Íslendingur - 12.02.1947, Qupperneq 2
2
lSLENÐlNGUR
MiSvikuHaginn 12. febrúar 1947
Sextugur:
Jðnas Rafnar, yfirlæknlr
Hver einasla manneskja, sem ég
hefi heyrt segja frá sr. Jónasi á
Hrafnagili og konu hans af eigin
sjón og raun, her þeim sama vitnis-
burð: Þau voru öndvegishjón.
Þetta rifjast upp núna, þegar elzti
sonur þessara ágætu hjóna fyllir
sjötta áratuginn. Vinsældir hans eru
miklar og almennar, eins og foreldra
hans. Mannkostir hans og hæfileik-
ar fara saman. Þar fer góður maður,
sem hann er. Jafnframt gáfum og
þeim samboðinn er lærdómur hans,
sem hann hefir aflað sér, hæði fyrr
og síðar, með óvenjulegri kostgæfni.
Það var rektor Latínuskólans, sem
sagði um J. R. og bekkjarbræður
hans, þegar þeir útskrifuðust, að það
væri í síðasta sinni, sem lærðir menn
útskrifuðust úr þeim skóla, og J. R.
var lærðastur inna lærðu. Hann var
meira að segja præisti, síðasti præ-
istinn úr gamla Latínuskólanum. Tók
hann hæstu ágætiseinkunn bæði í
grísku og latínu, en gríska og þre-
föld latína voru síðast til stúdents-
prófs vorið 1909, en þá varð Jónas
Rafnar stúdent. Auðvitað hafði faðir
hans húið hann framúrskarandi vel
undir skóla, en námsgáfurnar voru
líka miklar. Eftir það, að J. R. lauk
ársprófi 2. bekkjar í LaLínuskólan-
um, livarf hann um hríð frá námi
þar, vegna heilskubrests, fór þá utan
og dvaldist með Oddi hróður sín-
um vetrarlangt að námi í Askov lýð-
háskóla, en að því loknu settist hann
í 3. bekk Latínuskólans og hélt þar
áfram námi, sem fyrr segir.
Eftir stúdentsprófið kemur svo
vandinn, að velja lífsstarfið. J. R.
var snemma ráðinn í því að vera
læknir, og haustið 1909 gekk hann í
Læknaskólanum gamla og lauk em-
bættisprófi í Háskóla Islands vorið
1914, með hárri I. einkunn. Næsta
ár var hann settur héraðslæknir í
Síðuhéraði, en næstu árin, 1915—
1918, var hann við framhaldsnám i
Danmörku og aðstoðarlæknir við
heilsuhæli þar um hríð (Vejlefjord).
Árið 1919 gerðist hann starfandi
læknir á Akureyri og var þar sam-
fleytt 8 ár. Mikinn part síðasta árs-
ins, sem hann var búsettur á Akur-
eyri, dvaldist hann erlendis til undir-
búnings undir yfirlæknisstarf sitt.
Kristneshæli var þá í undirbúningi,
og enginn ágreiningur var um það,
að Jónas Rafnar yrði þar yfirlæknir.
Tók hann við því starfi, er hælið hóf
göngu sína haustið 1927. Má óhætt
segja, að hann hafi jafnan verið á-
trúnaðargoð sjúklinganna. Þeir
treysta honum og elska hann, eða svo
hefir mér verið skýrt frá. Sérfróðir
menn segja, að Jónas Rafnar sé mjög
vel að sér í sinni mennt. Hann er
vissulega réllur maSur á réttum stað.
Það er gæfa fyrir hann og stofnun-
ina.
En J. R. er meira en læknir. Hann
cr maður einkar fjölhæfur. Faðir
hans var það líka, og J. R. er sagður
utn margt líkur honurn. Séra Jónas
var hæði skáld og fræðimaður. Það
er nafni hans og sonur líka. Fyrsta
saga J. R. held ég að hafi komið út
í Skírni (Talað á milli hjóna) 1915.
Kýmnigáfa er honum veilt í ríkum
mæli. Það sýna margar sögur hans.
Flestar þeirra liafa komið út í Nýj-
um Kvöldvökum, er J. R. hefir stutt
vel og rækilega með aðalritstjóra
þeirra og útgefanda, Þorsteini M.
Jónssyni. Þá hefir hann og gefið út
ið merka þjóðsagnasafn „Grímu“
með Þ. M. J. og lagt til þess gott efni
og mikið. — Það er koniinn tími til
að fá gefnar út sögur Jónasar Rafn-
ar í einni heild. Er erfitt að ná í þær,
þar sem þær eru dreifðar víða, þó að
flestar séu í N. Kv.
Þættir J. R. um einstaka menn o.
fl. sýna ótvíræða rithöfundar- og
fræðimanns-hæfileika hans.
Jónas Rafnar er kvæntur Ingi-
björgu Bjarnadóttur prófasts í Stein-
nesi Pálssonar, ágætri konu, og eiga
þau þrjú uppkomin hörn á lífi, öll
mannvænleg, Jónas cand. jur., Bjarna
stud. med. og Þórunni stúdent. Er
heimili þeirra hjóna fagurt, aðlað-
andi og' gestum gott.
Faðir Jónasar prófasts á Hrafna-
gili var Jónas Jónsson frá Guðrúnar-
stöðum og síðar á TJlfá í Eyjafirði.
Var kona hans og móðir sr. Jónasar
Guðríður Jónasdóttir bónda á Hall-
dórsstöðum í Eyjafirði Guðmunds-
sonar. Varð Jónas sá læknir ágætur
og nafnkenndur víða, þó að ekki
væri hann skólalærður. Fengu Skag-
firðingar hann vestur fyrir lækni
(bjó á Tunguhálsi) og Svínvetning-
ar um hríð vestur að Geithömrum.
Var hann þar vestra nær 20 vetra,
en norður hingað fluttist hann 1890
að Hrafnagili, til sonar síns, þá sex-
tugur að aldri, en það var fimm ár-
um síðar, að haustlagi, að hann
drukknaði í Djúpadalsá í Eyjafirði,
og var þá í læknisferð. — Séra Jón-
as fór með lækningar sem faðir hans,
og þótti heppinn læknir sem ýmsir
merkisklerkar fyrr á tíð, en fyrsti
lærði læknirinn í karllegg þessum er
yfirlæknirinn í Kristnesi.
Móðir Jónasar yfirlæknis (kona
sr. Jónasar) var Þórunn Stefánsdótt-
ir í Hlöðutúni í Stafholtstungum,
Péturssonar sýslumanns Mýramanna,
Oddssonar nótaiíuss, Stefánssonar
prests á Höskuldsstöðum Ólafssonar,
en hálfbróðir Odds var Ólafur stift-
amtmaður Stephensen, faðir Stefáns
amtmanns á Hvítárvöllum, föður
Magnúss sýsluinanns Rangæinga,
föður Magnúss landshöfðingja. En
móðir frú Þórunnar var Anna Guð-
mundsdóttir frá Hvítárvöllum Svein-
björnssonar, bróðurdóttir Þórðar
háyfirdómara Sveinbjörnssonar.
Frú Þórunn missti föður sinn ung.
Var hún þá tekin í fóstur af Helgu,
móðursystur sinni, konu Kristófers
Finnhogasonar á Stóra-Fjalli, en
meðal barna þeirra var Pétur á Stóru
borg og Þórunn, móðir Jóns pósts í
Gallarholti. En suður í Reykjavík
fluttist Þórunn Stefánsdóttir á ung-
lingsárum, og dvaldist hún þá um
hríð með móður sinni, en þar syðra
kyntist hún Jónasi, er varð maður
hennar síðan. Fékk sr. Jónas Hrafna-
gil um haustið 1884. Fyrst voru þau
á Espihóli, og þar fæddist Jónas son-
ur þeirra 9. febr. 1887; svo voru þau
um hríð á Stokkahlöðum, en lengst-
um á Hrafnagili.
Svo segir mér sr. Benjamín Krist-
jánsson, að karllegg Jónasar yfir-
læknis og þeirra bræðra megi rekja
lil Ólafs Skagfirðings, er norður
fluttist á 17 öld, en áður átti að
hafa búið í Valadal vestra og á Keldu
landi. Ein heimild segir Ólaf þann
kominn af Grími lögmanni á Ökr-
um vestra Jónssyni, en hvað sem því
líður, er mikill ættbogi af Ólafi þess-
um runninn í Eyjafirði.
Jónasi yfirlækni Rafnar árnum
vér allrar blessunar á sextugsafmæli
hans. Allur líkur virðast benda til,
að hann reynist einnig præisti við
lífsprófið mikla, eins og fyrrum í
gamla skólanum.
B. T.
Mjög gestkvæmt var á heimili
Jónasar Rafnar á sunnudaginn. —
Ideimsótti hann mikill fjöldi sveit-
unga hans og Akureyringa og fluttu
honum heillaóskir og gjafir. Einnig
barst honum fjöldi heillaskeyta víðs-
vegar að.
Þorsteinn M. Jónsson, skólastjóri,
færði yfirlækninum fagurlega inn-
bundið skrautritað ávarp frá 60
Akureyringum, vinum hans. Báðu
þeir hann þar að sitja fyrir hjá
Ríkarði Jónssyni, myndhöggvara, á
sumri komanda, svo að listamaður-
inn gæti gert af honum hrjóstlíkan.
Væri ætlun þeirra að afhenda hon-
um brjóstmynd þessa til eignar í
þakklætisskyni fyrir hans ágætu og
þjóðnýtu störf. Jafnframt hygðust
þeir láta steypa eirlíkan af myndinni,
er afhent skyldi Kristneshæli til eign-
ar. Þorsteinn M. Jónsson flutti síðan
snjalla og mjög hlýlega ræðu fyrir
minni yfirlæknisins. Gat hann þess,
að Jónas Rafnar væri ekki aðeins
ágætur læknir, sem nyti einstæðra
vinsælda sjúklinga sinna og allra, er
honum kynntust, heldur einnig vand-
virkur og mikilhæfur fræðimaður og
skáld, og hefði hann þegar hlotið al-
þjóðar viðurkenningu á því sviði.
Frá Eyfirðingum bárust ýmsar
bókagjafir og vandað málverk, frá
sjúklingum á Kristneshæli tveir for-
kunnar fagrir ljósastjakar úr silfri,
en frá starfsfólki hælisins útskorinn
borðlampi, mjög vandaður. Margar
aðrar gjafir bárust.
Þessi merkisafmælisdagur Jónas-
ar Rafnars sýndi glögglega þær ein-
stöku vinsældir, sem hann hefir afl-
að sér á liðnum árum. Mun enda
leitun á drenglyndari og ástúðlegri
manni. Óskar „íslendingur“ honum
og fjölskyldu hans gæfu og farsæld-
ar í framtíðinni og vonar, að íslenzka
þjóðin fái enn um langt skeið að
njóta starfskrafta Jónasar Rafnars.
NÝJA-BÍÓ
Miðvikudagskvöld kl. 9:
HryllingsHúsið
Börn innan 16 ára fá ekki aðgang.
Ekki fyrir taugaveiklað' fólk.
Fimmtudagskvöld kl. 9:
Hryllingshúsið
Föstudagskvöld kl. 9:
Draugabúgarðurinn
Bönnuð innan 14 ára.
(í síðasta sinn).
Laugardag kl. 6:
Valsakóngurinn
Laugardagskvöld kl. 9:
í Víking
Bönnuð innan 12 ára.
Sunnudag kl. 3:
Barnasýning
(SMÁMYNDIR).
Sunnudaginn kl. 5:
Valsakóngurinn
Sunnudagskvöld kl. 9:
Hryllingshúsið
í síðasta sinn.
Skjaldborgarbíó
Miðvikudagskvöld kl. 9:
Ásfrarbréf
(Jólamynd .Tjarnarbfós)
Fimmtudagskvöld kl. 9:
Eldibrandur
Föstudagskvöld kl. 9:
Reimleikar
Laugardaginn kl. 5:
Flóffinn í eyðimörkinni
Laugardagskvöld kl. 9:
Eldibrandur
Sunnudaginn kl. 5:
Reimleikar
(í síðasta sinn).
Sunnudagskvöld kl. 9:
Ásfarbréf
-----------.-----------^----------------------—-------------
ÞAKKA KÆRLEGA öllum þeim fjær og nœr, sem votluðu mér
vináttu og virðingu á sextugsajmœli mínu með heimsóhium, gjöj-
um heillaóskum.
JÓNAS RAFNAR Kristnesi.
f<fi^f<fff>'*f>fff<f>'*f>f>f,f,fS>'r','>f,f,f,',',f,',fS,',',',',',',',',',',',','>f,f,f+f,f,<,f,','X
Þ A K K I R
Hugheilar þakkir mínar votta. ég öllum þeirril sem
héldu mér samsœti, mér til ógleymanlegrar ánœgju á sjö-
tugsafmœli mínu 7. þ. m. og með heillaóskum og á annan
hátt sýndu mér vinarhug.
Sérstaklega þakka ég einnig Alþýðuflokksfélagi Ak-
ureyrar, stjórn Kaupfélags Verkamanna Akureyrar og fleir-
um, sem gáfu mér rausnarlegar gjafir á þessum afmœlisdegi
mínum.
Akureyri, 10. febrúar 1947.
ERLINGUR FRIÐJÓNSSON.
TÓNLEIKAR
TIL ÁGÓÐA FYRIR
SJÚKRAHÚ SIÐ
SÍÐASTLIÐIÐ fimmtudagskvöld
efndu karlakórar Akureyrar, Gösta
Myrgart, söngkennari, og Theo An-
dersen, fiðluleikari, til hljómleika í
Akureyrarkirkju til ágóða fyrir
sjúkrahúsið nýja á Akureyri. Var
kirkjan fullskipuð og hljómleikarn-
ir mjög ánægjulegir.
Geysir og Karlakór Akureyrar
sungu sín þrjú lögin hvor og að end-
ingu „Island ögrum skorið“ sameig-
inlega. Gösta Myrgart lék einleik á
orgel og Thoe Andersen einleik á
fiðlu. Auk þess söng Gösta Myrgart
tvö lög.
Guðmundur Karl Pétursson,
sjúkrahússlæknir þakkaði kórunum
og hinum erlendu listamönnum fyr-
ir ágætan og fagran skerf til stuðn-
j ings því mikla mannúðar- og menn-
| ingarmáli að koma fjórðungssjúkra-
| húsinu á Akureyri sem fyrst upp.
STÚLKA
óskast nú þegar í Samkomuhús bæj-
arins vegna veikindaforfalla. Nánari
upplýsingar gefur
Sara Benedikfsdóftir
Samkomuhúsinu.
SendisveiQ
vantar á símastöðina
nú þegar.
Gott kaup.
Aðaifundar
Akureyrardeildar í Sögufé-
lagi Skagfirðinga
verður haldinn í bæjarsljórn-
arsalnum á Akureyri sunnu-
daginn 16. febr. kl. 2. Venju-
leg aðalfundarstörf, og rælt
um breytingu á starfstilhögun
deildarinnar.
STJÓRNIN.