Fréttablaðið - 23.08.2011, Page 10

Fréttablaðið - 23.08.2011, Page 10
23. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR10 EFNAHAGSMÁL Þórólfur Matth- íasson, forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands, vísar athuga- semdum Andreu Ólafsdóttur, for- manns Hagsmunasamtaka heim- ilanna, á bug. Andrea gerði um helgina athugasemdir við gagn- rýni Þórólfs á útreikninga sam- takanna. „Mér fannst undarlegt að sjá vitnað til tveggja manna tals okkar á opinbergum vettvangi,“ segir Þórólfur og bætir við: „Sam- tal mitt við Andreu staðfesti reyndar vissu mína um í hverju er fólgin sú hugsanavilla sem liggur að baki nýjustu herferð Hags- munasamtaka heimilanna. Villan felst í því að beitt er sam- lagningu þar sem margföld- un á við.“ Þórólfur seg- ist ekki munu fela A ndreu Ólafsdóttir að vera blaðafulltrúi sinn og segir Andreu draga rang- ar ályktanir af spjalli þeirra. „Vera má að Andrea Ólafsdóttir telji að rangt sé rétt og rétt rangt. Aðrir verða að fá að vera frjálsir að því að telja rétt rétt og rangt rangt,“ segir Þórólfur. Hagsmunasamtök heimilanna sendu nýverið kvörtun til umboðs- manns Alþingis varðandi reikn- inga fjármálastofnana á verð- tryggingu lána. Samtökin telja vafa leika á því hvort lagastoð sé fyrir viðtekinni reikningsaðferð. Lögfræðilegri greinargerð frá samtökunum fylgir dæmi þar sem borin eru saman tvö lán, annað með verðtryggðum höfuðstól og hitt með verðtryggðum greiðslum. Er komist að þeirri niðurstöðu að hagstæðara sé fyrir lántakendur að greiðslur séu verðtryggðar í stað höfuðstóls. Þórólfur segir það hins vegar ekki vera rétt, lánaform eigi ekki að hafa áhrif á heildar- verðmæti lánaafborgana. - mþl Þórólfur Matthíasson hagfræðingur vísar athugasemdum Hagsmunasamtaka heimilanna á bug: Hugsanavilla Hagsmunasamtakanna ÞÓRÓLFUR MATTHÍASSON PI PA R\ TB W A · SÍ A · 11 21 75 b m va ll a .is Íslensk hráefni, íslensk framleiðsla, íslensk gæði! Steypan frá BM Vallá er sérhönnuð til að þola íslenskt verðurfar og hver einasta hræra lýtur ítrustu gæðastöðlum. Í allri blöndun og ráðgjöf um meðhöndlun er höfuðáhersla lögð á að tryggja langan líftíma mannvirkis, lágmarka viðhaldsþörf og auðvelda niðurlögn steypunnar. Steyptu til framtíðar með BM Vallá! Árið 2010 fékk BM Vallá gæðavottun ISO 9001. BM Vallá hefur um langt árabil verið í fararbroddi íslenskra iðnfyrirtækja og gegnt forystuhlut- verki í framleiðslu fyrir íslenskan bygginga vörumarkað. Sími: 412 5050 Fax: 412 5001 sala@bmvalla.is BM Vallá ehf. Bíldshöfða 7 110 Reykjavík Í fararbroddi íslenskra steypuframleiðenda Hefðbundin steypa · Lituð steypa · Stjónsteypa · Sjálfútleggjandi steypa · Hvít steypa · Hraðútþornandi steypa · Terrazzo-steypa Trefjasteypa · Frostvarin steypa · Ryðhamlandi steypa · o.fl. DÓMSMÁL Persónu- og fjárhags- upplýsingar um hjónin Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörgu Pálma- dóttur, sem liggja hjá bönkum vest- anhafs og hússtjórn lúxusíbúða- blokkar á Manhattan, verða ekki aðgengilegar slitastjórn Glitnis nema að örlitlu leyti. Þetta er niður- staða gjaldþrotadómstóls í New York, sem kvað upp úrskurð þess efnis á föstudag. Slitastjórnin stefndi bönkunum tveimur, Citigroup og Royal Bank of Canada, og hússtjórninni að Gramercy Park North 50, þar sem hjónin áttu íbúðir, til afhendingar gagnanna í fyrravor í tengslum við risavaxið skaðabótamál á hendur sjö manns tengdum Glitni. Upplýsingarnar sem um ræðir eru annars vegar reikningsyfirlit og viðskiptasaga þeirra úr bönkunum tveimur, öll samskipti við bankana og hvaðeina sem til væri um fjár- hag þeirra, eignir og annað. Frá hús- stjórninni var farið fram á ítarleg- ar fjárhags- og persónuupplýsingar sem hjónin þurftu að skila inn þegar íbúðirnar voru keyptar, meðal ann- ars skattframtöl aftur í tímann og reikningsyfirlit. Slitastjórnin taldi að allar þessar upplýsingar væru ákaflega mikil- vægar fyrir málareksturinn þar ytra, enda gætu þær sýnt fram á það hvert fjármunirnir runnu sem hjón- in og meintir samverkamenn þeirra áttu að hafa sogið út úr Glitni með viðamiklu samsæri. Jón Ásgeir og Ingibjörg mót- mæltu þessari kröfu hins vegar harðlega, sögðu upplýsingarnar ákaflega viðkvæmar og persónu- legar og kæmu málinu ekki við á nokkurn hátt. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og skaðabótamáli slita- stjórnarinnar meðal annars verið vísað frá dómi þar sem ekki var tal- inn grundvöllur fyrir því að höfða það í New York. Þeirri niðurstöðu hefur slitastjórnin áfrýjað. K röfunni um opinberun gagnanna var hins vegar haldið lif- andi fyrir gjaldþrotadómstól þar sem þau væru talin mikilvæg fyrir slita meðferð þrotabús Glitnis. Í apríl síðastliðnum féllst dómstóllinn á kröfuna og úrskurðaði að gögnin skyldu opinberuð. Jón Ásgeir og Ingibjörg kröfð- ust þess í kjölfarið að úrskurðurinn yrði ógiltur með sömu rökum og þau höfðu tíundað í mála rekstrinum í fyrra. Fyrir helgi féllst svo gjald- þrotadómstóllinn á ógildingar- kröfuna að langstærstum hluta. Dómarinn Stuart M. Bernstein sagði að stefnurnar til gagna- öflunar innar væru fyrst og fremst „veiðiferð“ til að komast í fjárhags- upplýsingar hjónanna, hvort sem þær tengdust Glitni eða ekki. Niðurstaða hans var að engar upp- lýsingar skyldu opinberaðar nema þær sem tengdust beint verðmæti einnar íbúðarinnar að Gramercy Park og veði Glitnis í henni. stigur@frettabladid.is Neitað um viðkvæm gögn um Jón Ásgeir Gjaldþrotadómstóll í New York hefur neitað slitastjórn Glitnis um aðgang að ítarlegum persónu- og fjárhagsupplýsingum um Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörgu Pálmadóttur. Hjónin töldu upplýsingarnar vera viðkvæm einkamál. LÚXUSÍBÚÐABLOKKIN Á MANHATTAN Þegar hjónin sóttu um að fá að kaupa íbúð í þessu húsi þurftu þau að skila inn ítarlegum upplýsingum um persónulega hagi sína. Slitastjórnin fær þær ekki nema að örlitlu leyti. BÚRFELLSSTÖÐ 34 ungmenni gróður- settu 64.800 plöntur á svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON UMHVERFISMÁL Landsvirkjun réð í sumar 197 ungmenni á aldrinum 16 til 20 ára sem gróðursettu yfir 160 þúsund trjáplöntur víða um land. Ungmennin störfuðu við verk- efnið „Margar hendur vinna létt verk“ sem gefur félagasamtökum, sveitarfélögum og stofnunum kostur á að óska eftir vinnuafli við verkefni sem skila sér í auknum umhverfisgæðum og betri aðstöðu til útivistar og ferðamennsku. Hópurinn fær einnig fræðslu og situr námskeið svo sem skyndi- hjálpar- og hópeflisnámskeið. - shá Sumarstarf Landsvirkjunar: Gróðursettu 160 þúsund tréVARÐSKIPIÐ ÞÓR Nýja skipið mun verða afhent hér á landi 23. september næst- komandi. MYND/LANDHELGISGÆSLAN ÖRYGGISMÁL Sjó- og togprófanir á Þór, nýju varðskipi Landhelgis- gæslunnar, standa yfir þessa dagana. Þegar þeim lýkur taka við hallaprófanir sem eru síðasti verkþáttur í smíðaáætlun skips- ins. Áætlað er að afhenda skipið 23. september næstkomandi. Þetta kemur fram á vef Land- helgisgæslunnar. Áhöfn skipsins hefur að undan- förnu verið við þjálfun en gert er ráð fyrir að átján manns verði um borð. Gert er ráð fyrir að skipið verði í rekstri innan efnahagslögsögunnar og talið er að það verði bylting í eftirlits- og björgunargetu Landhelgis- gæslunnar. Smíðin fer fram hjá ASMAR skipasmíðastöð sjóhersins í Talcahuano í Síle og hófst 16. október árið 2007. - sv Smíði hófst árið 2007: Styttist í að Þór verði tilbúinn SJÁVARÚTVEGUR Aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa var rúmum milljarði króna minna en á sama tíma í fyrra. Jafngildir það 1,8% samdrætti. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands. Verðmæti aflans nam 56,5 millj- örðum króna á fyrstu fimm mán- uðum ársins, en var 57,6 milljarð- ar á sama tíma í fyrra. Verðmæti fyrir botnfisk dróst saman um 10,2% á milli ára; úr 43,5 millj- örðum á umræddu tímabili árið 2010 í 39,1 milljarð árið 2011, eða um 10,2%. Verðmæti þorsks dróst saman um 2,4 prósent, ýsu um 25,8% og karfa um 11,4%. Verð- mæti uxaaflans jókst hins vegar um 11,4% á milli ára. - kóp Minna verðmæti en í fyrra: Verðmæti afla er minna í ár Villan felst í því að beitt er samlagningu þar sem margföldun á við. ÞÓRÓLFUR MATTHÍASSON HAGFRÆÐINGUR KÆLA SIG NIÐUR Feðgar í Lyon í Frakklandi skemmta sér hið besta í gosbrunni. Hitinn var 35 stig og hvert tækifæri notað til að kæla sig niður. NORDICPHOTOS/AFP Byggingarvísitala lækkar Vísitala byggingarkostnaðar um miðjan ágúst er 110,5 stig, sem er lækkun um 0,2 prósent frá fyrra mánuði. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands. Vísitalan gildir í september einnig. HAGTÖLUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.