Fréttablaðið - 20.07.2011, Page 30
20. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR22 22
menning@frettabladid.is
Bækur ★★
Undir tjaldhimni veruleikans
Bjarni Bernharður
Á dansgólfi hverfulleikans
Bjarni Bernharður er ötult skáld, frá honum streyma
ljóðabækur og er fjöldi þeirra nú kominn á annan tug-
inn. Sú fyrsta, Upp og ofan, kom út 1975 og sú nýjasta,
Undir tjaldhimni veruleikans, nú á vordögum.
Bókin Undir tjaldhimni veruleikans er ekki stór í sniðum en höfundi liggur
mikið á hjarta og er fátt óviðkomandi. Hér er ort af ástríðu um lífið, dauðann,
manninn, vonina, gleðina, hamingjuna, sköpunina, þjóðrembuna og svo mætti
áfram telja. Formið er yfirleitt knappt og hnitmiðað og grunntónninn sá sami:
Heimurinn er á hraðferð til helvítis en sköpun, skáldskapur, fegurð og kærleikur
eru öflug mótefni og lífið ekki það versta sem maður hefur, þrátt fyrir allt.
Bjarni Bernharður hefur verið kallaður utankassaskáld og sagður yrkja á ein-
stæðan hátt, án áhrifa frá öðrum höfundum. Í Undir tjaldhimni veruleikans gætir
þó töluverðra áhrifa frá heimsósómaskáldum frá síðustu áratugum síðustu aldar
eins og glöggt má sjá í fyrsta ljóðinu sem nefnist Korn. Þar er meðal annars að
finna þessa líkingu:
Við erum kornin
í brauði auðvaldsins
sem hinir lystugu gæða sér á.
Önnur ljóð eru ljóðrænni og dreymnari eins og Leit, Nýr veruleiki og Sálarstyr,
svo nefnd séu nokkur dæmi. Þar er brugðið upp fallegum myndum og ljóð-
málið er fágað, orðin fá og sýnin sérstök og persónuleg. Þau ljóð sem byggja á
beinni gagnrýni á samfélagið eru mun síðri. Þjóðfélagsádeilan verður nokkuð
klisjukennd og kunnugleg þegar böndin berast að hruninu og orsakavöldum
þess og ljóst að höfundinum fatast í ljóðrænunni vegna reiði. Aðalsmerki allra
ljóðanna eru þó einlægnin og óttaleysi höfundarins við að takast á við dekkri
hliðar jafnt sjálfs sín sem samfélagsins. Bjartsýnin er bölsýninni sterkari og
síðasta ljóðið í bókinni, sem nefnist Í bakspegli, súmmerar vel upp niðurstöðu
bókarinnar í heild. Því lýkur á þessum orðum:
Nú eru klungrin
og hinar hálu brautir
að baki
í húsi skáldsins
er andinn ferskur.
Í dag er fylling tímans!
Friðrika Benónýsdóttir
Niðurstaða: Einlæg ljóð frá óttalausum höfundi, sem fatast þó flugið þegar
hann snýr sér að þjóðfélagsgagnrýni.
Myndlistarmaðurinn Birgir
Andrés son er settur í hóp helstu
póstmódernísku konseptlista-
manna Norðurlanda á síðari hluta
20. aldar í sýningarskrá sýningar
á verkum hans og Danans Pouls
Gernes sem nú stendur yfir í Sean
Kelly galleríinu í New York, einu
helsta galleríi borgarinnar. Sýn-
ingin er nefnd eftir einu verka
Birgis, Bolt Out of the Blue, en
alls eru verk hans á sýningunni
35 talsins. Gagnrýnandi The New
York Times, Karen Rosenberg, fer
fögrum orðum um sýninguna og
segir hina látnu listamenn, Birgi
og Gernes, eiga skilið að vera mun
þekktari vestanhafs en raunin sé.
Mikill áhugi er á verkum Birgis
og síðastliðið haust kom út hjá
Crymogeu rómuð bók Þrastar
Helgasonar um Birgi og
verk hans, en útgefend-
ur ætla ekki að láta þar
staðar numið. „Í fram-
haldi af bók Þrastar um
Birgi erum við að vinna
að heildarskrá verka
hans sem verður einnig
á ensku og hugsuð
fyrir alþjóðlegan
markað,“ segir Kristján B. Jónas-
son, útgefandi í Crymogeu. „Hugs-
unin er sú að setja það í samhengi
að Birgir sé einn af þessum stóru
norður-evrópsku samtímalista-
mönnum og sýningin í New York
undirstrikar það rækilega.“
Bókin verður gefin út á ensku
og mun hinn virti listfræðing-
ur Robert Hobbs skrifa inngang
þar sem hann setur verk Birgis í
stærra alþjóðlegt samhengi. „Bók
Þrastar verður ofin inn í þessa
bók, en verkaskráin verður ítar-
legri og við erum að biðla til fólks
sem á verk eftir Birgi að hafa sam-
band við okkur svo hægt sé að skrá
þau og mynda og öðlast þannig
heildarsýn yfir feril hans,“ segir
Kristján.
„Það hefur komið í ljós
í þessari vinnu að
það er til mikið
af verkum eftir
hann sem við setjum ekki endilega
í samband við hans feril. Eins og
með flesta íslenska samtímalista-
menn hefur aldrei verið unnin
nein grundvallarrannsókn á hans
ferli. Í bók Þrastar er haldið utan
um sýningar og þess háttar, en við
höfum komist að því að það segir
ekki nema hálfa söguna. Birgir
teiknaði mjög mikið af myndum
eftir pöntun og var með sýningar
á verkum sem við tengjum ekki
mikið við hann núna. Þannig að við
erum að vinna að því að fá heildar-
sýn yfir öll verkin.“
Skipuleg ljósmyndun verka
Birgis hefst nú í sumar og Auður
Jörundsdóttir, sem heldur utan
um skrásetningu verkanna, er
langt komin með að teikna
upp heildarmynd, en Krist-
ján vill beina þeim tilmæl-
um til allra sem eiga verk
eftir Birgi að hafa sam-
band við útgáfuna svo
heildarsýnin verði sem
nákvæmust.
fridrikab@frettabladid.is
Einn merkasti konsept-
listamaður Norðurlanda
Samsýning á verkum Birgis Andréssonar og Poul Gernes í Sean Kelly Gallery í New York
hefur vakið athygli vestanhafs. Unnið er að bók fyrir alþjóðlegan markað um feril Birgis
og þýðingu í alþjóðlegu samhengi.
FRÁ SÝNINGUNNI Í SEAN KELLY GALLERY Birgir á skilið að vera mun þekktari að mati gagnrýnanda New York Times.
Birt með leyfi Sean Kelly Gallery, New York og i8 gallerí, Reykjavík.
KRISTJÁN B.
JÓNASSON
BIRGIR
ANDRÉSSON
Sunnudaginn 24. júlí klukkan 14 býðst fjölskyldum, börnum og fullorðnum, að taka þátt í fjölskyldu-
smiðju í Listasafni Íslands sem ber heitið Mamma könguló. Í smiðjunni er unnið út frá dularfullum
myndheimi Louise Bourgeois en smiðjan er haldin í samstarfi við Myndlistaskólann í Reykjavík.
Við förum í sparifötin
og þetta verður ekta
Hollywood-stemning,“
segir Andrea Gylfa-
dóttir sem í kvöld
flytur ýmsar af perl-
um kvikmyndatónlist-
arinnar á Café Rosen-
berg. „Það eru þarna
Bond-lög og Chapl-
in-lag, og líka lag úr
Bagdad Café og meira
að segja lög úr tveim-
ur íslenskum kvik-
myndum, ásamt mörgum öðrum.
Við höldum okkur við lög sem eru
sérsamin fyrir kvikmyndir og end-
urspegla andann úr þeim.“
Hljómsveitin er
skipuð þeim Eðvarð
Lárussyni, Tómasi
Tómassyni, Magnúsi
R. Einarssyni og Jóni
Indriðasyni. „Band-
ið er sett saman sér-
staklega fyrir þetta
„prodjekt“,“ segir
Andrea. „Við héld-
um tónleika á Obladi
oblada um daginn
sem mæltust svo vel
fyrir að við höfum
ákveðið „vegna fjölda áskorana“
að endurtaka leikinn í kvöld.“
Tónleikarnir hefjast kl. 21.
- fsb
Hollywood að hætti Andreu
ANDREA GYLFADÓTTIR Flytur
lög úr þekktum kvikmyndum
á Café Rosenberg í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Allar hellur Steypustöðvarinnar
eru framleiddar samkvæmt
viðurkenndum stöðlum.
4 400 400