Fréttablaðið - 23.08.2011, Side 12
23. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR12
LÖGREGLUMÁL Brottrekinn slökkvi-
liðsstjóri Austur-Húnavatnssýslu
hefur krafið brunavarnir svæðis-
ins um rúmlega 1,7 milljónir króna
vegna launa sem hann telur sig eiga
inni hjá sveitarfélaginu. Stjórn
brunavarna telur hann ekki hafa
staðið við samkomulag sem gert
hafi verið og kærði hann því til lög-
reglunnar á Blönduósi vegna gruns
um hann hafi notað eldsneytisskort
slökkviliðsins í eigin þágu.
Þetta segir Jón Aðalsteinn
Sæbjörnsson, formaður stjórnar
Brunavarna Austur-Húnavatns-
sýslu.
Stjórn Brunavarna gerði starfs-
lokasamning við slökkviliðs-
stjórann vegna hins meinta mis-
ferlis í maí síðastliðnum. Þá hafði
hann verið rúmt ár í starfi. Mán-
uðina fyrir uppsögnina hafði hann
ferðast milli lögbýla í Svartárdal
og Vatnsdal til að taka út eldvarnir
á bæjunum. Eftir að stjórnin hafði
rift starfssamningi við hann neitaði
hann að láta af hendi vinnugögn um
eldvarnareftirlitið sem áttu að vera
í hans höndum, að sögn Jóns.
„Hann vísaði á lögfræðing sinn
varðandi upplýsingar á þessu
atriði,“ útskýrir Jón. „Við fengum
svör þess efnis að slökkviliðs-
stjórinn fyrrverandi væri ekki með
nein slík gögn undir höndum. Hins
vegar væri hann tilbúinn að vinna
skýrslurnar og afhenda okkur þær
ef við gerðum upp við hann þær
kröfur sem hann hefur sett fram
um vangoldin laun upp á nær tvær
milljónir. Við munum ekki ganga að
þessu, þar sem við teljum að hann
eigi engin laun inni.“
Jón bætir við að ástæða þess að
stjórnin kærði manninn til lög-
reglu sé sú að gert hafi verið við
hann samkomulag, sem undir ritað
hafi verið af báðum máls aðilum.
Þar hafi slökkviliðs stjórinn fyrr-
verandi skrifað undir að hann
myndi víkja frá og játa brot sín.
Hann hafi síðan neitað sök. - jss
Fyrrverandi slökkviliðsstjóri kærður til lögreglu fyrir meinta misnotkun á eldsneytiskorti:
Krefur Brunavarnir um nær tvær milljónir
BLÖNDUÓS Slökkviliðsstjórinn fer fram á
1,7 milljónir í skaðabætur.
Húsasmiðjan hf.
til sölu
FRAMTAKSSJÓÐUR
ÍSLANDS
Framtakssjóður Íslands slhf. (FSÍ), sem er eigandi alls hlutafjár í
Húsasmiðjunni, hyggst selja eignarhlut sinn í fyrirtækinu og
hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast söluna.
FSÍ auglýsir hér með eftir fjárfestum sem hafa áhuga á að kaupa
hlut í Húsasmiðjunni eða einstökum rekstrareiningum fyrirtækisins.
Ætlun FSÍ er að selja allan eignarhlut sinn en þó kemur til álita að
FSÍ haldi eftir hlut í félaginu og stofni til samstarfs við nýja hluthafa.
Verkefnið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem standast
hæfismat. Fjárfestar sem uppfylla skilyrði fá afhent kynningargögn
um félagið á grundvelli trúnaðaryfirlýsingar. Seljandi áskilur sér þó
rétt til þess að takmarka aðgang, m.a. í þeim tilvikum þegar fyrir
hendi eru lagalegar takmarkanir á því að aðili eignist ráðandi hlut í
félaginu, til dæmis vegna samkeppnisreglna.
Óskað er eftir óskuldbindandi tilboðum fyrir klukkan 12:00 fimmtu-
daginn 29. september og skal þeim skilað til Fyrirtækjaráðgjafar
Landsbankans. Frekari upplýsingar veitir Fyrirtækjaráðgjöf Lands-
bankans í síma 410 7340 og um netfangið husasmidjan@landsbankinn.is.
Húsasmiðjan
SJÁVARÚTVEGUR Stofn karfa í úthaf-
inu mældist rúmlega 900 þúsund
tonn í alþjóðlegum karfaleið-
angri Íslendinga, Þjóðverja og
Rússa sem er nýlokið.
Í leiðangrinum voru metn-
ar stofnstærðir tveggja stofna
karfa, efri og neðri stofn úthafs-
karfa. Ljóst er að þeir eru helm-
ingi minni en þegar þeir mæld-
ust stærstir árið 2001 þegar
hann mældist 1,8 milljónir tonna.
Efri stofn úthafskarfa, sem er
að finna á grynnra en 500 metra
dýpi, mældist rúm 120 þúsund
tonn með bergmálsaðferð og er
þetta svipað og árið 2009. Eru
þetta lægstu mælingar frá upp-
hafi, en árið 1994 mældist stofn-
inn rúmar tvær milljónir tonna.
Með trollaðferð voru mæld 309
þúsund tonn en þessi aðferð gaf
278 þúsund tonn árið 2009 og 565
þúsund tonn árið 2001.
Neðri stofn úthafskarfa, sem
er að finna á meira en 500 metra
dýpi, er áætlaður um 875 þúsund
tonn sem er svipað og mældist
árið 2009.
Mælingarnar í ár og árið 2009
eru þær lægstu síðan 1999 þegar
mælingar hófust og hafa farið úr
rúmri einni milljón tonna árið
2001.
Íslendingar hafa tekið þátt í
mælingunum frá árinu 1994.
Aðstæður til mælinga voru
góðar, veður yfirleitt gott og
engar hindranir voru vegna íss.
- shá
Úthafskarfastofninn er um 900 þúsund tonn:
Helmingi minni
stofn nú en 2001PÓLLAND, AP Pólski herinn hefur ákært tvo yfirmenn í hernum
fyrir vanrækslu, sem þeir eru
sagðir hafa gerst sekir um
þegar þeir skipulögðu flug árið
2010 til Rússlands með forsætis-
ráðherra landsins og tugi ann-
arra helstu ráðamanna ríkis og
hers.
Flugvélin fórst skömmu fyrir
lendingu í Rússlandi. Niðurstöð-
ur rannsóknar, sem birtar voru
í síðasta mánuði, voru þær að
slysið hefði átt sér margvíslegar
orsakir, meðal annars að flug-
mennirnir hefðu ekki haft næga
þjálfun og áhöfn vélarinnar hefði
ekki starfað nógu vel saman.
Hinir ákærðu báru meðal
annars ábyrgð á ráðningu og
undirbúningi áhafnar vélarinn-
ar. Þeir eiga yfir höfði sér allt
að þriggja ára fangelsi. - gb
Fyrstu ákærur vegna flugslyss:
Herinn ákærir
tvo í Póllandi
EITT MINNISMERKI TIL Minnismerki
um Martin Luther King hefur verið sett
upp í Washington og bætist þar með
í fjölbreytta flóru minnismerkja þar í
borg. NORDICPHOTOS/AFP
MENNTAMÁL „Ég er rosalega
svartsýnn,“ segir Hilmar Odds-
son, skólastjóri Kvikmyndaskóla
Íslands, eftir fund um fjárhags-
vanda skólans í menntamálaráðu-
neytinu síðdegis í gær. Skólinn var
ekki settur í gær.
Hilmar segir að fulltrúar skól-
ans hafi í gærmorgun sett fram
óformlega til-
lögu um breytt
eignarhald á
skólanum. „Það
er augljóst að
það er styrr
um rekstrar- og
eignarðaðila að
skólanum. Við
vorum að reyna
að finna leið
framhjá þeim
ef það eru þeir sem eru að trufla
málið. Því var hafnað,“ segir
Hilmar.
Skólastjórinn segir málið ekki
búið en sér sýnist að ekkert sé
hægt að gera fyrir Kvikmynda-
skólann. „Það er það sem okkur
er sagt,“ segir Hilmar, sem kveð-
ur erfiða stöðu þá koma upp. „Það
sem gerist er að 150 nemendur
hrökklast frá námi og það þarf
að finna þeim einhvern stað. Það
er ekki eins auðvelt og einhverjir
kannski ætla.“
Hilmar segir ábyrgðina á stöðu
nemendanna að hluta liggja hjá
aðstandendum skólans. „En við
höldum því fram að við berum
ábyrgðina ekki ein – það gera báðir
aðilarnir,“ segir hann.
Svandís Svavarsdóttir, starfandi
menntamálaráðherra, sat fundinn
í gær ásamt fleiri starfsmönn-
um ráðuneytisins. Þar voru einn-
ig fulltrúar skólans og kennara
hans og nemenda. Svandís segir
það hafa verið fyrsta fundinn með
öllum aðilum málsins.
„Uppleggið á fundinum var að
stjórnendur skólans gerðu ráðu-
neytinu grein fyrir því hvernig
þeir ætluðu að uppfylla skuldbind-
ingar sínar gagnvart nemendum
sem lofað hefði verið ákveðinni
menntun. Þeirri spurningu hefur
enn ekki fyllilega verið svarað,“
segir ráðherrann.
Spurð um ábyrgð segir Svandís
ljóst að skólinn hafi kosið að vaxa
án þess að fjármagn væri til fyrir
þeim rekstri. Slík framkoma gagn-
vart nemendum væri umhugusun-
arefni. „Það má líka velta fyrir sér
hver sé staða nemenda sem gera
samkomulag af þessu tagi við
einkaaðila sem getur stækkað eða
minnkað eins og honum sýnist en
þegar vandinn kemur upp er gert
ráð fyrir að hið opinbera komi
og hjálpi til,“ segir Svandís, sem
kveðst munu gera allt sem hún
geti til að greiða úr málum nem-
endanna.
Nemendur Kvikmyndaskólans
fylktu í gærmorgun liði á Vinnu-
málastofnuna og sóttu um atvinnu-
leysisbætur. Þeir segjast ekki
skilja hvers vegna ekki hafi verið
samið við skólann; öll gögn bendi
til þess að hagkvæmast sé fyrir
alla aðila að halda rekstri hans
áfram. gar@frettabladid.is
magnusl@frettabladid.is
Skólastjórinn
er svartsýnn
Fjárhagsmál Kvikmyndaháskóla Íslands eru óleyst.
Menntamálaráðuneytið hafnaði tillögu um breytt
eignarhald. Nemendur vilja á atvinnuleysisbætur.
HILMAR ODDSSON Eignarhaldið virðist standa í vegi fyrir lausn á vanda Kvikmynda-
skóla Íslands, segir skólastjórinn, sem kveður menntamálaráðuneytið hafa hafnað
tillögu um breytt eignarhald. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR