Fréttablaðið - 30.09.2011, Síða 64
30. september 2011 FÖSTUDAGUR36
Málþingið fjallar um hvers vegna svo erfitt reynist að fá viðbrögð
almennings og stjórnvalda í umhverfismálum og hvað geti verið til
ráða. Að loknum fyrirlestri leiðir Dr. Brynhildur Davíðsdóttir umræður.
Fundarstjóri verður Dr. Guðrún Pétursdóttir.
Til málþingsins bjóða Alþjóðleg kvikmyndahátíð (RIFF), Alþjóðamála-
stofnun Háskóla Íslands og Stofnun Sæmundar fróða, sem fagnar með
því 5 ára afmæli sínu.
Fyrir málþingið, kl. 14.00 verður heimildarmynd um Dr. Suzuki,
„Force of nature: The David Suzuki Movie“, sýnd í sama sal á
vegum RIFF.
ATH! Aðgangur að málþinginu er ókeypis, en miðaverð á
kvikmyndasýninguna er 1.100 kr.
Dr. David Suzuki
HVAÐ GETUM VIÐ GERT?
Einstakur viðburður: Dr. David Suzuki á Íslandi
Laugardaginn 1. október kl. 16.00
í sal 105 á Háskólatorgi
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-S
ÍA
Hinn víðfrægi heimildar-
mynda gerðar maður, þátta -
stjórn andi og umhverfis -
fræðingur Dr. David Suzuki,
fyrrum prófessor við
University of British Columbia,
heldur hátíðar fyrir lestur
á málþingi í Háskóla Íslands,
HVAÐ GETUM VIÐ GERT?
Góða skemmtun!
Aðgöngumiðaverð: 1.500.-
Nýtt band stígur á svið!
Ásgeir Óskarsson, Gunnar Þórðarson,
Jón Ólafsson og Óttar Felix Hauksson
Föstudagur 30. september 2011
Laugardagur 1. október 2011
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 30. september
➜ Tónleikar
18.00 Hljómsveitin Of Monsters
and Men flytur lög og áritar plötur
í 12 Tónum, Skólavörðustíg 15. Allir
velkomnir.
20.00 Tónleikarnir Í minningu Sissu
eru haldnir í Hofi á Akureyri. Tónlistar-
menn á borð við Óskar Pétursson, Frið-
rik Dór, Kristmund Axel og Pál Óskar
koma fram. Tónleikarnir eru til styrktar
Minningarsjóðs Sigrúnar Mjallar Jóhann-
esdóttur. Miðaverð er kr. 2.900.
20.00 Tónleikarnir Nýdönsk í nánd
verða haldnir í Samkomuhúsinu á Akur-
eyri. Þar leikur hljómsveitin Nýdönsk lög
sín ásamt því að segja sögur á bak við
lögin og textana, skandalana og stór-
sigrana. Leikstjóri er Gunnar Helgason.
Miðaverð er kr. 3.900.
20.00 Bubbi Morthens heldur tónleika
í Bergi á Dalvík. Miðaverð er kr. 2.500.
20.00 Fengjastrútur leikur ný ágeng
verk eftir íslenska og erlenda höfunda
í Hafnarhúsinu á hátíðinni Sláturtíð á
vegum S.L.Á.T.U.R. Aðgangur er ókeypis.
21.00 Um helgina verður haldin
trúbadorahátíð á Ob-La-Dí-Ob-La-Da á
Frakkastíg 8. Eggert Jóhannson, Gímald-
in, Skúli Mennski, Andrea Gylfa og Egill
Ólafsson koma fram í kvöld. Miðaverð
er kr. 1.000.
22.00 Rokkabillyband Reykjavíkur
heldur tónleika á Café Rosenberg.
22.00 Hljómsveitin Trums heldur
tónleika á Hressó. Eftir tónleikana þeytir
DJ Elli skífum.
23.00 Hljómsveitin Gullkistan stígur
á svið á Kringlukránni og spilar gamla
gullmola rokksögunnar. Þessa nýju
hljómsveit skipa Ásgeir Óskarsson,
Gunnar Þórðarson, Jón Ólafsson og
Óttar Felix Hauksson. Miðaverð er kr.
1.500.
➜ Leiklist
19.00 Sýningin Hárið í leikstjórn Jóns
Gunnars Þórðarsonar er sýnd í Hörpu.
Miðaverð er kr. 3.950.
20.00 Nemendaleikhús Listaháskóla
Íslands sýnir Á botninum eftir Maxim
Gorkí í Smiðjunni, Sölvhólsgötu 13.
Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson.
Miðaverð er kr. 1.500.
22.00 Pörupiltar og tvíeykið Viggó og
Víóletta sýna leiksýninguna Uppnám
í Leikhúskjallaranum í Þjóðleikhúsinu.
Miðaverð er kr. 2.900.
➜ Fundir
12.00 Dr. Diana Panke, stjórnmálafræ-
ðiprófessor við University College
Dublin á Írlandi, heldur erindi um
hversu mikil áhrif smáríki hafa í ákvarð-
anatöku innan Evrópusambandsins.
Fundurinn er á vegum Alþjóðamála-
stofnunar Háskóla Íslands og Rann-
sóknaseturs um smáríki og fer fram í
Odda 201 í Háskóla Íslands.
➜ Nýsköpun
17.30 Atvinnu- og nýsköpunarhelgi
Innovit og Landsbankans hefst á Suður-
nesjum. Þátttakendur mæta á staðinn
og fá innblástur og leiðsögn við að
byggja upp viðskiptahugmynd. Við-
burðurinn fer fram í húsnæði Keilis á
Ásbrú og þátttaka er ókeypis.
➜ Dansleikir
23.30 Hljómsveitin SOS frá Húsavík
slær upp dansleik á Spot í Kópavogi.
Ína Valgerður Pétursdóttir syngur. Miða-
verð er kr. 1.500.
➜ Kvikmyndahátíð
16.00 Kvik-
myndahátíðin
RIFF stendur fyrir
smiðjum um óháða
kvikmyndagerð á
Kexi Hosteli. Tvær
fara fram í dag. Fyrri
um heimildamyndir
með Peter Wintonick
og Frank Matter kl.
16. Seinni smiðjan
er um kvikmynda-
töku með Josef
Mayerhofer og Ara
Kristinssyni kl. 18. Þátttöku-
gjald fyrir eina smiðju
er kr. 700. Gjald fyrir
sex smiðjur er kr.
3.000 en kr. 2.000
fyrir handahafa
hátíðarpassa.
➜ Uppistand
22.00 Uppistand
með Hugleiki Dagssyni
og Önnu Svövu Knúts-
dóttur á Græna hattinum.
Miðaverð er kr. 2.000.
➜ Tónlist
20.00 Húsbandið leikur tónlist á
Prikinu. DJ Gísli Galdur þeytir skífum
eftir kl. 23.
21.00 DJ Glimmer spilar tónlist á
Trúnó.
22.00 DJ Benni þeytir skífum á Vega-
mótum.
22.00 DJ KGB stjórnar tónlistinni á
Boston.
22.00 DJ Dramatik þeytir skífum á
Barböru.
22.00 Housekell stjórnar tónlistinni á
Kaffibarnum.
23.00 Captain Fufanu þeyta skífum á
Faktorý.
23.00 DJ Halli Valli spilar tónlist á
Bakkusi.
23.30 DJ Hlynur Mastermix þeytir
skífum á Esju.
23.30 DJ Biggi þeytir skífum á Den
Danske Kro.
➜ Fyrirlestrar
12.15 Bernhard Gál og Belma Beslic-
Gál úr Vortex Project halda fyrirlestur
um margmiðlun í listsköpun sinni í
Hafnarhúsinu á hátíðinni Sláturtíð á
vegum S.L.Á.T.U.R. Aðgangur er ókeypis.
13.20 Arnþór Helgason, formaður
Kínversk-íslenska menningarfélagsins,
heldur fyrirlesturinn Stiklur um sam-
skipti Íslendinga og Kínverja frá 1760 til
2000 í Lögbergi 102 í Háskóla Íslands.
Fyrirlesturinn er haldinn í tilefni af 40
ára afmæli stjórnmálasambands Íslands
og Alþýðulýðveldisins Kína. Aðgangur
er ókeypis.
➜ Eldri borgarar
Korpúlfarnir, samtök eldri borgara
í Grafarvogi, standa fyrir sundleik-
fimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30
og listasmiðju sem hefst kl. 13.30 á
Korpúlfsstöðum.
Upplýsingar um viðburði send-
ist á hvar@frettabladid.is.
Tónleikaröðin Drullumall hóf
göngu sína á miðvikudagskvöld
í skúr við Austurbæjarskóla.
Verkefnið er ætlað fyrir ung-
linga í 8. til 10. bekk og eru það
félags miðstöðvar Kamps í mið-
borg Reykjavíkur og Hlíðum sem
hrintu því af stað í von um að efla
grasrótina í íslensku tónlistarlífi.
Hljómsveitirnar Gang Related
og Ofvitarnir spiluðu á fyrsta
kvöldinu en engin grunnskóla-
sveit er hluti af verkefninu.
„Kveikjan að verkefninu var
að það vantar alveg þær hljóm-
sveitir. Ég var búin að senda
póst um alla Reykjavík og fékk
engin svör frá unglingaböndum
sem vildu spila og mér finnst
það áhyggjuefni,“ segir Andrea
Marel, verkefnastjóri félags-
miðstöðvarinnar 105 í Háteigs-
skóla. „Við viljum breyta því og
kveikja hjá þeim áhuga til að
stofna hljómsveitir og spila.“
Allar hljómsveitir sem taka
þátt í tónleikaröðinni gefa vinnu
sína. Auk Gang Related og Ofvit-
anna hafa hljómsveitirnar Benn
Hemm Hemm, Prinspóló og
Reykjavík boðað komu sína. Tón-
leikarnir verða haldnir síðasta
miðvikudag hvers mánaðar í
félagsmiðstöðvum Kamps. - fb
Spila fyrir unglinga
Á DRULLUMALLI Fjöldi unglinga mætti á tónleikaröðina Drullumall sem hóf göngu
sína í skúr við Austurbæjarskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Faktorý er búinn að koma sterkur inn
og ég myndi segja að Vínbarinn sé van-
metinn. Það er búið að vera mikið af
skemmtilegum danstónlistarkvöldum
á Faktorý. Þar er pláss til að skekja
skankana. Ég reyni að elta það
dálítið. Það er líka mjög fínt að
fara á Vínbarinn eftir vinnu á
föstudegi og kíkja svo á Faktorý
um miðnættið.“
Besti barinn: Atli Bollason lífskúnstner
Faktorý og Vínbarinn
í uppáhaldi