Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.07.2011, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 20.07.2011, Qupperneq 18
20. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR2 ÍSLENSKT KISUNAMMI Fæst í Bónus, Samkaup, 10-11, Fjarðarkaup og Inspired Keflavíkurflugvelli Harðfisktöflur sem kisur elska VINSÆLVARA ÚTSALA HAFIN! Sumartilboð Lín Design L augavegi 1 76 Sími 533 2220 www.lindesign.is 40% af öllumhandklæðum Svartfuglinn, sem er árleg gönguvika í Vesturbyggð, byrjar nú 22. júlí og stendur til 28. júlí. Gönguhátíð er að hefjast á sunnan- verðum Vestfjörðum. Dagsferðir með leiðsögn verða alla daga henn- ar en þátttakendur sjá sjálfir um ferðir að upphafsstað og frá enda- stað. Gengið verður um brúnir Látra- bjargs að Bjargtöngum. Einnig að Sjöundá og Skor, um Siglunes og Skorarhlíðar, Selárdalsheiði og Lækjarheiði. Þá verða surtar- brandsnámurnar undir Stálfjalli skoðaðar. Ferðirnar eru miserfiðar en allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Afsláttur er fyrir hópa og þá sem taka þátt í fleiri en einni gönguferð. Bókanir og nánari upp- lýsingar eru á www.umfar.is Gengið að Sjöundá og Skor Horft af Látrabjargi til Rauðasands. MYNDIR/JÓHANN SVAVARSSON Lækjarhús á Hofi í Öræfum hefur opnað svefnpokagistingu í 18 fermetra heilsárshúsum með eldunaraðstöðu og þráðlausu interneti. Sjá www.lækjarhús.is „Þarna gæti verið tækifæri í fram- tíðinni fyrir þann hóp lækna sem eru erlendis og hafa ekki mögu- leika á að koma heim. Eins og er liggja þó ekki fyrir áætlanir sem geta byggt upp þær væntingar,“ segir Ingimar Einarsson, sem var formaður nefndar um lækningar yfir landamæri. Nefndin sem skip- uð var í byrjun síðasta árs, skil- aði af sér skýrslu á dögunum þar sem metin voru tækifæri á sviði lækningatengdrar ferðaþjónustu á Íslandi í alþjóðlegu samhengi. Í skýrslunni kemur fram að sjálfstæð fyrirtæki á sviði augn- lækninga og tæknifrjóvgunar veiti útlendingum heilbrigðisþjónustu í einhverjum mæli, en vegna tak- markaðs fjölda sérþjálfaðra starfs- manna geti þau ekki aukið starf- semi sína að ráði. „Við setjum spurningarmerki við nýju spítal- ana sem stendur til að starfrækja í Mosfellssveit og á Keflavíkurflug- velli því þar á að fá verktakalækna frá öðrum löndum til að byrja með. Ég veit ekki hversu gott það er fjárhagslega því það þarf að borga þeim samkeppnishæft kaup,“ segir Ingimar og heldur áfram: „Frekar á að byggja á þeirri kunnáttu sem til er í landinu og bjóða íslensk- um læknum möguleika á að koma heim og taka þátt í uppbyggingu alþjóðlegrar heilbrigðisþjónustu á spítölum sem fyrir eru í landinu,“ útskýrir Ingimar sem segir að við uppbyggingu lækninga tengdrar ferðaþjónustu verði að hugsa í ára- tugum. Ingimar segir að nú vanti tals- vert upp á að útfærðar áætlanir um hvernig fjármagna eigi verk- efni í lækningatengdri ferða- þjónustu liggi fyrir, sem og að fá starfsfólk og sjúklinga til lands- ins. „Það þarf að svipta hulunni af þeim markaðskönnunum sem hafa verið gerðar og gera fleiri og ítar- legri kannanir. Við bendum líka á að gott sé að hafa samstarf um þetta. Þá gætu Landspítalinn, sér- fræðingar og áhugamenn um verk- efnin talað sig saman um það.“ Ingimar tekur fram að mark- aðssetning lækningatengdrar ferðaþjónustu á Íslandi sé lang- tímaverkefni. „Landspítalinn hefur verið markaðssettur í Fær- eyjum og Grænlandi en fáir sjúk- lingar hafa þó komið hingað til lands, í heildina innan við hundrað sjúklingar á ári,“ segir Ingimar en nefndin benti á að efla þyrfti kynn- ingar- og markaðsstarf í tengslum við lækningatengda ferðaþjónustu. „Það tekur langan tíma að byggja upp svona þjónustu og nefndin var á því að það þyrfti að byggja á þeirri starfsemi þar sem við stönd- um hvað best, eins og í hjartalækn- ingum og bæklunarlækningum.“ martaf@frettabladid.is Útfærðar áætlanir vantar Takmarkaður fjöldi sérþjálfaðra starfsmanna á sviði augnlækninga og tæknifrjóvgunar heftir þróun lækningatengdrar ferðaþjónustu hér á landi. Tækifæri felast þó í greininni samkvæmt nýrri skýrslu. Á árinu 2010 gekkst 21 erlent par undir meðferð hjá ART Medica. Meðferðir á árinu 2010 voru í heildina 539. Biðlisti styttist 2004-2009 en lengdist aftur 2010-2011. NORDICPHOTOS/GETTY Ingimar Einarsson segir að byggja eigi á þeirri kunnáttu sem til sé í landinu við uppbyggingu lækningatengdrar ferðaþjónustu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.