Íslendingur - Ísafold - 23.05.1970, Side 1
Vinnum að sigri Sjálfstæðisflokksins x-D
Mendimur-ísaMd
27. tölublað. Laugardagur 23. maí 1970. 55. og 95. árgangur.
Mjólkurskortur yfirvofandi?
HVER ERL
LALIMIIM?
Fyrir nokkru urðu blaðaskrif vegna
allferlegra launa, sem talið var að
opinber starfsmaður í Reykjavík
hefði. Þá rifjaðist það upp fyrir mér,
að þegar núverandi bæjarstjóri hér á
Akureyri var ráðinn til þess starfs,
urðu hér blaðadeilur og einnig ágrein
ingur manna á milli um, hver iaun
lians yrðu í framkvæmd. Fannst sum
um, að um óeðlilega há laun og mik-
il hlunnindi væri að ræða, en öðrum
óx þetta ekki svo mjög í augum, og
allra sízt, þegar tekið væri tillit til
þess, að hér væri verið að ráða al-
veg sérstaklega starfshæfan mann.
Nú hefur konjið í ljós, að bæjarstjór-
inn okkar er ekkert undrabarn, en er
vissulega ýmsum góðum kostum bú-
inn, eins og við erum öll. En það
hefur ekki komið í ljós, hver laun
hans eru fyrir starfið, og er það dá-
lítið undarlegt, þar sem nú liggja
staðreyndir fyrir um það. Þess vegna
skora ég hér með á blöðin, og þá
einkum þau, er um þetta deildu, að
greina frá, hver árslaun bæjarstjór-
ans eru, þar með talin öll fríðindi og
hlunnindi, og láta það koma fyrir
almenningssjónir hið fyrsta. Þá geta
réttir aðilar — skattgreiðendurnir
sjálfir — dæmt um, hvort launin eru
of há eða ekki. Ef ekkert svar kem-
ur við þessu, verða bæjarbúar að
líta svo á, að þarna sé um eitthvað
það að ræða, sem ekki er talið holít
að sjáist svart á hvítu. — Bæjarbúi.
Framsóknarmenn tala mikið
um hina ötulu forystu, sem
þeir þykjast hafa veitt Akureyri
á síðasta kjörtímabili. — Ekki
er mikið mark takandi á þess-
um málflutningi, en hins vegar
hafa menn fyrir augunum,
hvernig forysta Framsóknar er í
þeim fyrirtækjum, þar sem aft-
urhald Framsóknar hefur tögl
og hagldir. Gott dæmi er mjólk-
ursalan á Akureyri. A helgum
dögum minnir biðröðin við þá
einu mjólkurbúð, sem KEA hef-
ur þá opna, einna helzt á
skömmlunartímabilið, — enda
hafa forkólfar Framsóknar
marglýst yfir þeirri skoðun, að
það þurfi að taka upp hafta-
I Degi, sem út kom 16. maí sl., er
ein af hólgreinum þeim, sem undan-
farið hafa birzt í Degi um „ötula
forystu Framsóknarmanna." Þar er
m. a. rætt um þátt bæjarstjóra og
Stefáns Reykjalín í Atvinnumála-
nefnd Akureyrar. I greininni segir
orðrétt: „Rétt er að minna á, að það
er alveg við hæfi, að Sjálfstæðismenn
hæðist að ferðum bæjarstjóra Akur-
eyrar til Reykjavíkur, er hann hefur
þurft að fara vegna þessara mála.
Framsóknarmenn geta jafnvel unnt
þeim þess sannmælis, að þeir hafa
stundum tekið þátt í þessari norð-
lenzku sókn, sem unnið hefur verið
að.“
Það lítur út fyrir, að Dagur kalli
frambjóðendur Framsóknarflokksins
Sjálfstæðismenn, því Tryggvi Helga-
son, sem er í 7. sæti á lista Fram-
stefnu þá, sem ríkti á tímum
hjólbörustjórnarinnar.
Myndin hér að ofan var telc-
in við Mjólkurbúð KEA fyrir
skömmu. — Þetta er sú þjón-
usta, sem Akureyringar verða
að sætta sig við af hálfu KEA.
sóknarflokksins, hefur einmitt gagn-
rýnt ferðir bæjarstjórans opinberlega.
I grein, sem hann ritaði í ágúst 1968,
segir orðrétt: „Fyrir nokkru fengum
við nýjan bæjarstjóra. Til starfans
réðist ungur maður úr Reykjavík,
sem flestir bæjarbúar bundu miklar
vonir við, og töldu að með honum
kæmi nýr þróttur í framkvæmdir í
bænum.“
Síðan heldur Tryggvi áfram: „En
það virðist sem þær vonir hafi brugð
izt, og hafa bæjarbúar orðið fyrir sár
um vonbrigðum. Þó hefur hjaupið all
mikill vöxtur í allskyns ferðalög og
sýndarmennsku, sem bæjarsjóður
þarf ef til vill að borga, að nokkru
eða öllu leyti, og er það að mestu
eignað bæjarstjóra."
Það þarf ekki að fjölyrða meira
um það, hverjir hæðast að suðurferð-
um bæjarstjórans.
Stuttar
bæjar-
fréttir
f kosningahríðinni hefur mönnum
hrotið eftirfarandi af vörum:
— Að fleira gerist nú „dagsatt" í
hverjum nýjum Degi.
— Að undir „Svar frá Hauki“
hefði s.j. gjarna mátt setja AM-en á
eftir efninu.
— Að Ingólfur hugleiði að sitja
undir Soffíu í bæjarstjórn, svo þau
verði örugg með sæti.
— Að Framsóltn hyggist spara al-
mannafé með því að gera bæjarrekst
urinn að deild í KEA á næsta kjör-
tímabili.
-K
Spurt er: Er upplag Verkamanns-
ins orðið stærra en Morgunblaðsins?
Fyrir stuttu fékk ég 2 eintök á Iaug-
ardag, eitt á sunnudag og eitt á mánu
dag. Allt var þetta sama tölublaðið.
Þann dag gekk ég eftir gangi á opin-
berri byggingu í miðbænum, og lá
þá eitt eintak við hverja hurð, m.a.
að salerni og geymslukompu.
-K
Saet er. að eftir frétt í siðasta AM-
en, hugleiði Sigurjón nú að láta
prenta AM-en á salernispappír, af
ótta við heimsókn Björns Jónssonar.
f tilefni af fréttinni í AM-en hraut
hagyrðingi snjöll vísa af munni, og
er hún birt í vísnabálki blaðsins í
dag.
-K
Málefnayfirlýsing Sjálfstæðismanna
á Akureyri hefur vakið verðskuldaða
athygli. Þar er m.a. lögð áherzla á,
að veitt sé aðstaða til fullkomins
tækniskólahalds á Akureyri, og stefnt
verði að því að Tækniskóli íslands
flytji þangað.
5. maðurinn á lista Framsóknar-
manna skrifar í síðasta tbl. Dags og
gerir það að tillögu sinni, að Tæltni-
skólinn verði fluttur til Akureyrar. —
Er ánægjulegt, hve Framsóknarmenn
taka vel undir tillögur Sjálfstæðis-
manna.
-K
Kratar munu nú loksins vera bún-
ir að koma auga á þá staðreynd, að
þeir mega tcljast heppnir ef þeir fá
einn mann kjörinn í bæjarstjórn í
kosningunum.
-K
Því miður er kosningablað Alþýðu-
bandalagsins svo lapþunnt, að eltki
er einu sinni hægt að hafa gantan
af því. — Lýsir það vel klofningi
vinstri flokkanna.
HEIÐURINN
DAGVAXANDI!
„Nú skyldi enginn ætla, að
Framsóknarmenn í bæjarstjórn
eigi allan heiðurinn af því, sem
áunnizt hefur á þessu kjörtíma-
bili í bæjarframkvæmdum annars
vegar og í margþættri fyrir-
greiðslu við aðrar framkvæmdir
hins vegar.“
Dagur 11. 2. 1970
„Þegar bæjarbúar — og ekki
vonunt fyrr — veittu Framsókn-
armönnum umboð sitt fyrir fjór-
um árum, til að hafa á hendi for-
ystuna, var bæði viðskipta- og
atvinnukreppa að skella yfir, svo
fleiri urðu atvinnulausir en þekkst
hafði um áratugi . . .
Við þessar aðstæður hófu Fram
sóknarmenn starf í bæjarstjórn,
sem forystuflokkur, og réðu til
starfa ungan, menntaðan og bjart
sýnan Borgfirðing, Bjarna Einars-
son, sem bæjarstjóra. Og hið kyrr
stæða hjói fór að snúast, vörn var
snúið í sókn. Verklegar frani-
kvæmdir voru undirbúnar og síð-
an hafnar, fjármagn var dregið til
bæjarins og það rann upp fram-
faraskeið á kreppuárum . . .“
Dagur 16. marz 1970
Það er gott, að Dagur kemur
sífellt auga á meiri og meiri af-
rek „forystuflokksins” í bæjar-
stjórn. Meðan enn er hálfur mán-
uður til kosninga, finnst honum
bæjarfulltrúar Framsóknar hafa
fjármagnað atvinnufyrirtæki bæj-
arins svo, að Akureyri Iifi í vel-
lystingum nú, þrátt fyrir kreppu
og eymd hjá öðrum. Góðs viti má
það teljast, að hinn gamli barlóm-
ur er úr sögunni um slteið, en
hve langt mun Dagur verða kom-
inn með Framsóknarfulltrúaná
daginn fyrir kosningar, ef svo fer
fram, sem horfir?
Hverjir hafa hædst
oð suðurferðum
bæjarstjórans?
Næsta blað kemur út þriðjudaginn 26. maí