Fréttablaðið - 23.08.2011, Síða 4

Fréttablaðið - 23.08.2011, Síða 4
23. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR4 LÍBÍA Uppreisnarliðið í Líbíu hafði í gærkvöld náð höfuðborginni Trí- polí að mestu á vald sitt en barðist áfram við dygga stuðnings menn Múammars Gaddafí á ýmsum stöðum í borginni. Hvergi sást til Gaddafís sjálfs en augljóst mátti vera að valdatíð hans væri á enda. Uppreisnarliðið handtók í gær tvo af sonum Gaddafís, Saif al- Islam og Mohammed. Óstaðfestar fregnir bárust af því að þriðji son- urinn, Al-Saadi, hefði annað hvort verið handtekinn líka eða felldur. Innrásin í Trípolí hefur geng- ið mjög hratt fyrir sig. Hún hófst á laugardaginn með sprengju- árásum og skotbardögum í úthverfum borgarinnar, hélt áfram af fullum krafti á sunnu- dag og sigur var nánast í höfn í gær, aðeins þremur dögum eftir að átökin um höfuðborgina hófust. Í gær náðu uppreisnarmenn- irnir meðal annars ríkisútvarpi landsins á sitt vald og voru útsendingar þegar í stað stöðv- aðar. Þar með missti stjórn Gaddafís mikilvægasta vettvang sinn til að hvetja stuðningsmenn sína til að verjast uppreisnar- mönnum. Íbúar í borginni virtust almennt fagna tímamótunum en óttuðust jafnframt að erfið átök gætu haldið áfram. „Við trúum því ekki að þetta sé að gerast í raun og veru,“ sagði þrítugur maður, Ashraf Haliti, sem vinn- ur á kaffihúsi nálægt Græna torg- inu, sem uppreisnarmenn nefna nú á ný Píslarvottatorgið eins og það hét fyrir valdatíð Gaddafís. Uppreisnarmenn stofnuðu strax í febrúar, þegar átökin höfðu aðeins staðið yfir í fáeinar vikur, bráðabirgðastjórn í borg- inni Bengasí í austurhluta lands- ins. Æ fleiri ríki hafa nú viður- kennt þessa bráðabirgðastjórn sem lögmæta ríkisstjórn lands- ins. Fátt eitt er vitað um það hvernig hún hyggst stjórna land- inu eða hvort hún nýtur stuðnings landsmanna þegar á reynir. gudsteinn@frettabladid.is Valdatími Gaddafís er á enda runninn Uppreisnarmenn og íbúar í Trípolí fögnuðu ákaft falli Múammars Gaddafí í gær en bjuggu sig jafnframt undir hörð lokaátök við liðsmenn hans. Gaddafí sjálfur var ófundinn í gærkvöld. Mikil óvissa ríkir um framtíð landsins. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is INNRÁSIN GEKK HRATT FYRIR SIG Uppreisnarmenn hófu innrás sína í Trípolí á laugardag og virtust hafa náð borginni að mestu á sitt vald í gær. NORDICPHOTOS/AFP 17. febrúar Opinber byltingardagur. Mótmæli hófust tveimur dögum fyrr í Bengasí og víðar. Skotið var á þúsundir mótmælenda og minnst tólf létust. 20. febrúar Uppreisnarmenn náðu Bengasí á sitt vald. Þá höfðu hundruð mótmælenda verið drepin á nokkrum dögum. Næstu vikurnar gerði herlið Gaddafís árásir á borgina en náði henni aldrei aftur. 10. mars Stjórnarherinn varpar sprengjum á Brega og nær tveimur öðrum bæjum á sitt vald. Uppreisnarmenn hörfuðu í vesturhluta landsins. Uppreisn í Savíja, 50 kílómetra austan við höfuðborgina Trípólí, brotin á bak aftur. Gaddafí kenndi erlendum ríkjum um mótmælin og hótaði mótmælendum. 19. mars Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna setti flugbann yfir Líbíu og leyfði hernað til að vernda almenning. NATO hóf loftárásir stuttu síðar. 15. maí Herlið Gaddafís hörfaði frá Misrata eftir margra mánaða bardaga. Hundruð borgara og uppreisnarmanna létust og þúsundir særðust. 28. júlí Uppreisnarmenn höfðu náð stórum svæðum í vesturhluta landsins, meðal annars mikilvægum vegum sem tengja Trípólí við Túnis. 15. ágúst Uppreisnarmenn náðu bænum Garjan, 80 kílómetra sunnan við höfuðborgina, og höfðu þá í reynd umkringt höfuðborgina Trípólí. Atburðir frá upphafi mótmæla Þjóðarleiðtogar víða um heim lýstu því yfir í gær að stjórn Gaddafís væri fallin. Þeir hvöttu jafnframt einræðisherrann til þess að gefast upp og komast þannig hjá frekara blóðbaði. Þrátt fyrir að ekki sé vitað hvar Gaddafí dvelst hófst áætl- anagerð fyrir framtíðina. Bret- ar segjast ætla að láta af hendi á næstunni þá fjármuni sem þeir frystu. Þjóðverjar hyggjast gera slíkt hið sama. Frakkar greindu frá áætlunum um alþjóðlegan fund um málið í næstu vikunni og Ítalir hafa sent mannskap til höfuðstöðva uppreisnarmann- anna í Bengasí til að aðstoða við uppbyggingu og endurreisn olíu- og gasvinnslu. Evrópusambandið hefur heitið því að halda áfram að styðja við breytingar í Líbíu. Leiðtogar hafa jafnframt varað við hættunni á því að mannskæð átök haldi áfram og versni ef Gaddafí fari ekki frá völdum. Bretar og Þjóðverjar hyggjast láta fryst fé af hendi: Styðja nýju stjórnina FORTE Multidophilus Forte er breiðvirk 10 MILLJARÐA VIRKRA GERLA. „Probiocap®” Multidophilus forte er MULTI DOPHILUS Uppreisnarmenn ráða stærstum hluta borgarinnar Trípólí, nema aðsetri Gaddafís, Bab al-Azizia-Jazeera, þar sem harðir bardagar geisuðu í gær. Borgirnar Misrata og Bengasí eru á valdi upp- reisnarmannanna. Uppreisnarmenn streyma inn í höfuðborgina LÍBÍA Trípolí 800 km Sítan Misrata Bengasí Ríkissjónvarpið Þinghúsið Á valdi upp- reisnarmanna Sjúkrahús Græna torgið Gamli bærinn Aðsetur Gaddafís Hótel Rixos Al Fateh háskóli Gargaresh Souk al-juma Ben Ashur Arada Dýragarður Zawiyat al-Dahmani Fashlum TrípolíTÚNIS MIÐJARÐARHAFIÐ TRÍPOLÍ- HÖFN AL SÍ R EG YP TA LA N D 2 km © GRAPHIC NEWS MYNDIR/GETTY IMAGES Lokabardagar um Trípolí VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 31° 32° 26° 19° 32° 32° 21° 19° 26° 19° 32° 26° 32° 22° 23° 24° 21°Á MORGUN víða 5-10 m/s, hvassara við SA-til. FIMMTUDAGUR víða 3-8 m/s, hvassa NV- og SA-til. 9 12 11 10 10 11 12 12 13 13 11 8 5 3 3 4 4 6 8 6 5 4 13 13 7 9 8 12 11 7 8 7 HAUSTLEGT Haustlegt veður er í kortunum þessa vikuna. Væta S- og V-til í dag en færist A-yfi r fram á morgun daginn. Skýjað eða skýjað með köfl um um mest allt land a.m.k. fram á fi mmtudag. Hiti á bilinu 7-14 stig. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður FAGNAÐ Í TRÍPÓLÍ Uppreisnarmönnum var ákaft fagnað þegar þeir fóru um götur Trípolí í gær. Þeir höfðu náð stærstum hluta borgarinnar á sitt vald eftir aðeins þriggja daga bardaga. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.