Fréttablaðið - 28.09.2011, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 28.09.2011, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 28. september 2011 15 Við bjóðum vaxtalaus lán frá Visa og Mastercard í allt að 12 mánuði Sérfræðingar í bílum Reykjanesb æ Rey kjavík Settu Toyo harðskeljadekkin undir strax! Ekki lenda í biðröð í haust! Nesdekk - Reykjavík Fiskislóð 30 / S: 561 4110 Nesdekk - Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 / S: 420 3333 Bílabúð Benna Dekkjaþjónusta Tangarhöfða 8 / S: 590 2007 Umboðsmenn um land allt Að undanförnu hafa marg-ir tekið eftir því að núorðið er jafnan vísað til Ríkisútvarps- ins með skammstöfuninni RÚV í kynningu á efni í miðlum félags- ins, á vefsíðu þess og víðar. Þetta ræða menn og telja sumir að verið sé að útrýma hugtakinu Ríkisút- varp. Það er mikill misskilningur enda sjá og heyra glöggir notendur miðla RÚV að ekki er öllu dagskrárgerðar- fólki þetta nýmæli tamt og það notar þá að sjálfsögðu það hugtak sem því fell- ur betur. Vangaveltur um nafngiftina komu meðal annars fram í pistli Eiðs Guðna- sonar nýlega, en hann telur útvarps- stjóra hafa stað- ið einan að þessari breytingu. Nú er rétt að útskýra fyrir þeim sem velta þessu fyrir sér að þessi hógværa breyting er gerð að vandlega yfir veguðu ráði. Um langt skeið hafði ríkt talsverð ósamkvæmni og ruglingur í því hvern- ig fjallað var um Ríkisútvarpið og miðla þess, hljóðvarpið (sem hefur tvær rásir), sjónvarpið og vefinn bæði í RÚV og öðrum miðl- um. Mikill ruglingur var á notk- un hugtakanna „útvarp“, „hljóð- varp“ og „sjónvarp“ og fólk vísaði t.d. gjarna til „gufunnar“ eða jafnvel „gömlu gufunnar“ hvort sem rætt var um efni í hljóðvarpi eða sjónvarpi. Vissulega á kært barn mörg nöfn – en þetta þótti óheppilegt. Að auki var þó nokkur vandræðagangur á notkun þeirra myndrænu kennimerkja sem tákna þessa ólíku miðla en slíkt þykir ekki gott í nútíma fyrir tæki – þótt gamalt sé og gróið. Til þess að komast að því hvernig þjóðin, eigendur RÚV, notuðu þessi hug- tök voru gerðar þrjár Capacent/ Gallup kannanir í septem ber og október 2010. Þar kom í ljós að yfirgnæfandi meirihluti svar- enda notaði samheitið „RÚV“ fyrir bæði sjónvarp og útvarp. Þegar spurt var t.d. „Á hvaða sjón- varpsstöð er Kastljósið?” svaraði tæplega 90% „RÚV“ – og þegar spurt var um kennimerki sjón- varpsins tengdu langflestir það við RÚV í heild en fáir við sjón- varpið sérstaklega. Þessar niður- stöður voru ræddar í þaula á fund- um bæði stjórnar og starfsmanna og niðurstaðan var sú að nota í næstu framtíð hug takið RÚV fyrir alla miðla Ríkis útvarpsins og laga framsetninguna þannig að almennri málnotkun þjóðarinnar. Stjórn RÚV fól útvarpsstjóra að fylgja þessari ákvörðun eftir. Það er því ekki við útvarps- stjóra einan að sakast heldur þjóðina sjálfa samkvæmt niður- stöðu Gallupkönnunarinnar, mik- inn meirihluta starfsmannanna og einróma niðurstöðu stjórnar- innar. Auk þessa má benda á að allir ríkis fjölmiðlar í Evrópu nota skammstafanir af þessu tagi og aðgreina síðan ólíka miðla sína, t.d. með tölum líka, eins og þeir þekkja sem fylgjast með erlendum sjónvarps- og hljóðvarpsrásum. Í pistli Eiðs Guðnasonar var m.a. bent á að ekkert finnst þegar leitað er eftir orðinu Ríkisútvarp á ja.is. Þessi ábending er vel þegin, og sú handvömm verður leiðrétt nú þegar. Pistill hans er einn- ig gott tilefni til að minna á það frábæra starf sem sinnt er í RÚV þrátt fyrir ýmsar hremmingar á síðustu árum. Þar er sannarlega leitast við að sinna þeirri skyldu ríkisútvarps að mennta, fræða og skemmta og þarf varla annað en að vísa til íslenska kvikmynda- sumarsins þar sem landsmenn hafa átt þess kost að sjá heima í stofu 34 íslenskar kvikmyndir, eða glæsilegt afrek útvarpsleikhúss- ins undir stjórn Viðars Eggerts- sonar sem hlotið hefur fjölda til- nefninga og viðurkenninga á alþjóðlegum vettvangi. Um þess- ar mundir eru líka að hefja göngu sína margir nýir þættir bæði í útvarpi og sjónvarpi sem vonandi falla sem flestum í geð auk þess sem sígilt íslenskt efni á borð við Útsvar og Landann í sjónvarpi, Víðsjá, morgunútvarp, sunnudags- leikrit og útvarpssögur í hljóð- varpi verða áfram á dagskrá. Það er að sjálf- sögðu sárt að einhverjir, þar á meðal Eiður, séu leiðir yfir því að hug takið Ríkisútvarp hafi vikið fyrir skammstöfun inni „RÚV“ í almennri framsetningu af hálfu félagsins. Vonandi eiga þessi fyrrverandi starfs- maður og aðrir eftir að sætta sig við þá breytingu þegar fram líða stundir og njóta vel þeirrar vönd- uðu dagskrár sem allir miðlar RÚV bjóða upp á. Það er líka einlæg von mín að hann og aðrir átti sig á því að það er stjórn RÚV sem ræður úrslitum þegar á hólminn er komið en ekki útvarps- stjórinn einn þótt hann sé allra góðra gjalda verður. Það er að sjálf- sögðu sárt að ein- hverjir, þar á meðal Eiður, séu leiðir yfir því að hugtakið Ríkisútvarp hafi vikið fyrir skamm- stöfuninni „RÚV“ í almennri fram- setningu af hálfu félagsins. Algengasta meginorsök alvar-legra umferðarslysa er því miður röng mannleg breytni. Allir vegfarendur þurfa að vanda sig, hvort sem þeir eru gangandi, hjól- andi eða kjósa annan fararmáta. Vegfarendur þurfa að hafa hugann við umferðina, nota öryggisbúnað s.s. spenna beltin, gæta að hraða, vera allsgáðir og óþreyttir, vanda til ástands ökutækja og vera með- vitaðir um ástand vega/gatna og umhverfi þeirra svo nokkur dæmi séu tekin. Ef varlega er farið eru minni líkur á slysum. Í Fréttablaðinu föstudaginn 23. september sl. segir Pawel Bartos- zek stærðfræðingur Rannsóknar- nefnd umferðarslysa (RNU) hafa tilhneigingu til að kenna saklausu fólki um eigin ófarir í rannsókn- um sínum á alvarlegum umferðar- slysum. Samkvæmt lögum miðar starfsemi RNU að því að leiða í ljós sennilegar orsakir umferðar- slysa til að afstýra slysum af sömu eða líkum orsökum og stuðla með því að auknu öryggi í umferðinni. Gerir hún tillögur til úrbóta um umferðaröryggi til viðeigandi stjórnvalda, eftir því sem rann- sóknir á orsökum umferðarslysa gefa tilefni til. Greining nefndar- innar er þverfagleg og miðar að því að fækka slysum eða draga úr meiðslum, burtséð frá sekt eða sakleysi fólks. Þetta er lykilatriði í rýni nefndarinnar. Orsök slyss má oft rekja til rangrar hegð- unar tiltekins einstaklings en að auki hefði hugsanlega mátt koma í veg fyrir slysið eða draga úr meiðslum með öðrum hætti og ber nefndinni að benda á allar hliðar máls. Skýrslur um einstök mál eru gefnar út og birtar án persónu- auðkenna á vef nefndarinnar. Pawel er ekki athugull á allar hliðar máls í staðhæfingum sínum í grein sinni. Hann nefnir dæmi og tiltekur aðeins útvalin atriði af mörgum í orsakagreiningu nefndar innar og ábendingum, sem hún telur hafa þýðingu vegna viðkomandi slysa. Störf RNU eru ekki hafin yfir gagnrýni, en skrif þessi gefa ekki sanna mynd af niðurstöðum nefndarinnar í þessum málum. Að því er varðar slys þar sem gangandi vegfarandi lést sleppir Pawel t.d. umfjöllun nefndar innar um að engin gang- braut var á slysstað þó svo að op væri í grindverki á miðeyju sem gaf til kynna gönguleið eða um nauðsyn heildstæðrar endurskoð- unar á hvernig hægt er að bæta öryggi gangandi vegfarenda á við- komandi götu. Í öðru dæmi sínu getur Pawel t.d. ekki um ábend- ingu um að skoða þurfi almennt aðgengi og öryggi við bílastæða- hús. Þrengsli við inn- og útkeyrslu bílastæðahúsa skapi hættu fyrir alla vegfarendur. Þá tekur hann dæmi af skelfilegu banaslysi þar sem barn varð fyrir bifreið öku- níðings, sem flúði af vettvangi og fannst aldrei. Sleppir Pawel umfjöllun nefndarinnar sem for- dæmir hegðun ökumanns, sem var meginorsök slyssins, og lagði m.a. til að hámarkshraði yrði lækkað- ur þar sem slysið varð til að auka öryggi gangandi vegfarenda. Skýrslur nýttar sem fræðsluefni Hvetur nefndin ökumenn, hjól- reiðamenn, skokkara, bifhjóla- menn, fagfélög og fyrirtæki t.d. í flutningastarfsemi til þess að kynna sér skýrslur nefndarinn- ar er varða umferðarslys á þeirra vettvangi. Telur nefndin jafn- framt að æskilegt sé að skýrslur RNU og aðrar skýrslur sem gefn- ar eru út um umferðaröryggis- mál hér á landi og erlendis, séu nýttar sem stoðgögn í rannsókn- ar– og verkefnavinnu nemenda í skólum um orsakir og afleiðingar umferðarslysa. Efni eins og RNU birtir gefur tækifæri til að sjá fræðilega niðurstöðu á rannsókn- um á orsökum umferðarslysa og tillögur til úrbóta. Þetta efni á að nota. Gæti heimildavinna nem- enda með upplýsingar um atvik, tölfræði o.fl. við rannsóknir og fyrirlestra haft forvarnargildi gegn áhættuhegðun í umferðinni og verið liður í umferðaröryggis- stefnu meðal ungs fólks. Sem sjálfstætt afmarkað kennsluefni um akstur bifreiða, hjólreiðar, bifhjólaakstur og gangandi veg- farendur og/eða t.d. sem liður í kennslugreinum eins og eðlis- fræði, stærðfræði, heilbrigðis- fræðum o.fl. Skylt er að geta þess að stjórn- völd umferðaröryggismála hafa nánast undantekningarlaust tekið ábendingum nefndarinnar á mál- efnalegan hátt og nýtt þær til að efla umferðaröryggið. Að mati nefndarinnar hafa aðrir, sem hún hefur beint ábendingum og athugasemdum að, gert það með sama hætti. Vinnum saman gegn umferðar- slysum með því að efla ábyrgðar- kennd, víðsýni og þekkingu, sjálfstraust og gagnrýna hugs- un í samfélaginu. Aukin fræðsla að þessu leyti mundi styðja þau markmið stjórnvalda að draga úr fjölda látinna og alvarlegra slas- aðra í umferðinni. Allar hliðar málsRÚV og Ríkisútvarp Ríkisútvarpið Svanhildur Kaaber formaður stjórnar RÚV Umferðaröryggi Ásdís J. Rafnar formaður Rannsóknanefndar umferðarslysa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.