Fréttablaðið - 22.08.2011, Page 18
22. ágúst 2011 MÁNUDAGUR18
timamot@frettabladid.is
Erlingur Þorsteinsson, fyrrverandi
yfirlæknir (1911-2007), hefði orðið
hundrað ára 19. ágúst 2011. Erlingur
var sonur hjónanna Guðrúnar Jóns-
dóttur Erlings og Þorsteins Erlings-
sonar skálds. Hann var giftur Þórdísi
Toddu Guðmundsdóttur skurðstofu-
hjúkrunarfræðingi. Þau eignuðust tvö
börn og eitt átti hann frá fyrra sam-
bandi. Barnabörn Erlings eru sex.
Erlingur var aðeins þriggja ára
þegar faðir hans dó. Þorsteinn skírði
piltinn sjálfur og orti til hans skírnar-
sálm.
Fyrsta erindið hljóðar svo:
Nú var sú gersemi að vöggunni rjett
með vonum og minníngum sínum,
sem gott væri að fengi ekki brest eða
blett
í blessuðum lófunum þínum;
sú gjöf á að vera svo vegleg hjá þjer
og vera eins og skartgripur hvar sem
hún fer.
Skírnarsálmurinn endar á þessum ljóð-
línum:
Hann faðir þinn leiðir þig líklega
skamt,
en lánist sá arfur þá stendurðu samt.
Að loknu stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík hóf Erlingur
nám í HÍ í læknadeild haustið 1931.
Erlingur útskrifaðist sem læknir 1937
með fyrstu einkunn. Í framhaldi lærði
hann háls-, nef- og eyrnalækningar í
Ny köbing á eyjunni Mors á Jótlandi.
Þegar heim setti hann upp lækninga-
stofu að Sóleyjargötu 5. Erlingur og
aðstoðarstúlka hans mældu heyrn hjá
sjúklingum, enda eignaðist Erlingur
heyrnarmæli fyrstur lækna hér á landi.
Haustið 1960 fór hann til Banda-
ríkjanna að kynna sér nýjustu heyrn-
arbætandi aðgerðir. Það sem hann
ætlaði fyrst og fremst að læra voru
aðgerðir við eyrnakölkun, otosclerosis,
til að geta framkvæmt slíkar aðgerðir
á Íslandi.
Hann innréttaði lækningastofu
að Miklubraut 50 og hafði þar sér-
staka aðgerðastofu ásamt aðstöðu til
heyrnar mælinga. Árangur aðgerðanna
var framar öllum vonum og var hann
útlistaður í Læknablaðinu 1972.
Á meðan Erlingur var í Bandaríkj-
unum kynnti hann sér starfsemi nokk-
urra heyrnarstöðva. Hann reyndi að
kynna sér eftir mætti mælitæki og
annan búnað sem tíðkaðist við heyrnar-
rannsóknir, einkum barna. Erlingur
leitaði að stað fyrir heyrnar mælingar
og var hann í sambandi við Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur.
Hinn 3. nóvember 1962 var fyrsta
heyrnarstöð á Íslandi formlega opnuð
þar. Næsta áratug hafði starfsemin
margfaldast. 1980 var Heyrnar- og
talmeina stöð Íslands opnuð formlega og
var Erlingur yfirlæknir stöðvarinnar.
Að undirlagi Erlings var fyrsta háls-,
nef- og eyrnadeild á Íslandi tekin form-
lega í notkun á Borgarspítalanum árið
1970.
Forseti Íslands sæmdi Erling riddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu 1.
janúar árið 1976 fyrir læknisstörf.
Hann var formaður Félags háls-, nef
og eyrnalækna um árabil og var hann
kosinn heiðursfélagi félagsins hinn 12.
október 2001 vegna brautryðjenda-
starfs á sviði lækninga og félagsmála.
Aldarminning – Erlingur Þorsteinsson
MOSAIK
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Björn Baldvin
Höskuldsson
byggingarverkfræðingur,
Álfaskeiði 73, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 16.
ágúst. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 23. ágúst kl. 13.00. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið eða
líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Sigrún Arnórsdóttir,
Höskuldur Björnsson, Auður Þóra Árnadóttir,
Arnór Björnsson, Bára Jóhannsdóttir,
Baldvin Björnsson, Helga Rúna Þorleifsdóttir,
Þórdís Ragnhildur Björnsdóttir, Michael Teichmann
og barnabörn.
Systir okkar,
Jóhanna Hrafnfjörð
ljósmóðir,
Ásvallagötu 25, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 23. ágúst kl. 15.00.
Hrefna Hrafnfjörð, Kristín Hrafnfjörð.
Klettaskóli, nýr sérskóli fyrir nem-
endur með þroskahömlun, verður sett-
ur í Perlunni í dag. Klettaskóli varð
til við sameiningu tveggja sérskóla,
Safamýrar skóla og Öskjuhlíðarskóla,
og er til húsa í Suðurhlíð 9, þar sem
áður var húsnæði Öskjuhlíðarskóla.
„Við hlökkum mikið til að hitta allan
hópinn í dag og spennandi að sjá hvern-
ig nemendahópurinn spilar saman,“
segir Erla Gunnarsdóttir, skólastjóri
hins nýja Klettaskóla, en hún var áður
skólastjóri Safamýrarskóla.
„Stemningin er góð hjá starfsfólki,
nemendum og foreldrum, og mín til-
finning að allir ætli að leggja sig fram
um að gera vel og jafnvel enn betur en
áður. Því ríkir mikil tilhlökkun meðal
okkar að skapa Klettaskóla sitt eigið
skólastarf, hefðir og skólabrag,“ segir
Erla.
Í skólann setjast nú 94 nemendur.
Flestir stunduðu áður nám í
Safamýrar- og Öskjuhlíðarskóla en
einnig byrja tíu nýnemar í fyrsta bekk
og níu nemendur úr öðrum grunnskól-
um Reykjavíkur.
„Nemendahópurinn hefur nú meiri
breidd og til að mæta þörfum barna
með mikla og samsetta fötlun hafa
verið gerðar miklar breytingar á hús-
næði skólans. Húsið er komið til ára
sinna en er nú orðið nútímalegra með
nýjum matsal, örvunarstofu og aðsetri
sjúkraþjálfara. Þá hefur kennslustofu-
kjarninn breyst til mikils batnaðar og
aðgengi verið stórlega bætt fyrir börn
í hjólastólum,“ segir Erla, og endurbót-
um verður haldið áfram.
Meginuppistaða í starfsmannahópi
Klettaskóla eru starfsmenn sem störf-
uðu við Safamýrar- og Öskjuhlíðar-
skóla skólaárið 2010-2011. Aðstoðar-
skólastjóri er Guðrún Gunnarsdóttir.
„Í nýjum skóla er börnunum dýr-
mætt að hitta aftur sína gömlu kennara
og stuðningsfulltrúa. Starfsmannahóp-
urinn er afar sterkur faglega og með
mikla reynslu. Samstarf er mikið og í
skólanum baksar enginn við neitt einn
því mjög sterk hefð var fyrir samstarfi
í báðum skólum áður,“ segir Erla.
Hún segir kosti og galla fylgja
stærri nemendahópi í sameinuðum
sérskólum.
„Aðstaðan í Safamýrarskóla var að
sumu leyti betri, því þar var góður
salur og sundlaug, sem skortir hér í
Klettaskóla. Nemendur fá vitaskuld
áfram kennslu í sundi og íþróttum
en við viljum gjarnan að tími barna
sé betur nýttur en að keyra þau út og
suður í sundlaugar bæjarins. Því er
næsta mál á dagskrá að fá sundlaug
á lóðina. Kosturinn er síðan ótvírætt
sá að í Klettaskóla höfum við sam-
einað besta fagfólk landsins á sviði
sérkennslu á einum stað,“ segir Erla,
himin glöð við nýtt upphaf á stórum
degi. thordis@frettabladid.is
KLETTASKÓLI, NÝR SÉRSKÓLI Í REYKJAVÍK: VERÐUR SETTUR Í PERLUNNI Í DAG
Besta fagfólkið á einum stað
FYRSTI SKÓLADAGURINN Erla Gunnarsdóttir, skólastjóri Klettaskóla, þar sem unnið var fram
á síðustu stundu við að ljúka breytingum á húsinu. Hún segist hafa fyllst gleði yfir kappi,
metnaði og krafti starfsfólks síns þegar enn virtist langt í land með óunnin verk innanhúss og
það hafi eflst við hverja raun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þennan dag árið 1911 komust
starfsmenn Louvre-safnsins
í París að því að málverkinu
Monu Lisu eftir Leonardo da
Vinci hafði verið stolið. Louvre-
safninu var lokað í heila viku
í kjölfar þjófnaðarins meðan
rannsókn málsins stóð yfir.
Franska ljóðskáldið Guil-
laume Apollinaire, sem hafði
eitt sinn viljað brenna Louvre-
safnið, var fljótlega grunað um
þjófnaðinn og var handtekið.
Apollinaire benti hins vegar á
vin sinn Pablo Picasso, sem
var einnig yfirheyrður. Báðum
var síðar sleppt.
Málverkið var talið týnt að
eilífu og fannst hinn raun-
verulegi þjófur ekki fyrr en
tveimur árum síðar. Það var
starfs maður Louvre-safnsins,
Vincenzo Peruggia, sem stal
verkinu á opnunartíma safns-
ins og faldi það í kústaskáp.
Eftir lokun gekk hann síðan
með Monu Lisu út úr safninu
falda undir frakkanum sínum.
Peruggia var ítalskur föður-
landsvinur sem taldi að verki
da Vincis skyldi skilað til Ítalíu
og vera á safni í heimalandi
listamannsins. Eftir að hafa
geymt verkið í íbúð sinni í tvö
ár varð Peruggia óþolinmóður
og var að lokum gripinn þegar
hann reyndi að selja það í
listagallerí í Flórens. Monu
Lisu var í kjölfarið skilað til
Louvre-safnsins í París og er
þar enn.
Þjófnum var hampað fyrir
föðurlandsástina á Ítalíu og
sat í örfáa mánuði í fangelsi.
Mörgum þótt verknaðurinn
hins vegar dauðasök.
ÞETTA GERÐIST: 22. ÁGÚST ÁRIÐ 1911
Hvarf Monu Lisu uppgötvað
EIRÍKUR JÓNSSON er 59 ára í dag.
„Hvað er skemmtilegra en að takast á við lífið?”
Yrsa Þöll Gylfadóttir hlaut nýlega 500.000 króna styrk
úr Hrafnkelssjóði til doktorsnáms í almennri bók-
menntafræði við Sorbonne-háskóla í París og Háskóla
Íslands. Þar hyggst hún sérhæfa sig í frönskum 19.
aldar bókmenntum og velta upp nýstárlegu sjónarhorni
á rótgróin fræði. Hún hefur áður lokið BA í bókmennta-
fræði frá Sorbonne og MA í frönskum fræðum frá
Háskóla Íslands.
Hrafnkelssjóður var stofnaður árið 1930 í minn-
ingu Hrafnkels Einarssonar, sem fæddist 13. ágúst
1905. Hrafnkell lauk námi í hagfræði frá Háskólanum
í Vínarborg og var að undirbúa doktorsverkefni sitt um
fiskveiðar á Íslandi og útflutning fiskafurða er hann
lést í nóvember 1927. Foreldrar hans stofnuðu sjóðinn í
minningu hans. Þetta var fimmta úthlutunin úr honum,
sú fyrsta var árið 2005. Skilyrði fyrir styrk úr sjóðnum
er að umsækjandi hafi tekið íslenskt stúdentspróf og sé
á leið í nám erlendis, annað hvort á meistarastigi eða til
doktorsgráðu.
Lilja Dögg Jónsdóttir, formaður sjóðsstjórnar,
afhenti Yrsu Þöll styrkinn.
Nýtt sjónarhorn
á rótgróin fræði
ÚTHLUTUN Á HÓTEL HOLTI Yrsa Þöll er á miðri mynd. Með henni
eru Yngvi Pétursson, Stefán Friðfinnsson, Lilja Dögg Jónsdóttir og
Steinunn Einarsdóttir.
ERLINGUR
ÞORSTEINSSON