Fréttablaðið - 22.08.2011, Síða 48
22. ágúst 2011 MÁNUDAGUR28
sport@frettabladid.is
Guðjónsson, þjálfari FH, eftir
leikinn í gær.
„Þeir voru virkilega skipu-
lagðir í fyrri hálfleiknum og við
áttum erfitt með að brjóta þá á
bak aftur. Í seinni hálfleik spiluð-
um við betur, boltinn gekk hraðar
og við unnum fínan sigur.“
FH-ingar hafa leikið vel í
sumar þegar liðið missir mann af
velli og náð í mörg stig tíu gegn
ellefu.
„Við virðumst detta almenni-
lega í gang þegar við missum
mann af velli en ég vil samt
meina að FH-liðið sé einnig betra
en Þór ellefu gegn ellefu.“ - sáp
Hásteinsvöllur, áhorf.: 784
ÍBV Keflavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 15–7 (11–4)
Varin skot Albert 3 – Ómar 9
Horn 9–2
Aukaspyrnur fengnar 11–14
Rangstöður 4–4
KEFLAVÍK 4–4–2
Ómar Jóhannsson 6
Guðjón Árni Anton. 5
Adam Larsson 6
Ásgrímur Rúnarsson 5
Viktor Smári Hafstein. 6
Einar Orri Einarsson 5
Andri Steinn Birgiss. 6
Arnór Ingvi Traustas. 6
(45., Sigurbergur El. 7)
Magnús Þórir Matth. 7
(83, Magnús Þór -)
Hilmar Geir Eiðsson 5
(83., Bojan Ljubicic -)
Guðmundur Steinars. 6
*Maður leiksins
ÍBV 4–3–3
Albert Sævarsson 6
Arnór Eyvar Ólafsson 4
(83., Kjartan Guðjóns. -)
Rasmus Christiansen 6
Brynjar Gauti Guðj. 6
(65., Aaron Spear 5)
Matt Garner 7
Finnur Ólafsson 7
Tonny Mawejje 5
(65., Guðm. Þórarins. 6)
*Þórarinn Ingi V. 7
Tryggvi Guðmundss. 7
Ian Jeffs 6
Andri Ólafsson 6
1-0 Brynjar Gauti Guðjónsson (38.)
1-1 Magnús Þórir Matthíasson (50.)
2-1 Þórarinn Ingi Valdimarsson (86.)
2-1
Kristinn Jakobsson (6)
GR-INGARNIR Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Arnór Ingi Finnbjörnsson urðu í gær Íslandsmeistarar í holukeppni
en mótið fór fram á Strandarvelli á Hellu. Arnór Ingi vann heimamanninn Andra Má Óskarsson úr GHR í úrslitaleik eftir
bráðabana en Ólafía Þórunn, sem varð líka Íslandsmeistari í höggleik á dögunum, vann Signýju Arnórsdóttur úr Keili í
úrslitaleik. Andri Þór Björnsson úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL urðu í þriðja sæti.
Ég vil samt meina
að FH-liðið sé einnig
betra en Þór ellefu gegn
ellefu.
HEIMIR GUÐJÓNSSON
ÞJÁLFARI FH
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson
verður ekki eini Íslendingurinn
í spænsku úrvalsdeildinni í
körfubolta í vetur því hinn nítján
ára gamli Haukur Helgi Pálsson
er búinn að semja við Assignia
Manresa í Katalóníu. Jón Arnór
samdi á dögunum við CAI
Zaragoza.
Haukur lék með Maryland-
háskólanum í Bandaríkjunum
síðasta vetur en hann vakti mikla
athygli í EM 20 ára landsliða í
sumar, þar sem hann var með 22,7
stig og 10 fráköst að meðaltali.
„Haukur er ungur leikmaður
sem getur hjálpað liðinu á mörgum
stöðum. Hann getur reynst okkur
vel því hann er fjölhæfur og getur
spilað fleiri en eina stöðu,“ sagði
Ponsarnau, þjálfari Manresa, á
heimasíðu félagsins. - óój
Haukur Helgi Pálsson samdi við Manresa á Spáni:
Hjálpar liðinu á
mörgum stöðum
HAUKUR HELGI PÁLSSON NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI FH bar sigur úr býtum
gegn Þór, 2-0, á Kaplakrikavelli
í Pepsi-deild karla í knattspyrnu
í gær, en FH-ingar voru einum
færri síðustu 40 mínútur leiks-
ins. Atli Viðar Björnsson gerði
bæði mörk heimamanna undir
lokin, en FH-ingar höfðu öll völd
á vellinum í síðari hálfleiknum.
„Þetta var frábær 2-0 sigur
og það er enn skemmtilegra
þegar ég næ að gera bæði mörk-
in,“ sagði Atli Viðar Björnsson,
marka skorari FH, eftir leikinn.
„Fyrri hálfleikurinn var erfið-
ur og hlutirnir gengu ekki alveg
upp hjá okkur. Þegar við misst-
um mann af velli tóku menn af
skarið, gáfu meira af sér og við
tókum öll völd á vellinum. Við
eigum ekki að þurfa að missa
mann af velli svo við förum að
spila alvöru bolta en það hefur
verið þannig að undanförnu.
Sem betur fer erum við að klára
leikina,“ sagði Atli Viðar, en þetta
var fimmti sigur FH-inga í röð.
„Þetta er virkilega svekkj-
andi. Við héldum út í 83 mínút-
ur en síðan fór leikurinn,“ sagði
Hreinn Hringsson, aðstoðarþjálf-
ari Þórs, en hann stýrði liðinu í
gær þar sem Páll Viðar Gíslason
var staddur erlendis.
„Það er ekkert launungar-
mál að miðað við þau afföll sem
við lentum í fyrir þennan leik
komum við hingað til að ná í stig.
Við eigum heldur betur að vera
farnir að þekkja stöðuna ell-
efu á móti tíu en það gekk ekki í
dag. Við verðum að skrifa fyrra
markið á slæm varnarmistök hjá
okkur því menn töluðu ekki nægi-
lega vel saman.“
„Við vorum ekki góðir í fyrri
hálfleik, en þetta fór að ganga
betur í þeim síðari,“ sagði Heimir
FH-ingar sáu rautt og fóru í gang
Atli Viðar Björnsson skoraði tvö mörk á síðustu sjö mínútunum þegar FH-ingar unnu enn einn sigurinn
eftir að hafa misst mann af velli með rautt spjald. FH-ingar hafa nú unnið fimm leiki í röð í deildinni.
TVÖ MÖRK Í LOKIN Guðmundur Sævars-
son fagnar hér Atla Viðari Björnssyni í
gær.
FH 2-0 ÞÓR
1-0 Atli Viðar Björnsson (83.)
2-0 Atli Viðar Björnsson (86.)
Kaplakrikavöllur, áhorf.: 1.106
Dómari: Þorvaldur Árnason (6)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–4 (8–3)
Varin skot Gunnleifur 2 – Rajkovic 6
Horn 11–2
Aukaspyrnur fengnar 9–10
Rangstöður 2–0
FH 4–3–3 Zankarlo Simunic 6 – Gunnleifur Gunn-
leifsson 6 - Guðmundur Sævarsson 6, Tommy Nielsen
6, Freyr Bjarnason 5, Viktor Örn Guðmundsson 5 - Björn
Daníel Sverrisson 5, Hólmar Örn Rúnarsson 6, Emil Páls-
son 5 (75., Ásgeir Gunnar Ásgeirsson -) - *Atli Viðar
Björnsson 8, Atli Guðnason 6, Matthías Vilhjálmsson 8
Þór 4–3–3 Srdjan Rajkovic 7 - Gísli Páll Helgason
4, Þorsteinn Ingason 6, Atli Jens Albertsson 5, Ingi
Freyr Hilmarsson 5 - Clark Keltie 3, Baldvin Ólafsson
5, Ármann Pétur Ævarsson 5 (74., Pétur Heiðar
Kristjánsson -) - Sveinn Elías Jónsson 6, Sigurður Marinó
Kristjánsson 6, David Disztl 4 (61., Ragnar Hauksson 5)
FÓTBOLTI Þórarinn Ingi Valdimars-
son var hetja Eyjamanna í 2-1 sigri
á Keflavík á Hásteinsvellinum í
gær. Þórarinn skoraði sigurmark-
ið fjórum mínútum fyrir leikslok
og Eyjamenn minnkuðu þar með
forskot KR á toppnum í eitt stig.
Hinn síungi Tryggvi Guðmunds-
son átti glæsilega fyrirgjöf á Þór-
arin í sigurmarkinu og Þórarinn
gerði allt rétt þegar hann stang-
aði boltann í netið. „Það var nú
bara þannig að gamli maðurinn
setti boltann bara beint á pönnuna
á mér og ég þurfti ekki að gera
mikið til að skora,“ sagði Þórarinn,
en þetta var aðeins annað markið
á ferlinum sem hann skorar með
skalla.
Heimir Hallgrímsson, þjálf-
ari ÍBV, var mikið að færa menn
til í fyrri hálfleik. Brynjar Gauti
Guðjónsson byrjaði í miðverði
með Rasmus Christiansen en var
svo færður á miðjuna um miðjan
fyrri hálfleik. Andri Ólafsson var
á sama tíma færður í miðvörðinn
úr framherjastöðunni.
„Við byrjuðum í 4–3–3 og ætl-
uðum að setja á þá strax en það
var ekki að ganga því við náðum
engum tökum á leiknum. Þegar
við breyttum í 4–5–1 náðum við
spilinu okkar í gang. Hann er
klókur kallinn og sá strax að þetta
gekk ekki hjá okkur og breytti
uppstillingunni,“ sagði Þórarinn.
„Ég viðurkenni það að hafa
hugsanlega byrjað með vitlausa
uppstillingu eða að þeir hafi í raun
verið tilbúnari í leikinn en við. Ég
reyndi að færa menn til inni á
vellinum til þess að mæta þeim
betur. Það gekk vel seinni
hlutann af seinni hálfleik.
Annars eru Keflvíkingarn-
ir bara með flott lið, góða
blöndu af frískum strákum
og reyndari leik-
mönnum, og þeir
voru mjög góðir
í dag,” sagði
Heimir eftir
leikinn.
Brynjar
Gauti Guð-
jónsson kom
ÍBV yfir í
fyrri hálf-
leiknum
en Magn-
ús Þórir
Matth-
íasson
jafnaði
leikinn
í upphafi
seinni hálfleiks.
Næsti leikur Eyja-
manna er á móti KR-ing-
um og nú munar aðeins einu
stigi á liðinum en KR-ingar
eiga þó tvo leiki til góða. „Ef
menn ætla að vera í þessu
langar mann að spila svona
leiki. Þetta er algjör lykil-
leikur á þessu sumri, menn
geta ekki verið neitt hræddir
og við förum bara í þennann
leik til að vinna. Við ætlum
að gera allt svo að bikarinn
fari ekki í Vesturbæinn, það
er alveg á hreinu,“ sagði Þór-
arinn Ingi.
Willum Þór Þórsson, þjálf-
ari Keflavíkur, var
nokkuð sáttur við
leik sinna manna
þrátt fyrir tap.
Keflvíkingar
stjórnuðu
leiknum
nær allan
fyrri
hálfleik-
inn og
byrjuðu
síðari hálf-
leikinn einn-
ig betur, en
það dugði þeim
ekki til að taka
stig á Hásteins-
vellinum.
„Það er sárt að
hafa kastað frá
sér stigi eða jafn-
vel stigum hér í
dag. Við stjórnuð-
um nær öllum fyrri
hálfleik og leikur-
inn var lengi vel í
jafnvægi í stöðunni
1–1. Svo gleymdum við
okkur í dekkun þarna í
eitt skipti og þeir nýttu sér
það,“ sagði Willum Þór.
- vsh
Breytingar Heimis Hallgrímssonar, þjálfara ÍBV, báru árangur í 2-1 sigri á Keflavík:
Þórarinn tryggði ÍBV dýrmæt stig
ÞÓRARINN INGI VALDIMARSSON
Skorað sigurmarkið með skalla
fjórum mínútum fyrir leikslok.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
ENN EITT RAUÐA SPJALDIÐ Björn Daníel Sverrisson fær hér rauða spjaldið í gær þegar
35 mínútur voru eftir af leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
STAÐAN Í DEILDINNI
KR 13 10 3 0 30-10 33
------------------------------------------------------
ÍBV 15 10 2 3 24-13 32
FH 16 9 4 3 33-19 31
Valur 15 8 4 3 23-12 28
Stjarnan 15 6 5 4 30-24 23
Fylkir 15 5 4 6 22-27 19
Keflavík 15 5 2 8 19-22 17
Þór 16 5 2 9 22-32 17
Breiðablik 15 4 4 7 22-28 16
Grindavík 15 4 4 7 19-29 16
------------------------------------------------------
Fram 15 1 5 9 9-22 8
Víkingur R. 15 1 5 9 13-28 8
MARKAHÆSTIR
Kristinn Steindórsson, Breiðabliki 10
Garðar Jóhannsson, Stjörnunni 10
Kjartan Henry Finnbogason, KR 9
Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni 9
Atli Viðar Björnsson, FH 8
Matthías Vilhjálmsson, FH 8
PEPSI-DEILDIN