Fréttablaðið - 29.08.2011, Síða 16
2
F
ríða Jónsdóttir ljósmynd-
ari hefur breytt heimili
sínu að Hörpugötu 10 í
Skerjafirðinum í antik-
markað en sjálf er hún búsett í
Belgíu. Upphafið að markaðn-
um var létt fjáröflun fyrir ferð
sonarins til útlanda sem vatt
upp á sig.
„Mér fannst þetta svo stór-
kostlegt tækifæri fyrir hann en
honum bauðst að fara til Kenía.
Ég fyllti því tvær ferðatöskur
af postulíni af mörkuðunum hér
í Belgíu og lét orð berast í vin-
kvennahópnum. Það var allt
étið upp og þar með gat ég ekki
stoppað,“ segir Fríða. Í fram-
haldinu lagði hún bílskúrinn
undir antikmarkað sem flæddi
svo inn um allt hús.
Vörurnar á markaðnum finnur
Fríða á alls konar leynimörk-
uðum í litlum þorpum í Belgíu
og Frakklandi. Hún er nösk á
skemmtilega hluti og fær þar að
auki aðstoð eiginmannsins.
„Ég dreg karlinn með. Hann
var nú ekkert hrifinn fyrst
en núna finnst honum þetta
skemmtilegt og sér um herra-
deildina. Við tínum til allt
mögulegt, vínilplötur, leik-
hússjónauka, föt og postulín,“
segir Fríða. Markaðinn kallar
hún Hús fiðrildanna og hefur
opið miðvikudaga, fimmtudaga
og laugardaga milli klukkan
14 og 18. „Í vetur bætum við
föstudögunum við líka.“
Þó að Fríða hafi sérstaklega
gaman af gömlum munum gerir
hún þó fleira en þvælast milli
markaða. Þegar blaðamaður
hitti á hana var hún á leið austur
undir Eyjafjöll að taka síðustu
myndirnar í ljósmyndabók.
„Ég hef verið að vinna að
þessari bók síðustu tuttugu ár,
um dásamlegu Eyfellingana
mína. Nú sér fyrir endann á
verkinu og bókin kemur út með
vorinu. Þetta tekur allt sinn
tíma.“
Hægt er að fylgjast með Húsi
fiðrildanna á Facebook.
Fríða plataði eiginmanninn með sér á markaðsröltið og nú finnur hann til muni í herradeild Húss fiðrildanna.
Fríða er nösk á skemmtilega hluti og
þræðir litla leynimarkaði í þorpunum í
kringum heimili sitt í Belgíu.
Í Húsi fiðrildanna kennir ýmissa grasa;
postulínsstell, föt og gamlar vínilplötur
eru aðeins brot af því sem fyrir augu
ber.
Fríða Jónsdóttir rekur antikmarkaðinn Hús fiðrildanna heima hjá sér í Skerjafirði.
Framhald af forsíðu
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
FJARNÁM
Skráning á haustönn fer fram 30. ágúst til 6. september
á slóðinni www.fa.is/fjarnam
Lækkað verð
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Seinni part sumars er tilvalið að setja niður runna og
sígrænar jurtir sem standa fram á haustið og langt fram á
vetur. Til dæmis silfurkamb, sýtrus eða skrautkál. Ýmsan
fróðleik um garðverkin má finna á www.gardurinn.is.