Íslendingur - 12.02.1947, Page 8
NÝIR KAUPENDUR aö Jslend-
ingi" geta enn fengið ókeypis
fjölbreyH- jóiablað og hina
skemmtilegu framhaidssögu fró
upphafi. Gerizt því kaupendur
þegar í dag.
MiSvikudaginn 12. febrúar 1947
AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ!
Vegna stóraukinnar sölu blaðs-
ins borgar sig æ betur að qug*
lýsa í því. Mursið að koma aug-
lýsingum til afgreiðslu blaðsins
fyrir hódegi á þriðjudaga.
Sýníngar á „Skálhalti” hetjast 1 oæstn viku.
I. O. 0. F„— 1282148% — 9 — II.
Verkakvennafélagi'ð Eining heldur aðal-
fund sinn í Verklýffshúsinu sunnudaginn
16. febr. 1947, kl. 4 e. h. — Konur, fjöl-
menniff!
Aðalfundur Akureyrardeildar í Sögufé-
lagi Skagfirðinga verffur haldinn í bæjar-
stjórnarsalnum á Akureyri n. k. sunnudag
kl. 2 síffdegis. Rætt verffur m. a. um aff
breyta deildinni í almennt Skagfirffingafé-
lag meff föstu árstillagi, óháffu útkomu ár-
bókanna. Allir Skagfirffingar, og kaupend-
ur ritanna, eru velkomnir á fundinn.
Kvennadeild Slysavarnafélags íslands,
Akureyri, þakkar hjartanlega bæjarbúum
ágætan stuðning á fjársöfnunardegi deild-
arinnar 2. febr. sl., sem og hótelstjóra, hr.
Erik Kondrup, er léði okkur hóteliff, end-
urgjaldslaust, og sýndi okkur höfðingsskap
í einu og öllu. — Þá þökkum viff hinni á-
gætu dönsku hljómsveit fyrir þann skerf,
sem hún lagffi til.
Söngœfing verffur hjá Kvennadeild
Slysavarnafélags íslands, Akureyri, í
kirkjukapellunni miðvikudaginn 12. þ. m.
kl. 9 e. h.
Ath. Dansleik heldur hjónaklúbburinn
Allir eitt laugardaginn 15. febr. n. k.
Höfingnleg gjöf til nýja sjúkrahússins.
Sl. sunnudag afhenti hr. læknir Friðjón
Jensson mér sparisjóðsbók, sem hann hafði
lagt inn í kr. 20.051.61, og gaf til styrktar
hinum nýja spítala hér á Akureyri. Um
leið og ég viðurkenni móttöku þessarar
stórhöfðinglegu gjafar, vil ég fyrir stofn-
unarinnar hönd, færa gefandanum hinar
beztu þakkir og það því fremur, sem hann
hefir áður látið af hendi rakna mjög mynd-
arlegar fjárgjafir í sama skyni.
G. Karl Pétursson.
20—30 þús. kr.
óskast gegn 1. veðrétti í nýju húsi.
Tilboðum — sem einnig greini vaxta-
upphæð — sé skilað á afgreiðslu ,,ís-
lendings“ fyrir 20. þ. m. merkt:
„Góðir vextir“.
TIL SÖLU:
GÖTA-MÓTOR, 3—4
Selst fyrir hálfvirði.
hk.
A.-
v. a.
P/tmd-HARMONIKA
til sölu.
Stefán Halldórsson,
Ægisgötu 18, Akureyri.
Kvensloppar, hvítir
Svuntur, mislitar.
Verzlun Björns Grímssonar,
Sími 256
Kaupi góða
leista og
sjóvettlinga.
Verzlun Björns Grímssonar,
Sími 256
Frú Regína Þórðardóítir leikur hlutrerk júmfrú
Ragnhelðar.
Leikfélag Akureyrar hefir undanfarið æft af kappi hið
stórbrotna leikrit Guðmundar Kamban „Skólholt". Eins
og flestum mun kunnugt, er efni þess sannsögulegt, og
hefir Karnban gert þetta leikrit eftir hinu mikla skóld-
verki sínu með sama nafni. Hefir Leikfélagið sýnt mik-
inn stórhug að róðast í sýningu þessa leikrits, og munu
margir bíða þess með óþreyju að sjó það. Leikfélagið
hefir jafnframt verið svo heppið að fó hina kunnu leik-
konu, frú Regínu Þórðardóttur, til þess að fara með hlut-
verk jómfrú Ragnheiðar.
„íslendingur“ hefir snúið sér til
stjórnar Leikfélags Akureyrar, spurzt
fyrir um tildrög þess, að Leikfélag-
ið réðist í að sýna þetta mikla leikrit
og undirbúning að sýningunum. Gaf
stjórnin blaðinu eftirfarandi upplýs-
ingar um þetta:
Að öllu forfallalausu sýnir Leikfé-
lag Akureyrar sjónleikinn Skálholt
eftir Guðmund Kamban í fyrsta sinn
í næstu viku.
Þetta er eitthvert stærsta leikrit,
sem komið hefir á svið á íslandi, en
Leikfélag Reykjavíkur tók það til
sýninga á síðastliðnu leikári og var
það feiki vel sótt þar. Er vafasamt að
Leikfélag Akureyrar hefði ráðizt í
annað eins stórvirki, ef eigi hefði
viljað svo til að félagið er þrjátíu
ára gamalt á þessu leikári. Þótti við-
eigandi í tilefni þess að taka til
meðferðar eitthvað, sem bragð væri
að. En á afmæli félagsins í apríl n.
k. mun síðar verða sérstök afmælis-
sýning og ef til vill með öðru sniði
en venja er til hér.
Mjög vel hefir verið vandað til
sýningar k Skálholt, meðal annars
verið fengin frá Reykjavík frú Re-
gína Þórðardóttir til að leika hlut-
verk Ragnheiðar Brynjólfsdóttur, en
það hlutverk lék frúin þar og þótti
gera það af hinni mestu snilld og
skilningi. Brynjólf biskup leikur Jón
Norðfjörð, Daða Halldórsson leikur
Guðmundur Gunnarsson og Helgu
Magnúsdóttur í Bræðratungu leikur
Svava Jónsdóttir. Önnur hlutverk,
sem eru minni, eru einnig vel setin.
Með þau fara: Anna Tryggva, Björn
Sigmundsson, Freyja Antonsdóttir,
Hólmgeir Pálmason, Ingólfur Krist-
insson, Jónína Þorsteinsdóttir, Jenný
Jónsdóttir, Jóhann Ögmundsson, Jón
Ingimarsson, Júlíus Oddsson, Jón
Bernharðsson, Sigurjóna Jakobsdótt-
ir, Sigmundur Björnsson, Stefán
BRÍDGEKEPPNI
í meistaraflokki Bridgefélags Akureyrar hefst n. k. sunnudag 16. þ.
m. kl. 1 e. h. að Gildaskála KEA.
Keppt verður um Morgunblaðsskjöldinn.
Aðgangur seldur meðan húsnæði leyfir.
Stjórn og keppnisnefnd B. A.
Halldórsson, Sigríður Schiöth og
Þórir Guðjónsson.
Leiktjöld verða hin fegurstu, mál-
uð af Hauk Stefánssyni. Búningar
allir fengnir lánaðir hjá Leikfélagi
Reykjavíkur og mjög mikið í þá bor-
ið. Músikstjóri verður Jóhann Ó.
Haraldsson, tónskáld.
Leikstjóri er Jón Norðíjörð.
Leikfélagið mun nú og framvegis
breyta til með aðgöngumiðasölu frá
því sem verið hefir og eru leikhús-
gestir beðnir að kynna sér það vand-
lega á auglýsingum félagsins þegar
þær verða festar upp.
Vöruhúsið h.f.
6«
mtooocMt
0
Agætar
rúmíýnur
nýkomnar.
Vömhúsið h.f.
Vind^
sængurnar
eru komnar.
FATAVERZLUN
TÓMASAR BJÖRNSSONARhf.
Húlstreflar
— mikið úrval —
nýkomnir í
FATAVERZLUN
TÓMASAR BJÖRNSSONAR hf.
Höfuð-
slæður
— mjög fallegar —
"nýkomnar í
FATAVERZLUN
TÓMASAR BJÖRNSSONARhf.
Hvltir
vasaklútar
margar tegundir
nýkomnir í
Fataverzlun
Tómasar Björnssonar h. f.
Karlmanna-
nærföt
nýkomin í
Fataverzlun
Tómasar Björnssonar h. f.
»&6^SSSS!&SfcsSS&!&SSsS!SsSs5!&sS!5!6sSSSSSSSS5;<
Rúsprjónaðir
kvenvettlingar
nýkomnir í
Fataverzlun
Tómasar Björnssonar h.f.
Hraðsaumavélar
— 4 stk. — með mótor,
sauma fram og aftur, til
sölu hjá
Eiríki Kristjánssyni.
Simi 373.