Íslendingur


Íslendingur - 24.09.1947, Page 8

Íslendingur - 24.09.1947, Page 8
VANTAR STARFSSTÚLKUR í Sjúkra- hús Akureyrar 1. okt. Upp- lýsingar í síma 107. leudinmví Miðvikudagur 24. september 1947 TIL LEIGtf 2—-3 herbergi með sér- inngangi í nýju húsi, sem til verður upp úr næstu mánaðamótum. A. v. á. asastEtsaffiHí I. 0 . O. F. — 1299268% — Frl. — □ Rún:. 59479247 — 1. Messufall verður í Akureyrarkirkju n. k. sunnudag'vegna fjarveru prestanna úr bæn- um. Vegna aðalfundar Prestafélags Islands og aldarafmælis Prestaskólans verða þeir vígslubiskup séra Friðrik J. Rafnar og séra Pétur Sigurgeirsson fjarveranli úr bænum frá 26. sept. til 4. okt. í fjarveru jieirra þjóna nágrannaprestarnir, eftir því sem til næst. Zíon. Samkoma n. k. sunnudag kl. 8.30. Hjúskapur. Þann 20. sept. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju, af séra Pétri Sigurgeirssyni, ungfrú Jóhanna Bogadóttir og Ásgeir Áskelsson, skipstjóri. Heimili þeirra er Hafnarstræti 64. Hjónaefni. Trúlofun sína opinberuðu sl. laugardag ungfrú Margrét Oddgeirsdóttir, símamær, og Grímur Björnsson, stúdent, bæði búsett á Akureyri. Hjúskapur. Sl. laugardag voru gefin saman í hjónaband í Stokkhólmi ungfrú Gerda Versteegh og Sigvaldi Sigvaldason frá Akureyri, fyrrum sendiráðsritari í Stokkhólmi. Sextugur varð sl. föstudag Sigurður Sig- urSsson, sýslumaður Skagfirðinga. IJann hefir verið sýslumaður Skagfirðinga síðan árið 1924 og unnið sér þar miklar vin- sældir. Stúkan Ísafold-Fjallkonan hefur vetrar starf sitt með fundi næstk. mánudag 29. }). m. kl. 8.30 í Skjaldborg. Það er mjög áríðandi að félagar mæti á þessum fyrsta fundi og komi helzt með nýja félaga. Yrais störf liggja fyrir fundinum, meðal annars verður sagt frá síðasta Stórstúkuþingi Sjá nánar í auglýsingakassa Skjaldborgar bíós. Akureyringar! Munið, að nýir félag ar eru alltaf velkomnir í reglu Góðlempl ara. Félagar mætið. Áheit á Strandarkirkju kr. 100 frá A. J Móttekið á afgr. Islendings og sent áleiðis Hjálprœðisherinn á Akureyr.i. Sunnutl 28. sept. kl. 11 helgunarsamkoma. Kl. sunnudagaskólinn byrjar. Kl. 8.30 hjálp ræðissamkoma. Allir velkomnir! Mánud 29. sept. kl. 8.30 æskulýðsfélag. Allir ung ir velkomnir! Akureyringar! Jenny Renslo frá Noreg mun tala á samkomu í Verzlunarmannahús inu annað kvöld, fimmtudagskvöld kl 8.30 e. h. Samkoman verður einnig sunnud. 28. sept. kl. 8.30 e. h. Allir vel- komnir. — Fíladelfía. Karlakór Akureyrar. Kórfélagar beðnir að mæta í Verklýðshúsinu í kvöld, mið- vikudag, kl. 8.30 e. h. Firmakeppni Golfklúbbs Akureyrar er nú langt komin, og verður sennilega lokið n. k. fimmtudag. Þessi firmu eru eflir: Sportvöru- og hljóðfæraverzlunin, Sauma- stofa Gefjunar, BSA og Vélaverkstæðið Atli h.f. Kvennadeild Slysavarnarjélags lslands, Akureyri, heldur hlutaveltu í Samkomu- húsi bæjarins sunnudaginn 28. sept. kl. 4 Bjargráð bolshevika Telja kommúnistaforíngjarnir íslenzka alþýðu algerlega dóm' greindarlausa? Kross/erð kominánistajoringjanna uin landið til þess að Iwetja almenn- ing til andstöðu gegn vœntanlegum ráðstöjunum ríkisstjórnarinnar og al- þingis til þess að koma jjárhag og atvinnulíji þjóðarinnar á öruggan grundvöll, hefir vakið andúð allra þjóðhollra Islendinga. Fundir lcomm- únista hafa líka verið jásóttir og lítil hrijning, jajnvel lijá sanntrúuðum kommúnistum, enda haja blekkingar lcommúnistaforingjanna verið svo augljósar, að jlestum hejir ofboðið. Þessi lcrossjerð kommúnisla minnir mjög á áróðursherjerð Framsóknarmanna gegn nýsköpunarslejtiunni hauslið 1944, og er ekki óliklegt, að niðurstaðan verði svipuð, ej þjóðin sýnir nú sömu dómgreind og þá. Kommúnistar munu hafa talið mikiö við liggja að reyna að vinna upplausnarskoðunum sínum fylgi hér á Akureyri, því að hingað voru send- ar þrjár helztu stjörnur flokksins: Sigfús Sigurhjartarson, Einar 01- geirsson og Þóroddur Guðmundsson. Steingrímur fékk að vera fundar- stjóri. „Verkam.“ telur fund þeirra fé- laga hafa verið sérstaklega glæsileg- an. Það er gott, að þeir eru ánægðir með lítið, því að naumast verður það talið feikileg fundarsókn, þótt 170 manns komi á fund í Samkomuhús- inu — og ekki virtist hrifningin mik- il hjá öllum. Ekki munu kommún- istaforkólfarnir hafa treyst um of á málflutning sinn, því að ekki hættu þeir á að hjóða öðrum flokkum til andsvara. Hér er ekki rúm til að rekja ræður þeirra félaga, en drej)ið skal á nokk- ur atriði til þess að sýna, hversu furðulegar fjarslæður þeim dalt í hug að hera á borð fyrir áheyrend- ur sína. Snjallræði Sigfúsar. Sigfús Sigurhjartarson ræddi að- allega dýrtíðarmálin og þær ráðstaf- anir, sem stjórnin hyggðist gera. Ekki gat hann neitað því, að dýrtíð- in væri að sliga atvinnuvegina, en úrræði ríkisstjórnarinnar í því máli væru mjög svívirðileg. Að vísu kom það ujap úr dúrnum, að hann hafði ckki hugmynd um, hvað ríkisstjórn- in ætlaði að gera, en hann taldi bara engan vafa á því, að það væri eitt- hvað ljótt, því að ríkisstjórnin hat- aði alþýðuna svo mjög, að hún vildi gera henni allt til miska. Sigfús taldi ótækt að leysa dýrtíð- ina með því að lækka kauj) og verð- lag innanlands. Sagði hann, að í e. h. Dans kl. 10 um kvöldið. Hljómsveit Oskars Osbergs. Tónlistarskóli Ákureyrar verður settur í Geysishúsinu miðvikud. 1. okt. kl. 2 e. b. Reykjavík væru 200 menn, sem ættu um 600 milj. í eignum og hefðu um 50 milj. kr. í hreinar tekjur. Flestir þessara manna væru heildsalar. Sig- fús kvað því augljóst, að vandamál atvinnuveganna mætti leysa með því að taka þessar eignir og þjóðnýta verzlunina. Síðan átti að nota gróð- ann af verzluninni til þess að borga uppbætur á útflutningsvörurnar og þannig átti allt að vera í bezta lagi, og alþýðan að losna við allar álögur. Sagt er, að ýmsir kommúnistar séu stórhrifnir af þessu snjallræði Sigfúsar. Er það sannarlega ekki að furða. Við nánari athugun fer þó mesti ljóminn af hugmyndinni. Hér skal ekkert 'um það fullyrt, hversu réttir útreikningar Sigfúsar á eignum „hinna 200 ríku“ séu. Töl- una kvaðst hann sjálfur hafa fengið út með því að finnnfalda fasteigna- matsverð eignanna. Hann mun hafa tekið hlutafélögin sem einstaklinga og er vitanlegt, að ýms hlutafélög eiga jafnvel tugmiljónir í eignum, enda er það hin mesta rangfærsla lijá Sigfúsi, að eignir þessar séu að mestu leyti lúxuseignir heildsala. Það liggur í augum uj)pi, að félög, sem eiga skip, verksmiðjur og ýms- ar fasteignir, sem með hinu háa verð- lagi nú eru margra miljóna virði, hafa aUs ekki neina aðstöðu til þess að koma þessu í peninga og hafa jafnvel oft lítinn arð af þeim. Þótt ríkið tæki slíkar eignir, sér hver maður, .að ekki verða þær notaðar til þess að bæta útflutningsvörurnar. Sú staðhæfing Sigfúsar, að 200 menn, aðallega heildsalar, hafi haft síðastliðið ár um 50 milj. kr. hrein- ar tekjur, getur ekki haft við rök að styðjast. Samkvæmt skýrslu verðlags- eftirlitsins, sem prentuð var með skýrslu hagfræðinganefndarinnar, var öll heildsöluálagning 1945 sam- tals um 34 milj. kr. brúltó. Þá var eftir að draga frá allan verzlunar- kostnað og opinber gjöld. Þótt gera megi ráð fyrir allmiklu hærri upp- deila urn það, hvort féð ætti að liggj a hjá verkamönnuin eða heildsölum. Eftir því að dæma ættu heildsalar að eiga öll framleiðslutæki í landinu, því að ekki fá verkamenn við fram- leiðslustörf á annan hátt fé frá heild- sölunum. Einar sagði, að miljónamæring- arnir vildu eymd, og ríkisstjórnin væri í vasa þeirra. Sigfús sagði hins vegar, að ríkisstjórnin segði atvinnu- rekendum fyrir verkum. Allur ann- ar málílulningur var í svijmðum anda. hæð á árinu 1946 er þetta samt fjar- stælt — nema ef Sigfús hefir lalið tekjurnar áður en þær höfðu verið skattlagðar, en þá fer dæmið að líta öðruvísi út. En gerum nú ráð fyrir, að sú til- laga Sigfúsar yrði samþykkt, að leggja alla innflutningsverzlunina undir ríkið og nota ágóðann af henni til að horga upj)bætur á afurðirnar. Með sömu álagningu á vörur yrðu brúttótékjurnar af ríkisverzluninni naumast yfir 40 milj. kr. Ef dæma skal eftir reynslunni, má gera ráð fyrir, að einhver kostnaður verði við þessa blessaða ríkisverzlun, naumast ur.dir 10 milj'. kr. Nú í ár er búizt við, að ríkið verði að greiða 70—90 milj. kr. í uppbætur á framleiðsluna. Yöruverðið yrði því að hækka veru- lega. Naumast mun Sigfús vilja láta fa:sa vísitöluna, og myndi hún því hækka. Afleiðingin yrði enn meiri framleiðslukostnaður. Þá yrði aftur að hækka vöruverðið til þess að geta greitt nægilegar uppbætur á fram- leiðsluna og þannig koll af kolli. Og kemur það ekki niður á allri al])ýðu, ef vöruverðið er hátt? Allir hljóta að sjá, hvílík hringavitleysa þetta er. Efcki er öíl vitleysan eins. En það var fleira skrýtið í ræðum þeirra trúbræðranna en þetta. Þór- oddur Guðmundsson kyrjaði gamla sönginji urn vondu ríkissljórnina, sem neitaði að selja afurðir þjóðar- innar fyrir hátt verð. Þjóðir Austur- Evrópu áttu að vilja greiða miklu hærra verð en allir aðrir fyrir vör- ur okkar. Þóroddur minntist jafnvel á útskipunarmanninn Semanov, sem íslenzka sendinefndin sá aldrei í ferð sinni til Rússlands. Ekki minnt- ist Þóroddur á það, að kommúnistar áttu fulltrúa í sendinefndinni til Rúss- lands og ekki laldi hann Rússa hafa viijað borga meira fyrir afurðir okk- ar. Hann minntist heldur ekki á þau ummæli rússnesku fulltrúanna, að Rússar verzluðu fyrst og fremst við þá, sem boðið gætu vörur með bezt- um kjörum. Og hver myndi ekki gera það? Eftir að Sigfús hafði bollalagt um hina 200 ríku, sem hann sagði að væru einkum heildsalar, sagði hann, að kaupdeilur væri raunverulega O P N U M á morgun (fimmdudag) í hinum nýju húsakynnum Aðalstræti 5. — Þar munum við hafa : Matvöru, allsk., hreinlætisvöru, búsáhöld, tóbaks- og sælgætisvörur og margt fleira. VERZL. BRYNJA, sími 478. Álþýðan hwgsar. EINAR sagði réttilega, að íslenzk alþýða væri athugul og léti ekki telja sér trú um hvað sem væri. Hann komst saml að þeirri niðurstöðu, að ástæðan lil þess, að ekki vildi nema lítill hluti alþýðunnar fylgja konun- únistujn, væri sú, að alþýðan nennti ekki að hugsa! Því miður fyrir Einar, er fyrri staðhæfing hans rétt. Fólkið hugsar, og því hlær það að þvættingi komm- únista. Það lætur enginn heilvita maður telja sér trú um það, að það sé gróði fyrir ríkisstjórnina að reyna að skapa eymd jneðal fólksins. Enginn óvitlaus mað- ur myndi telja slíkt vænlegt til fylg- is, og Einar sagði, að ráðherrarnir væru alls ekki vitlausir menn! Hver trúir því líka, hversu bölvaða sem hann telur heildsala vera, að þeir vilji eymd hjá ahnenningi? Hver á þá að kaupa vörur þeirra? Þessi málflutjiingur kommúnisla gæti án efa gengið x Rússlandi og í hinum miklu „lýðræðisríkjum“ Ausl- ur-Evrópu. Þar er heldur ekki til þess ætlazt, að fólkið hugsi, enda kemur það sér betur. Jslenzka þjóðin kann hins vegar ekki við slíka röksemda- færslu, og hún fyrirlítur upplausnar- tilraunir kommúnista. íslenzk alþýða lætur áreiðanlega ekki telja sér trú um þá fjarstæðu, að þeir menn, sem njóta þingfylgis allrar lýðræðissinn- aðrar alþýðu í landinu, hugsi um það eitt að gera þjóðinni sem mesla bölvun. KVENTOSKUR og HáNSKáK nýtt úrval, ódýrt. Anna & Freyja

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.