Fréttablaðið - 30.09.2011, Qupperneq 12
30. september 2011 FÖSTUDAGUR12
Notaðu Nicky þegar
þú ert búinn!
UMHVERFISMÁL Íslenskt atvinnulíf
hefur fjölmörg sóknarfæri á sviði
grænnar atvinnusköpunar. Þetta
er niðurstaða nefndar Alþingis um
eflingu græna hagkerfisins sem
skilaði af sér skýrslu um málið í
gær.
„Það er kannski meginniður-
staða nefndarinnar að það er ekki
svo að við getum litið á umhverfis-
v e r n d o g
atvinnusköpun
sem andstæð-
ur,“ sagði Skúli
Helgason, þing-
maður Sam-
fylkingarinnar,
á blaðamanna-
fundi í gær,
en hann veitti
nefndinni for-
mennsku. „Við
teljum að það séu allar forsendur
til staðar til að Ísland geti skipað
sér í fremstu röð þjóða sem grænt
hagkerfi með áherslu á hreina
náttúru, sjálfbæran orkubúskap,
nýsköpun og menntun til sjálf-
bærni,“ sagði Skúli.
Í skýrslunni eru kynntar 48 til-
lögur um eflingu græna hagkerfis-
ins. Í framhaldinu er stefnt að því
að leggja fram þingsályktunar-
tillögu um aðgerðaáætlun sem
byggir á tillögunum.
Nefndin leggur áherslu á að
stjórnvöld stuðli að þróun græns
hagkerfis með hagrænum hvötum
og örvun fjárfestingar í vistvænni
atvinnustarfsemi, en ekki með
boðum og bönnum. Þá er stefnt
að því að hið opinbera verði fyrir-
mynd þegar kemur að vistvænum
starfsháttum.
Af tillögunum má nefna að svo-
kallaður framfarastuðull (GPI),
sem tekur meðal annars tillit til
þess þegar gengið er á takmark-
aðar auðlindir, verði framveg-
is reiknaður fyrir íslenska hag-
kerfið og birtur samhliða vergri
landsframleiðslu. Þá verði hlutfall
vistvænna útboða á vegum ríkis-
ins aukið verulega á næstu árum
og í auknum mæli stuðst við meng-
unargjöld til tekjuöflunar ríkisins.
Þó án þess að heildarskattheimta
aukist.
Auk Skúla sátu í nefndinni þing-
mennirnir Illugi Gunnarsson,
Sjálfstæðisflokki, og Guðmund-
ur Steingrímsson, sem tók sæti í
nefndinni fyrir hönd Framsóknar-
flokksins en er nú óháður þing-
maður. Aðrir nefndarmenn voru
Arna Lára Jónsdóttir og Dofri
Hermannsson fyrir Samfylk-
inguna, Bergur Sigurðsson og Sal-
vör Jónsdóttir fyrir Vinstri græna,
Guðmundur Ragnar Guðmunds-
son fyrir Hreyfinguna, og Guðný
Káradóttir fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn.
Í bókunum sem fylgja skýrsl-
unni gerði Illugi fyrirvara við
nokkrar af tillögum nefndarinn-
ar. Á blaðamannafundinum sagði
hann fyrirvarana þó ekki snerta
þá grunnhugsun sem lægi að baki
skýrslunni. Auk þess bókaði Guð-
mundur Ragnar að hann hefði vilj-
að sjá meira afgerandi tillögur frá
nefndinni.
magnusl@frettabladid.is
Græna hagkerfið verður eflt
Þverpólitísk nefnd kannaði sóknarfæri íslensks atvinnulífs á sviði grænnar atvinnusköpunar. Nefndin
leggur til að efling slíkrar starfsemi verði forgangsverkefni í atvinnustefnu stjórnvalda. 48 tillögur kynntar.
SKÚLI HELGASON
GRÆNT HAGKERFI Meðal tillagna nefndarinnar er að Ísland verði kynnt sem grænt
hagkerfi fyrir kaupendum vöru og þjónustu, fjárfestum og ferðamönnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Við teljum að það
séu allar forsendur til
staðar til að Ísland geti skipað
sér í fremstu röð þjóða sem
grænt hagkerfi ...
SKÚLI HELGASON
ÞINGMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR
DANMÖRK „Þetta verður búið
þegar það er búið,“ hafa dansk-
ir fjölmiðlar eftir Helle Thorn-
ing-Schmidt, leiðtoga danska
Sósíaldemókrataflokksins,
sem talin er langt komin með
stjórnarmyndunar viðræður við
hina flokka vinstri blokkarinnar.
Leiðtogar Sósíalíska þjóðar-
flokksins og Róttæka flokksins,
sem nú er talið að myndi stjórn
með sósíaldemókrötum, vildu
heldur ekkert láta eftir sér hafa
um gang viðræðnanna.
Samkvæmt frásögn Jótlands-
póstsins virðast sósíaldemókratar
og sósíalistar ætla, að kröfu Rót-
tæka flokksins, að falla frá áform-
um sínum um nýjan hátekjuskatt.
Í staðinn sættir Róttæki flokk-
urinn sig við að strangar kröfur
til innflytjenda verði áfram við
lýði, meðal annars 24 ára reglan
umdeilda, sem kveður á um að
útlendingur, sem gengur í hjóna-
band með Dana, þurfi að vera 24
ára hið minnsta til að fá dvalar-
leyfi í Danmörku á grundvelli
hjónabandsins.
Einingarlistinn, sem er lengst til
vinstri allra dönsku stjórnmála-
flokkanna, er engan veginn sátt-
ur við þessa niðurstöðu um brott-
hvarf hátekjuskattsins.
Í gær var talað um að lending-
in yrði tveggja eða þriggja flokka
minnihlutastjórn, nefnilega stjórn
sósíaldemókrata og sósíalista með
stuðningi Einingarflokksins og
annaðhvort stuðningi eða beinni
aðild Róttæka flokksins.
Danska þingið kom saman í gær
í fyrsta sinn frá kosningum, en
þingfundurinn stóð aðeins í hálfa
aðra mínútu. Aðeins tvö mál voru
á dagskrá: Mogens Lykketoft, fyrr-
verandi leiðtogi danska Sósíal-
demókrataflokksins, var kjörinn
þingforseti og kosið var í nefnd til
að fara yfir úrslit kosninganna.
- gb
Minnihlutastjórnar í burðarliðnum í Danmörku:
Hátekjuskatturinn varla
lengur í myndinni
HELLE THORNING-SCHMIDT Segir fátt við
fjölmiðla um stjórnarmyndunarviðræð-
urnar, sem þó virðast nálgast lokastig.
NORDICPHOTOS/AFP
EFST Á SÚLUNNI Þessa dagana eru
menn að kanna skemmdir sem urðu
á Washington-minnismerkinu, súlunni
stóru í Washington-borg, þegar jarð-
skjálfti varð þar í ágúst. NORDICPHOTOS/AFP
NEYTENDUR Lausasölulyf voru oftast
ódýrust í Garðsapóteki við Sogaveg
þegar verðlagseftirlit ASÍ gerði
könnun í apótekum á mánudaginn.
Oftast voru lyf dýrust í Árbæjar-
apóteki í Hraunbæ.
ASÍ kannaði verð á 36 algengum
lausasölulyfjum, lyfjum sem seld
eru án lyfseðils. Í tuttugu tilvikum
af þessum 36 var verðið lægst hjá
Garðsapóteki og í tuttugu tilvikum
var það dýrast hjá Árbæjarapóteki.
Mestur verðmunur reyndist vera
á verkjalyfinu Panodil, sem kost-
aði mest 654 krónur í Austurbæjar-
apóteki í Ögurhvarfi og minnst 339
krónur í Apótekinu á Akureyri.
Verðmunurinn var 93 prósent. 90
prósenta verðmunur var á forða-
töflunum Duroferon, sem kost-
uðu mest 931 krónu hjá Lyfjum og
heilsu í Reykjanesbæ en voru ódýr-
astar hjá Garðsapóteki á 490 krón-
ur. Verðlagseftirlit ASÍ fór í apótek
víðsvegar á landinu og heimsóttu
eina verslun í hverri keðju. Ólafs-
víkurapótek neitaði þátttöku í
könnuninni. - þeb
93 prósenta verðmunur er á Panodil eftir apótekum samkvæmt könnun ASÍ:
Oftast ódýrast í Garðsapóteki
LYF Verð á 36 tegundum af lausa-
sölulyfjum var kannað síðastliðinn
mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SVÍÞJÓÐ Vistvæni landbúnaðurinn
í Svíþjóð verður æ háðari nær-
ingarefnum sem upprunalega
koma frá hefðbundnum búskap.
Í einum algengasta áburðinum
er meðal annars beinamjöl frá
dönskum svínabúum, að því er
sænska ríkisútvarpið grein-
ir frá. Áður en nota má beina-
mjölið verður þó að dauðhreinsa
það til þess að koma í veg fyrir
útbreiðslu sjúkdóma.
Lars Hällbom hjá samtökum
fyrirtækja sem stunda vistvæna
ræktun segir menn vona að í
framtíðinni verði hægt að nota
næringu úr skólpi. Samkvæmt
núgildandi lögum Evrópusam-
bandsins sé hins vegar bannað að
nota skólp sem áburð við vist-
væna ræktun. - ibs
Vistvæn ræktun í Svíþjóð:
Nota beinamjöl
frá svínabúum
SVÍN Mjöl sem unnið er úr beinum úr
svínum er notað í vistvænan landbúnað.
FÉLAGSMÁL Nú eru 50 ár liðin frá
því fyrstu skiptinemarnir og sjálf-
boðaliðarnir fóru á vegum Alþjóð-
legra ungmennaskipta (AUS) til
útlanda. Í tilefni að hálfrar aldar
afmæli samtakanna efna AUS til
hátíðar laugardaginn 1. október
næstkomandi.
Í tilkynningu frá AUS segir að
á þessum 50 árum hafi hundruð
Íslendinga farið utan með sam-
tökunum og annar eins fjöldi
erlendra ungmenna komið til
Íslands. Athöfnin hefst í Ráðhús-
inu klukkan 13. - sv
AUS heldur hátíð á laugardag:
Fagnar 50 ára
afmæli sínu