Fréttablaðið - 30.09.2011, Blaðsíða 63
FÖSTUDAGUR 30. september 2011 35
25% AF
JOHN FRIEDA
HÁRVÖRUM Í OKTÓBER Kjúklingabollur í drekasósu
www.ora.is
... einfalt, fljótlegt og go !
Smakkaðu
nýjung frá ORA
Kjúklingabollur í súrsætri sósu
Hundrað og sextíu listamenn flytja rúmlega sextíu
tónverk eftir rúmlega fimmtíu norræn tónskáld á
Norrænum músíkdögum, sem verða settir í Hörpu
6. október næstkomandi. Á dagskránni eru fjórtán
tónleikar, allt frá sinfóníutónleikum til kammer-,
kór-, raf- og barnatónleika og meðal flytjenda
eru Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput-hópurinn,
Kammersveit Reykjavíkur og Aldubáran Sinfon-
ietta frá Færeyjum og fjöldi þekktra einleikara, til
dæmis Víkingur Heiðar Ólafsson, Einar Jóhannes-
son, Anna Petrini og Eva Alkula.
Fjöldi verka verður frumfluttur á hátíðinni, þar
á meðal tónverk og hljóðgjörningar eftir þrjár
íslenskar konur. Ragnhildur Gísladóttir, tónskáld
og söngkona, Hafdís Bjarnadóttir, tónskáld og
djassgítarleikari, og Sólrún Sumarliðadóttir, tón-
skáld og sellóleikari úr hljómsveitinni Aaminu,
koma fram saman í fyrsta sinn.
Norrænir músíkdagar voru fyrst haldnir árið
1888. Í gegnum tíðina hafa sum af þekktustu tón-
skáldum sögunnar fengið verk sín flutt í fyrsta
sinn, til dæmis Sibelius og Grieg. Tónskáldafélag
Íslands er aðalskipuleggjandi hátíðarinnar í nánu
samstarfi við Norræna tónskáldaráðið.
Hátíðin, sem stendur til 9. október, hefst með
stórtónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og
finnskra einleikara á harmónikku og fiðlu í Eld-
borg. Við það tækifæri verður frumflutt verk eftir
ungt íslenskt tónskáld, Einar Torfa Einarsson,
sem pantað var sérstaklega vegna viðburðarins.
Miðasala er hafin og má nálgast miða á tón-
leikana í Hörpu og á midi.is. Nánari upplýsingar
um dagskrá má finna á nordicmusicdays.is.
Norrænir músíkdagar í næstu viku
VÍKINGUR OG SINFÓNÍAN Bæði Víkingur Heiðar Ólafsson og
Sinfóníuhljómsveit Íslands verða meðal flytjenda á Norrænum
músíkdögum, sem verða settir í næstu viku.
Tvær nýjar sýningar eftir gesta-
listamenn Skaftfells á Seyðis-
firði verða opnaðar nú um mán-
aðamótin, önnur eftir Barböru
Amalie Skovmand Thomsen, sem
er gestalistamaður í Skaftfelli
í ágúst og september, og sam-
starfskonu hennar Ullu Eriksen.
Hin sýningin er eftir Karin
Reichmut, sem er gestalista-
maður í Skaftfelli í september og
október.
Thomsen og Eriksen hafa
aðstoðað hvor aðra í mörg ár en
verkin sem þær sýna í Bóka-
búðinni, er þeirra fyrsta verk
sem þær vinna sameiginlega.
Svissneski listamaðurinn
Karin Reichmut sýnir ný verk á
Vesturveggnum.
Sýningar í Skaftfelli eru opnar
föstudaga til sunnudaga frá 14 til
20 eða eftir samkomulagi.
Tvær sýningar
í Skaftfelli
ÚR VERKI KARIN REICHMUT Reicmut
er frá Sviss og verður gestalistamaður í
Skaftafelli í október og nóvember.
Notkun og misnotkun sögunnar
verður til umfjöllunar á afmælis-
málþingi Sagnfræðingafélags
Íslands á laugardag. Fjórir sagn-
fræðingar halda erindi tengd efn-
inu; Íris Ellenberger, Guðni Th.
Jóhannesson, Lára Magnúsdóttir
og Guðmundur Hálfdanarson.
Málþingið er haldið í stofu 132 í
Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla
Ísland. Dagskráin hefst klukkan
13 og lýkur 16.30.
Rætt um
(mis)notkun
sögunnar