosninguna um hvert ráð- herraembætti fyrir sig er lagt til að fram fari forval á fram- boðum til ráðherraembættis með þeim hætti að slembivals- nefnd almennings velji í opnu ferli fjóra frambjóðendur, tvo karla og tvær konur. Á kjör- seðli myndi fólk velja á milli fjögurra fyrir hvert ráðuneyti fyrir sig. Þannig eru ráðherr- arnir aðskildir frá löggjafar- valdinu. 3. Að ákvarðanir séu teknar í opnum og lýðræðislegum ferlum með aðkomu almenn- ings. Í flokka-fulltrúalýð- ræði eru ákvarðanir teknar í krafti valds þar sem hug- myndafræðilega ólíkir hópar takast á. Stjórnmálin snúast um baráttu um völd. Við sjáum dæmi þessa í þinginu þar sem ekki fara fram samræður um leiðir að markmiðum heldur er reynt að koma höggi á and- stæðinginn. Við þurfum að dreifa valdinu og koma á sam- ræðum. Aldan hefur lagt til að í stjórnarskrá verði heimild til þess að ákvarðanavald sé fært í borgaraþing og lýðræðisleg ákvarðanatökuferli. Í slíkum ferlum eru opnir fundir og full- trúar taka saman hugmyndir og tillögur á mörgum stigum. Í Porto Alegre í Brasilíu er fjár- hagsáætlun borgarinnar unnin í þátttökuferli þar sem allir geta tekið þátt sem vilja og yfir 100.000 koma að vinnunni á hverju ári. Árlega er yfir 20 milljörðum króna varið í upp- byggingu borgarinnar. Þar hafa fjármunir færst frá rík- ari svæðum til fátækari. Til þess að efla og dýpka lýðræðið þurfum við að færa valdið út til fólksins sem tekur ákvarðanir í sameiningu. Lýðræði Kristinn Már Ársælsson stjórnarmaður í Lýðræðisfélaginu Öldu Gífuryrðin flugu um sali Alþingis þar sem sumir þóttust sjá tengsl milli meintra glæpa og ákveðinna stjórnmálaflokka. Opnunartími: Mán-Fös. kl: 10-18 Laug-Sun. kl: 12-16 Fossháls 5-7 l 110 Reykjavík Sími 551 5600 l utilegumadurinn.is Eximo hjólhýsi á einstöku verði! með kaupauka að verðmæti 250.000kr K au p au ki f yl g ir E xi m o 52 0L o g 46 0 hj ó lh ýs um Létt og meðfærileg hús, • auðveld í drætti. Mjög gott verð.• Sterklega smíðuð hús.• Falleg hönnun.• 91 Lítra ísskápur.• Gasmiðstöð m/ Ultra heat • (rafm. hitun) Litaðar rúður• 12 og 220 Volta rafkerfi.• Selerni• Heitt og kalt vatn• E xi m o 3 70 Verð: 2.998.000kr Verð: 2.398.000kr Verð: 2.998.000kr E xi m o 5 20 L E xi m o 5 20 B Verð: 2.798.000kr E xi m o 4 60 Upp selt Kaupauki: Fortjald og sólarraflaða Kaupauki: Fortjald og sólarraflaða

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.