Íslendingur


Íslendingur - 02.12.1976, Blaðsíða 4

Íslendingur - 02.12.1976, Blaðsíða 4
KFUIM á Akureyri varð 25 ára i gær Málverkasýning Aðalsteins Vestmann verður opnuð í Iðnskólahúsinu föstudaginn 3. des. Id. 20.30. — Opið laugardag 4. des. og sunnudag 5. des. frá kl. 2 — 22. Þann 1. desember 1951, var KFUM á Akureyri formlega stofnað af 45 stofnfélögum, 20 í eldri deildunum og 25 í yngri deild. Aðdragandi þessarar fé- lagsstofnunar var sá, að árið 1946 réðst Björgvin Jörgens- son, sem kennari til Barna- skóla Akureyrar. Björgvin var kunnugur starfi KFUM í Reykjavík, og hafði m. a. ver- ið samstarfsmaður sr. Frið- riks Friðrikssonar bæði í Rvík og sumarbúðunum í Vatna- skógi. Fljótt eftir komuna í bæinn, hóf Björgvin starf meðal ungra drengja. Ekki var hér um formlega félags- starfsemi að ræða, en funda- formið var hið sama og í KFUM. Þessi óformlega félags starfsemi varð vinsæl meðal ungra drengja og óx starfið markvisst. Var þá talið, að brátt myndi grundvöllur fyrir því að stofna KFUM, og var það svo gert eins og áður sagði 1. desember 1951. Síðan hefur félagið haldið uppi starfsemi í 3 deildum, Yngri deild, Ungl inga deild og Aðál deild. Fljótt eftir félagsstofnun- ina, var farið að ræða um sum arstarf. Var í fyrstu farið í úti legur öðru hvoru, en ekki var um annað sumarstarf að ræða. Svipast var um eftir hentugum stað fyrir sumar- búðir og loks árið 1959, var fundinn staður, við Hólavatn í Eyjafirði, og var þegar haf- ist handa við að reisa þar sum arbúðir. Sumarbúðirnar voru vígðar af sr. Bjarna Jónssyni, vígs'lubiskupi, form. KFUM í Reykjavík, þann 20. júní 1965. Hefur sumarbúðastarfið verið snar þáttur í starfsemi félagsins síðan. KFUM félagar, ungir sem eldri, halda hátíðlegt 25 ára afmæli félags síns með af- mælishófi í Kristniboðshús- inu Zion á afmælisdaginn kl. 8.30 eh. Eru eldri félagar hvattir til að koma og rifja upp gamlar endurminningar og e.t.v. endurnýja samband sitt við KFUM, það væri fé- laginu kær komin afmælis- gjöf. Orðsending frá Kristneshæli Þeir viðskiptamenn hælisins, sem ekki hafa föst mánaðarviðskipti, eru beðnir að framvísa reikn- ingum sínum fyrir 15. des. n. k. Forstöðumaður Auglýsingasíminn er 21500 Höfum opnað húsgagna- verslun í KEA Hrísalundi á neðri hæð. Komið og kynnið yður verð og vöruval í þesari stórglæsileg verslun Auk okkar húsgagna eru þarna eldhúshúsgögn, teppi, mottur, gjafavörur, heimilistæki leikföng og margt fleira. ÖRKIIM hans MÓA Hrísalundi, sími 1-10-43 Ráðhústorgi, sími 2-35-09 Allt tíl jólagjafa á einum stað! Rowenta MÍNÚTUGRILL DJÚPSTEIKINGAPOTTAR GRILLOFNAR KAFFIKÖNNUR BRAUÐRISTAR VÖFFLUJÁRN og m. fl. Husqvarna VÖFFLUJÁRN BRAUÐRISTAR KAFFIKÖNNUR straujArn Jólagjöfin handa honum er BOSCH-COMBI rafmagnsverkfæri til tómstundaiðju. m ' m • .. £• Jolagjotm handa henni er © Husqvarna saumavél. Electrolux ryksugur IMý sending af hinum vinsælu ÖSTER-hrærivélum komin. HAGSTÆTT VERÐ ! Aðventuljósin margeftirspurðu komin. Falleg og vermandi jólagjöf. og mairgt, margt fleira til jólagjafa Vöruúrvalið hefur aldrei verið meira Opið til kl. 4 laugardag ^ luinai <9- Glerárgötu 20 S'imi 22232 4 — ÍSLENDINGUR

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.