Fréttablaðið - 22.08.2011, Page 40
22. ágúst 2011 MÁNUDAGUR20
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hvert
þó í...?
Þá veit maður
loksins hvað
varð um
batteríin úr
bílskúrnum!
Leitaðu betur,
þú gætir fundið
fleira dót sem
hefur horfið!
Loksins!
Loksins
frjáls!
Nú vita allir að ég
hef verið hérna!
Ég elska
að búa
til snáka! Sjáðu!
Froskur!
Sjáðu! Við
eigum smá
pening eftir
þessi mánaða-
mót!
Vúhú!
Út að borða
og í bíó!
Hitt leikherbergiðLeikherbergið
LÁRÉTT
2. sælgæti, 6. kusk, 8. duft, 9. bók-
stafur, 11. leita að, 12. orðtak, 14.
urga, 16. pípa, 17. ennþá, 18. fálm,
20. tveir eins, 21. auma.
LÓÐRÉTT
1. munnvatn, 3. umhverfis, 4. græðgi,
5. hamfletta, 7. ljótur, 10. framkoma,
13. atvikast, 15. sál, 16. þjálfa, 19.
tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. buff, 6. ló, 8. mél, 9. eff,
11. gá, 12. frasi, 14. ískra, 16. æð, 17.
enn, 18. fum, 20. dd, 21. arma.
LÓÐRÉTT: 1. slef, 3. um, 4. fégirnd,
5. flá, 7. ófríður, 10. fas, 13. ske, 15.
anda, 16. æfa, 19. mm.
Nú vita allir
að ég hef
verið hérna!
ENSKI
BOLTINN
STÆRRI
EN ALLT
SKILA LEIFTURSÓKNIR ARSENAL TITLI Í ÁR?
512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR
Mig mætti mögulega kalla Austur-Evr-ópu perra því ég er afskaplega hrifin
af öllu sem tengist því svæði, sama hvort
það er menningin, sagan, fólkið eða matur-
inn. Samt hafði ég aldrei komið til Austur-
Evrópu fyrr en nú í ágúst þegar ég heim-
sótti Pólland.
ÉG VAR afskaplega spennt fyrir ferðinni
og nokkrum vikum fyrir brottför hóf ég að
telja niður dagana, líkt og barn sem bíður
jólanna. Þegar ég lenti loks í Varsjá kom
það mér á óvart hversu falleg og hrein
borgin var. Eins kom mér skemmtilega á
óvart hversu vel allar almenningssam-
göngur gengu fyrir sig. Stæði á tíma-
töflunni að strætó kæmi 11.18 kom
strætó klukkan 11.18, ekki mínútu
fyrr og ekki mínútu seinna.
VINKONA mín leiddi mig svo um
borgina og sýndi mér meðal annars
gamla miðbæinn, dýragarðinn og aðra
almenningsgarða – en þess má geta
að einn elsti almenningsgarður í
Evrópu er einmitt í Varsjá. Við
drukkum hunangsbjór í Pawi-
lony, sem er eins og lítið bak-
hverfi fullt af litlum krám, og
busluðum með tærnar í gos-
brunninum í Park Fontann á
heitum sumardegi á meðan
við hlustuðum á hressi-
lega þjóðlaga tónlist. Við römbuðum inn á
markaðstorg sem seldi aðeins rétti og vörur
frá Póllandi og Litháen og snæddum þar
pierogi, pylsur, grillaðan ost og kartöflu-
kökur og skoluðum því niður með lífrænum
bjór. Við hlýddum á sinfoníutónleika sem
haldnir voru undir berum himni og drukk-
um ískaffi frá Coffee Heaven. Einn daginn
lögðum við líka leið okkar í Hala Mirowska
þar sem við keyptum ferskar matvörur og
ég fékk í fyrsta sinn að borða sólblómafræ
beint úr blóminu sjálfu.
Í STRÆTISVÖGNUNUM varð ég ítrekað
vitni að því er fólk spratt upp úr sætum
sínum til að láta eldri borgurum, ungum
mæðrum eða óléttum konum þau eftir.
Karlmenn buðu okkur stúlkunum alltaf
kurteislega að ganga inn um dyr á undan
á meðan þeir héldu hurðinni og fólk var
almennt hlýlegt, kurteist og hjálpsamt.
ÉG BAR miklar væntingar til ferðarinnar
áður en ég hélt af stað, enda mikill aðdá-
andi Austur-Evrópu eins og áður hefur
komið fram, en bæði land og þjóð fóru fram
úr öllum mínum væntingum. Er ég kvaddi
vinkonu mína og alla hennar yndislegu vini
hét ég því að snúa aftur innan tíðar og ætla
ég mér svo sannarlega að standa við það
loforð. Svo hugsaði ég sæl með mér; Mikið
erum við Íslendingar heppnir að deila landi
okkar með svona frábæru fólki.
Ævintýralandið Pólland
BAKÞANKAR
Söru
McMahon