Íslendingur


Íslendingur - 02.12.1976, Blaðsíða 10

Íslendingur - 02.12.1976, Blaðsíða 10
FÉLAGSLIF Kristniboðshúsið Zíon: Sunnu daginn 5. des. Sunnudagaskóli kl. 11. Öll börn velkomin. Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna Jd. 4 e. h. Samkoma kl. 8.30 e. h. Ræðumaður Björgvin Jörgensson. Allir vel komnir. I.O.O.F. - 2 - 1581238V2 - SK Jólafundur St. Georgs-skáta verður n.k. mánudagskvöld kl. 20.30. Sr. Bolli Gústafsson kemur á fundinn. Mætum öll. Barnaverndarfélag Akureyrar heldur fund í Þingvallastræti 14, þriðjudaginn 7. des. kl. 20.30. Jón Björnsson, félags- málastjóri, ræðir ný viðhorf í barnavernd. Kvenfélagið Hlíf, heldur jóla- fund sinn í Amaróhúsinu fimmtudaginn 9. des. n.k. kl. 8.30. Mætið vel og takið með nýja félaga. — Stjórnin. Hjúkrunarfræðingar. Fundur verður haldinn í Systraseli 6. des. kl. 20.30. Mætið vel og stundvíslega. — Stjórnin. Frá handknattleiksdeild KA. Dregið hefur verið í happ- drætti Handknattleiksdeildar KA, og voru eftirtalin númer dregin út: 39, 1277, 1466, 2307, 2385, 2411, 2677. Vinn- inga skal vitja til Sigbjörns Gunnarssonar í „Sporthús- inu“. — Handknattleiksd. KA. UMSE. Blaðabingóið: Út- dregnar tölur: I 29 - I 27 - B 9 - N 32 - N 34 - N 38 - G 59 - B15-B6-G48-B7-I21- O 69. — Fjórir hafa tilkynnt bingó. Frestur til að tilkynna bingó, þ. e. lárétta línu, renn- ur út 5. des. nk. — Nýjar töl- ur, fyrir lóðrétta línu: G 51 - O 70 - B 4. Ath. Áður útdregn ar tölur gilda fyrir lóðrétta línu. IMæturhitun Framhald af bls. 1. ventill á næturhitunardunkn- um og í 40% tilfella var ör- yggisbúnaður varakyndingar ófullnægjandi. Eru þetta að- eins nokkur dæmi um ugg- vænlegar niðurstöður skoðun arinnar. Sagt er frá þessum niður- stöðum í íslendingi 4. desem- ber 1975, en síðan hefur lítið heyrst af þessu máli. Nú hefur ein sprenging orðið ennþá, en það var á Akranesi fyrir nokkrum dögum. Þá eyðilagð- ist stórt hús er hitavatnsdunk ur spra'kk, að því að talið er. Hvað hefur verið gert í þess um málum hér á Akureyri? Hafa þau næturhitunarkerfi sem þóttu varhugaverð, verið lagfærð? Margir eru órólegir, sem búa við slík kerfi og vita ekki fyrir víst hvort allt er í lagi eða ekki. — Bærinn hefur afskaplega litla möguleika til að fram- kvæma lagfæringar á þessum kerfum eða kosta þær, sagði Stefán Stefánsson, bæjarverk- fræðingur, í viðtali við blaðið. — Það verður fól'kið að gera. Niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar á sínum tíma, heldur Stefán áfram, og fjöl- margir hafa fengið sér pípu- lagningamann og framkvæmt lagfæringar á kerfum sínum eftir ábendingum frá okkur og við verðum áfram reiðubúnir til að gefa a'llar upplýsingar. — Það var tálað um það á sínum tíma, að senda um- rædda skýrslu til húseigenda til áminningar, en það hefur ekki verið gert. Hugsanlegt er að Bygginganefnd aðhafist eitthvað í þá átt núna, með hliðsjón af atburðunum á Akranesi. Stefán gat þess ennfremur, að full ástæða væri til að fylgj ast einnig með hitavatnsdunk- um, þar sem svokölluð túbu- hitun væri og þar sem neyslu- vatn væri hitað upp með raf- magni. Erlingur Aðalsteinsson, tæknifræðingur, var einn af þeim sem vann að rannsókn- inni á kerfunum á vegum tæknideildar bæjarins. Hann sagði í viðtali við blaðið, að ekki hefði fundist neinn sá ga'lli í kerfunum, sem skapað gæti bráða hættu. — Ég hafði tal af húseigend um, sagði Erlingur, — um leið og ég skoðaði kerfin og benti þeim á það, sem ég taldi að þyrfti úrbóta við. Meira var ekki í okkar valdi, þar sem engin reglugerð er til um þetta efni. — Ég vil bara nota tækifær ið og ráðleggja þeim, sem hafa opið næturhitunarkerfi, að breyta þeim ekki undir nein- um kringumstæðum í lokuð kerfi. Hitavatnsdunkarnir eru enganveginn nægilega traust- ir til að þola það, sagði Erling ur að lokum. Það kom fram í viðtalinu við Stefán, að bæjarráð sendi Iðnaðarráðuneytinu bréf og óskaði eftir því að reglugerð yrði sett um þetta efni. Núna fyrst er ráðuneytið að taka við sér og hefur falið Rafmagns- eftiriiti ríkisins og Öryggis- eftirliti ríkisins, að semja ör- yggisreglur og gera tillögur að eftirliti, sem tryggi eins vel og verða má, að slíkir atburðir geti ekki átt sér stað. Betra er seint en aldrei. í leiðara íslendings 4. desem ber 1975 segir Gísli Jónsson um þetta mál: „Hér kann margur að búa við meiri hættu en hann sjálf- an og aðra yfirleitt grunar. Því verður nú hið fyrsta að hefja skipulegar lagfæringar og úrbætur í þessu efni, og virðist eðlilegast að fela Raf- veitu Akureyrar framkvæmd- irnar. En það eitt er ekki nóg. Hér á landi eru engar sam- ræmdar, nothæfar reglur til um öryggisbúnað næturhitun- arkerfa. Slíkar reglur þarf hið snarasta að setja á vegum hins opinbera." Nýja bíó sýnir í kvöld mynd- ina „The Wilby Conspiraci“ með Sidncy Poiter og Michael Caine í aðalhlutverkum. — Myndin segir frá lögfræðingi, sem fær blökkumann lausan úr fangelsi, eftir að hann hafði setið inni í 10 ár. Hann hafði þó ekki lengi gengið laus er hann komst í kast við lögregluna ásamt lögræðingn um og elskhuga hennar. Sjá þau sér þann kost vænstan að leggja á flótta og lenda þau í útistöðum við landamæra- verði og lögreglu. f lok mynd- arinnar bíður þeirra uppgjör sem ekkert þeirra hafði séð fyrir, ekki löreglan heldur. — Á barnasýningu kl. 3 á sunnu daginn verður sýnd myndin um barnið og ljónið. Borgarbíó sýnir í kvöld mynd ina „Lifðu liratt og steldu miklu“, sem er skenmitilcg og spcnnandi mynd með Robert Conrad í aðallilutverki. Kl. 23 í kvöld verður sýnd myndin „Byltingarforinginn“ með Yul Brynner í aðalhlutverkinu og gerist myndin í borgara- styrjöld í Mexíkó 1912. Á barnasýningu kl. 3 vcrður sýnd myndin „Tískudrósin Millý“ með Julie Andrews í aðalhlutverki. Laugardags- myndirnar falla niður fram yfir áramót. Sunnukvöld Spánarhátíð og Kanaríeyjakynning verður í Sjálfstæðishúsinu, föstudagskvöldið 3. des. kl. 20. GRÍSAVEISLA: grísasteik og grillkjúklingar verð á veislumatnum er aðeins kr. 1650. Aðgangseyrir er rúllumiðagjald. KANARÍEYJAKVIKMYND: sýnd verður ný litkvikmynd Ásgeirs Long. STÖR BINGÖ: vinningar, 3 sólarlandaferðir. Missið ekki af góðri og ódýrri skemmtun. Pantið borð tímanlega. Dansað til kl. 1 e. m. Ferðaskrifstofan Sunna 1 : A t t x y X i * V s <: | I l ! i I Jólavörurnar eru komnar! Búsáhöld — Rafmagnstæki Stálborðbúnaður í gjafapakningum Glervörur — Kaffistell — Matarstell Kristalsvörur frá mörgum löndum Styttur og skrautskálar Leikföng í glæsilegu úrvali Brúður og brúðuföt Brúðuvagnar og kerrur Bílar í öllum stærðum Model — Skip — Bílar — Flugvélar Manntöfl og annarsskona spil Jólakerti við allra hæfi Kertastjakar með kertum Jólasælgætið aldrei meira en nú Mackintohs í úrvali Konfektkassar, erlent og innlent Komið sem fyrst og skoðið jófiavörurnar Sjón er sögu ríkari AMARO Herra kuldajakkar Herra mittisstakkar Herraskyrtur — Bindi — Slaufur Herrapeysur — Buxur Herranærföt — Sokkar Herranáttföt — Sloppar Herrahanskar — Vettlingar Rafmagnsrakvélar Herrasnyrtivörur í gjafapakkningum Drengjapeysur — Buxur Drengjaskyrtur — Slaufur Drengjaúlpur — Stakkar Drengjahanskar Drengjanáttföt Drengjanærföt — Sokkar Sportvörur í úrvavli Munið eftir herra- deildinni á annarri hæð þegar þið gerið jóiainnkaupin AMARO Irisundirfatnaður Dömusloppar mikið úrval Artimisundirfatnaður Náttkjólar — Náttföt Náttserkir fyrir ungu stúlkurnar Dömuhanskar — Vettlingar Mokkahúfur — Lúffur Skíðafatnaður, norskur, íslenskur Skíðalúffur Frúarpeysur hnepptar Rúllukragapeysur, hvítar Bamafatnaður Velourmussur Sokkahlífar — Sportsokkar Vetrarúlpur — sterkir Iitir Jóladúkar — Borðdúkar, mánaðardagar Snyrtivörur í gjafa- pakkningum llmkrem - llmvötn AMARO sími 2-28-33 sími 2-17-30 sími 2-28-32 X | v I i ¥ I Y ? ? t I ? s 10 — ÍSLENDINGUR

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.