Fréttablaðið - 28.09.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 28.09.2011, Blaðsíða 4
28. september 2011 MIÐVIKUDAGUR4 JAFNRÉTTISMÁL Sérstakur starfs- hópur, sem ríkisstjórnin skipar í samráði við heildarsamtök ríkis- starfsmanna í kjölfar setningar jafnlaunastaðals, á að fylgja eftir áherslum um að uppræta kynbund- inn launamun meðal ríkisstarfs- manna. Starfshópurinn, sem á að skila áfangaskýrslu í upphafi árs 2012 og 2013, á jafnframt að horfa til þeirra aðferða sem stjórnvöld í Noregi og Svíþjóð hafa gripið til í baráttunni gegn launamun kynjanna. Þetta kemur fram í bréfi sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra og Steingrímur J. Sig- fússon fjármálaráðherra rituðu Elínu Björgu Jónsdóttur, formanni BSRB, í lok maí síðastliðins. „Við höfðum í aðdraganda kjara- samninganna, farið á fund þessara ráðherra og kynnt fyrir þeim hug- mynd SFR sem við tókum í fang- ið um svokallaða jafnlaunapotta sem eru að norskri fyrirmynd. Úr þeim er greitt til stétta þar sem konur eru að minnsta kosti 60 pró- sent starfsmanna og launamunur kynjanna mælanlegur. Við reynd- um að fá ríkisstjórnina með okkur í vinnu um útfærslu á þessu núna á meðan verið væri að leiðrétta mun- inn. Við fengum það ekki í gegn. Við fengum hins vegar viljayfirlýs- ingu um að til viðbótar jafnlauna- staðlinum yrði tekið mið af þeim línum sem verkalýðshreyfingar í Noregi og Svíþjóð hafa lagt.“ Í bréfi ráðherranna til Elínar segir að stjórnvöldum sé ljóst að vinna starfshópsins kunni að leiða til þess að sýnt verði fram á óútskýrðan launamun sem bregð- ast þurfi við á viðeigandi hátt. „Það þýðir ekkert annað en að það verði að greiða þann mun,“ segir Elín. Þriggja ára vinnu Staðlaráðs að jafnlaunastaðli er að ljúka og hafa fulltrúar úr starfsmanna deildum stórra fyrirtækja tekið þátt í vinnunni. Með staðlinum er von- ast til að markmiðum jafnlauna- ákvæðis jafnréttislaganna verði náð. Nokkur fyrirtæki hafa þegar lýst yfir áhuga á að taka upp jafn- launastaðal en samkvæmt honum er verðmæti starfa meðal annars metið, að sögn Hildar Jónsdóttur, sérfræðings stjórnarráðsins í jafn- rétti kynja. Þónokkur fyrirtæki hafa lýst yfir áhuga á að fá svokallaða jafn- launaúttekt hjá PwC, að sögn Elínar Hlífar Helgadóttur ráð- gjafa. „Hjá okkur er ekki um starfamat að ræða. Við greinum kynbundinn launamun þegar tekið hefur verið tillit til annarra þátta sem geta haft áhrif. Eftirspurn eftir jafnlaunaúttekt varð talsvert meiri í fyrra en áður. Það virðist sem fyrirtæki séu að taka þessi mál í gegn hjá sér.“ ibs@frettabladid.is GENGIÐ 27.09.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 215,3666 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 118,03 118,59 183,43 184,33 159,37 160,27 21,415 21,541 20,421 20,541 17,318 17,420 1,5423 1,5513 184,27 185,37 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Ranghermt var í blaðinu í gær að Írena Líf Jónsdóttir ætti bestan tíma í Viðeyjarsundi. Heimir Örn Sveins- son synti Viðeyjarsund á tímanum 01:01.18. LEIÐRÉTT DANMÖRK Félagar í vélhjólaklúbb- unum Vítisenglum og Bandidos, svokallaðir „rokkarar“, þáðu um 30 milljónir danskra króna, að jafngildi um 650 milljóna íslenskra, í opinbera framfærslu- aðstoð á fyrri helmingi ársins. Þetta kom fram í frétt BT í gær, en þar segir einnig að 531 af 1.170 skráðum rokkurum hafi þegið einhvers konar bætur umfram 100.000 íslenskar krónur á tímabilinu. Dönsk skatta- yfirvöld gerðu úttekt á þessum málum og hyggjast í framhaldinu meta möguleika sína til að bregð- ast við. - þj Skattyfirvöld í Danmörku: Vilja úttekt á bótum rokkara Á BÓTUM Úttekt skattayfirvalda leiðir í ljós að tæpur helmingur danskra rokk- ara þiggur bætur. NORDICPHOTOS/GETTY UTANRÍKISMÁL Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, kemur til Íslands á morgun. Hann mun funda með Öss- uri Skarphéð- inssyni utan- ríkisráðherra og Jóhönnu Sig- urðardóttur for- sætisráðherra meðan á heim- sókninni stend- ur. Hann mun einnig hitta utanríkismálanefnd Alþingis. Utanríkisráðherrarnir tveir munu funda á Akureyri og heim- sækja Siglufjörð. Meðal annars munu þeir ræða málefni norður- slóða og Evrópumál auk þess sem þeir taka þátt í ráðstefnu Háskól- ans á Akureyri. Þá munu þeir opna sýningu um heimskauta- farann Fridtjof Nansen. - þeb Utanríkisráðherra til Íslands: Störe fundar með Össuri JONAS GAHR STØRE Ákærður fyrir ofsaakstur Tæplega tvítugur piltur hefur verið ákærður fyrir að aka á 166 kílómetra hraða eftir Siglufjarðarvegi og fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu lögreglu í Héðinsfjarðargöngum. DÓMSMÁL JAFNRÉTTISMÁL Stjórnir lífeyris- sjóða skulu skipaðar fulltrúum af báðum kynjum, og skal hlutur hvors kyns vera að lágmarki 40 prósent í stjórnum með fleiri en þrjá stjórnarmenn, samkvæmt nýlegum lögum sem samþykkt voru á Alþingi. Lögin taka gildi eftir tæplega tvö ár, 1. september 2013. Sam- kvæmt upplýsingum frá ASÍ er nú um fimmtungur stjórnar- manna lífeyrissjóða launafólks á almennum markaði konur. Í hefðbundnum lífeyrissjóðum skipa verkalýðsfélög helming stjórnarmanna en atvinnurekend- ur hinn helminginn. - bj Lögum um lífeyrissjóði breytt: Kynjahlutföll í stjórnum 2013 VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 27° 26° 21° 20° 24° 22° 17° 17° 26° 24° 28° 21° 32° 16° 26° 27° 15°Á MORGUN 3-8 m/s. Hægast austan til. FÖSTUDAGUR 15-20 m/s allra syðst. 11 10 7 8 7 8 7 10 12 12 5 6 10 6 7 4 7 6 12 4 12 6 10 6 7 12 11 12 8 9 7 12 VÆTUTÍÐ Hver haustlægðin rekur aðra þessa dagana og því er heldur vætusamt þótt stytti stutt upp á milli. Á morgun léttir til A- lands en aðfara- nótt föstudags kemur kröpp lægð upp á SV-strönd landsins. Horfur eru á nokkuð stífum vindi S- og SV-til á föstudaginn og rigningu víða. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður ÍSRAEL, AP Ísraelsk stjórnvöld gáfu í gær út heimild til þess að reisa 1.100 nýjar íbúðir í austurhluta Jerúsalem, borgar- hluta sem Ísraelar hertóku árið 1967. Palestínumenn gera tilkall til austur hluta borgarinnar og hyggjast hafa þar höfuðborg sína. Saeeb Erekat, helsti samn- ingamaður Palestínumanna, for- dæmdi þessa ákvörðun þegar í stað og sagði hana fela í sér þvert nei við því að friðarviðræður verði teknar upp á ný. Ísraelar hafa brugðist við umsókn Palestínumanna um að sjálfstætt Palestínuríki fái aðild að Sameinuðu þjóðunum með því að bjóðast til að taka þátt í friðar- viðræðum. Bandaríkjastjórn hefur sömuleiðis hvatt Ísraela og Palestínumenn til að hefja samn- ingaviðræður á ný. Palestínumenn hafa hins vegar ítrekað neitað að halda áfram viðræðum meðan Ísraelar halda áfram byggingaframkvæmdum á herteknu svæðunum. Catherine Ashton, utanríkis- málafulltrúi Evrópusambands- ins, segir að byggingarleyfin eigi að afturkalla, enda komi þau í veg fyrir frekari friðarviðræð- ur Ísraela og Palestínumanna. - gb Ákvörðun Ísraela um fleiri íbúðir landtökumanna vekur hörð viðbrögð: Fleiri steinar í götu viðræðna BYGGINGAFRAMKVÆMDIR Landtöku- menn hafa staðið í stórframkvæmdum í Austur-Jerúsalem og fá nú að byggja enn meira. NORDICPHOTOS/AFP Skoða greiðslur til að jafna launamun Starfshópur stjórnvalda á að horfa til aðferða sem stjórnvöld í Noregi og Sví- þjóð hafa gripið til í baráttunni gegn launamun kynjanna. BRSB vildi strax samvinnu um greiðslu úr jafnlaunapottum. Eftirspurn eftir jafnlaunaúttekt. Það virðist sem fyrirtæki séu að taka þessi mál í gegn hjá sér. ELÍN HLÍF HELGADÓTTIR RÁÐGJAFI HJÁ PWC FORMAÐUR BSRB Elín Björg Jónsdóttir kynnti í vor svokallaða jafnlaunapotta fyrir stjórnvöldum og vildi samvinnu um útfærslu á greiðslum úr þeim strax. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DÓMSMÁL Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir Héraðs- dómi Reykjaness fyrir að landa fram hjá vigt nær 1,5 tonnum af þorski. Öðrum er gefið að sök að hafa ekið með aflann í fjórum fiski- kerum án þess að hafa viðkomu hjá hafnarvoginni og að fiskverk- un í Reykjanesbæ. Skipstjóri skipsins sem landað var úr er ákærður fyrir að hafa ekki tryggt að umræddur afli færi á hafnarvogina í Keflavíkur- höfn. - jss Landað framhjá vigt: Ákærðir vegna 1,5 þorsktonna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.