Íslendingur


Íslendingur - 02.12.1976, Blaðsíða 5

Íslendingur - 02.12.1976, Blaðsíða 5
^♦♦t**!**!**!**!*^**!**!**!**!**!**!**!**!**^**^!**!**^*^**!**!**!**!**!* •!*♦!♦*!*♦$*♦!♦♦!♦♦!**!♦*!*♦!* *!**!♦*!*♦! ’t4****t***4****t*****t**t^*^t4*t4*t**t**t***4*«***4*t**t**t^t**t^t**t**t4*t**t*4«*4t44t**t*****t***^***t**t*4*^t^t<*^^^I^t^^t^*^*^t^^t^t^***t^t^»^t^t^***^^t^*^^*'***^*'^*^'Mv'^'M5^i'Mi*^*<JMJMi**i^ t ¥ ? ! 1 ?: *t* I x x Ý ? ? :í i X I I I ♦t* ! I f * f I ? f í :í ¥ f f f f i f f I f f I f Fegrið prýðið heimilið fyrir jólin HÖFUM FYRIRLIGGJAIMDI: Plastmálningu i tónalitum Akril vatnslakk i tónalitum Allskonar lim og lökk Bæs og lökk i sprautubrúsum Málninga og trésmiðaáhöld Gólfdúkur Veggdúkur Veggstrigi Veggfóður Myndir á hurðir (86x22) og myndir á veggi (274x388) x .i. V f f f f f f f V X Lamir, skrúfur, naglar og margt margt fleira IMORÐURFELL HL. Kaupangi við IUýrarveg - Sími 23565 — l\læg bílastæði x £♦❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖>❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖? Kennaramenntað fólk sækir í önnur störf segir i yfirlýsingu Kennarasambands Norðurlands eystra með yfirvinnu kennara 7.—9. bekkjar. c) að greiðsla komi fyrir þá 7.6 starfsdaga, sem við bætt- ust með útgáfu reglugerðar um starfstíma grunnskóla nr. 79/1976 og reglugerðar um leyfi í skólum, nr. 80/1976. d) að almenn kennara- menntun verði metin jöfn til launa án tillits til hvenær kennaraprófi er lokið. Verði þessum sjálfsögðu réttinda- og réttlætisatriðum ekki sinnt munu kennarar bregðast hart við og eru til- búnir til frekari aðgerða til að knýja fram leiðréttingu á ofangreindum atriðum. Eins og fólki er kunnugt lögðu kennarar á sambandssvæði Kennarasambands Norður- lands eystra niður vinnu mánudaginn 8. nóvember sl. Kennarar hafa sýnt það á undanförnum árum, að þeir eru seinþreyttir til vandræða, en svo lengi má brýna deigt járn að bíti um síðir. í sjónvarpinu talar mennta málaráðherra um að kennar- ar fari ekki að lögum. Tal ráð herra um löglausa baráttu tökum við ekki hátíðlega, þeg ar þess er gætt, að hann hef- ur sinnt þeirri skyldu sinni afar slælega, að sjá svo um að: a'llir nemendur á grunnskóla- stigi fái notið þeirrar bestu kennslu, sem völ er á og eins: hitt, að þau ár sem hann hef- ur setið í ráðherrastóli hefur hann sýnt lítinn skilning og ekkert framtak til að koma til móts við stétt okkar. Við teljum að ríkisvaldið hafi ekki komið heiðarlega fram við barnakennara, heldur hafi beitt okkur sí og æ hlutdræg- um kjaradómi og ósvífinni samninganefnd. Árangur þessa er sá, að: kennaramenntað fól'k sækir í önnur betur Taunuð störf og í staðinn er ráðið réttindalaust fólk til kennslu með misjöfn- um árangri. Hægt er að sýna fram á að í á'kveðnum skóla- hverfum þar sem kennara- skipti eru tíð og réttinda- og reynslulítið fölk starfar við kennslu er t. d. lestrarkunn- átta langt fyrir neðan það sem eðlilegt getur talist. Glæsileg og fjölbreytt æðri menntun getur aldrei orðið nema draumsýn ein, ef valds- menn skartir þá andlegu stærð sem þarf til að skilja og viðurkenna mikilvægi hald- góðrar undirstöðumenntunar í verki. Hagfræði sú, sem felst í því, að hrekja vel menntað og þjálfað fólk úr starfi því, sem í taókifærisræðum er tal- ið mjög þýðingarmikið og vandasamt, hlýtur að orka tví mælis. Kennarar vilja með þessum aðgerðum vekja athygli fólks á eftirfarandi mannréttinda- og réttlætisatriðum um leið og við skorum á valdsmenn fjár- og menntamála landsins að þessi eftirfarandi atriði Verði strax leiðrétt. a) að kennsluskylda kenn- ara 1.—6. bekkjar verði hin ;sama og kennara 7.—9. bekkj ar, þ. e. 30 st. b) að yfirvinna kennara 1.—6. bekkjar verði greidd með 13% álagi, svo sem er Frá i AiB Í8LEM8KT LJÓÐA8AFM Hjá Bókaklúbbi Almenna bókafélagsins er nýkomin út bókin íslenskt ljóðasafn 1. bindi í umsjá Kristjáns Karlssonar. Þetta er 6. bók Bókaklúbbsins í ár og þriðja bókin sem út kemur af íslensku ljóðasafni. Áð- ur cru komin út 2. bindi, sem nær frá Hallgrími Pét- urssyni til Steingríms Thor steinssonar og 3. bindi frá Matthíasi Jochumssyni til Jakobs Thorarensen. Ókom in eru 2 bindi, þ. e. 4. bindi sem mun ná fram til árs- ins 1960 og 5. bindi sem verður þýðingar erlendra Ijóða á íslensku. 1. bindi, sem er nýútkom ið hefst á Völuspá og end- ar á Bjarna Jónssyni, Borg firðingaskáldi, sem lést ár- ið 1640. Kristján Karlsson, sem séð hefur um þetta bindi að öllu leyti ritar for mála fyrir því og segir þar m. a.: „Það er alltaf freisting að velja kvæði, sem eru lítið þekkt og hafa sjaldan ver- ið prentuð, fram yfir önn- ur jafngóð en þekktari; en engin nýjungagirni réttlæt ir hitt, að sniðganga gott kvæði á þeirri forsendu, að það sé öllum kunnugt. Eitt hlutverk almenns ljóða- safns getur verið það, að vekja eftirtekt vora á gleymdu kvæði eða draga fram kosti skálds, sem hef- ur verið vanmetið.“ íslenskt ljóðasafn, 1. bindi, er 373 bls. að stærð og vandað að öllutn frá- gangi. Hagstæðari vöruskipta- jöfnuður í október Vöruskiptajöfnuður íslend- inga við útlönd var í október sl. hagstæður um 684.5 millj., en í sama mánuði í fyrra var hann óhagstæður um 1.381 millj. Það sem af er þessu ári er vöruskiptajöfnuðurinn orð inn óhagstæður um 4.516 milljónir króna, en á sama tímabili í fyrra var hann óhag stæður um 20.646 millj. Það verður hins vegar að hafa í huga við samanburð á milli áranna, að meðalgengi erlends gjaldeyris í október 1976 er talið vera 12.6% hærra, en það var í sama mán uði í fyrra, og það sem af er þessu ári er það talið vera 12.6% hærra en á sama tíma- bili í fyrra. í SLENDIN GUR — 5

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.