Íslendingur - Ísafold - 23.05.1970, Side 12
IMýja forystu i bæjarmálum Akureyrar x-D
■■■■■
I
aHHm
islendmwt
-ísnfold
Lagardagur 23. maí 1970.
Misræmi í
málflutningi
1 þeim sveitarsljórnarkosning-
um, sem nú fara í hönd, er al-
gjört misræmi í málflutningi
Framsóknarmanna í höfuðborg-
inni og á Akureyri. I höfuðborg-
inni er línan sú, að auðvitað séu
borgarstjórnarkosningar líka öðr-
um þræði landmálapóiitískar. —
Þetta er í samræmi við boðskap
Ólafs formanns um, að þessar
sveitarstjórnarkosningar geti veitt
Framsóknarmönnum „Iykil að
stjórnarráðinu.“ í Reykjavík hafa
Framsóknarmenn því allt á horn-
um sér um stefnu rikisstjórnar-
innar. Hún á að hafa leitt allan
ófarnað yfir þjóðina á öllum svið-
um, en engu ráðið um það, sem
betur hefur horft. Hins vegar
minnast þeir sem allra minnst á
borgarmálefni Reykjavíkur. Þann-
ig heyja Framsóknarmenn kosn-
ingabaráttuna sunnan heiða.
Hér á Akureyri er þessu alveg
öfugt farið. Þar á að kjósa um
svonefnda forystu Framsóknar í
bæjarmálum, einkanlega þó um
þá furðulegu kenningu, að þeim
einum hafi tekizt að útrýma at-
vinnuleysi á Akureyri. Heldur er
þar lítið minnst á landsmálapóli-
tík og auðvitað alls ekki, að at-
vinnuleysi hafi verið útrýmt á öðr
um stöðum í landinu en á Akur-
eyri, þótt þetta sé á allra vitorði.
Eins og kunnugt er, hefur sem
betur feri tekizt að ráða niður-
lögum atvinnuleysis um allt land.
Mikilsverðasta ástæðan er sú, að
fylgt hefur verið skynsamlegri
stjórnarstefnu og samvinna verið
milli launþega og ríkisvalds um
þá stefnu að nokkru leyti. Þeir,
sem fylgjast með stjórnmálum,
vita þó jafnframt, að Framsóknar-
mönnum hefur verið lítið um þá
samvinnu gefið, svo ekki sé dýpra
tekið árinni.
Þegar þessi misjafni málflutn-
ingur Framsóknar syðra og nyrðra
er felldur saman. kemur út held-
ur spaugileg já, já — nei, nei-
mynd af hentistcfnu þeirra. Sú
Hkisstjórn, sem Framsóknarmenn
hamast fyrst og fremst gegn í
borgarstjórnarkosningunum í
Reykjavík, hefur einmitt átt ríkast
an þátt í því að skapa tækifæri til
þess, sem þeir hæla sér af að hat'a
afrekað á Akureyri, þ. e. a. s. að
útrýma atvinnuleysinu, cins og
annarsstaðar í landinu. Aftur á
móti hafa svo Framsóknarmenn
á Akureyri viðurkennt — með því
að eigna sér alla forystu í bæjar-
málum Akureyrar, og að um það
eigi að kjósa norður á Akureyri,
— að sveitarstjórnarkosningarnar
snúast fyrst og fremst um málefni
hvers staðar en ekki Iandsmál. —
Þannig hafa þeir afsannað þá
kenningu, sem þeir hafa í Reykja-
vík.
Með málflutningi sínum syðra
og nyrðra í þessum sveitarstjórn-
arkosningum hefur Framsóknar-
fnönnum því enn tekizt að setja
nýtt met í hentistefnu. Nú eru
þeir í algjörri innbyrðis andstöðu
um megininntak sveitarstjórnar-
kosninganna í Reykjavík og á
Akureyri.
SJALFSTÆÐISHUSIÐ
— Föstudagskvöld: Restaurant.
— Laugardagskvöld: Skemmtikvöld.
— Sunnudagskvöld: Restaurant.
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ, AKUREYRI. - SÍMI 12970.
HÓPFERÐABÍLAR
Höfum 14, 17, 22, 32, 38, 40 og 52 manna
hópferðabíla, — einnig fjallabíla, 14 — 36
manna, til leiguferða.
FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR.
SÍMI 1-14-75.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Útrýmdi Stefdn Reykjalín
atvinnuleysi á öllu landinu?
Furðulegustu hlutir geta gerzt.
Nú kemur aldrci út dagsett blað
af Degi, að ekki sé þrástagazt á
því, að í rauninni eigi bara að
kjósa í bæjarstjórn í samræmi við
þá miklu staðreynd staðreynd-
anna, að Framsóknarmönnum
hafi tekizt að eyða atvinnuleysi á
Akureyri! Önnur „smárnál," sem
varða stjórn Akureyrar og mcira
var minnst á í síðustu kosning-
um, eins og FRAMKVÆMDAÁ-
ÆTLUN SIGURÐAR ÓLA eða
NÝTT AÐALSKIPULAG AKUR-
EYRAR, koma nú allt f einu ekki
kosningum við, enda hafa þessi
mál sofið værum svefni undir
stjórn Framsóknar í fjögur ár.
Hvað útrýmdi þá atvinnuleys-
inu á þeim stöðum, sem Fram-
sóknarmenn stjórna ekki? Með
þessari einföldu spurningu liefði
ritstjóra Dags verið í Iófa lagið
að auka útsýnina frá ristjórnar-
skrifstofunni og leitt sjálfan sig
og lesendur blaðsins í allan sann-
leika um þetta mál, ef hann vill
á annað borð nokkuð hafa hann
um hönd. Allir vita, að atvinnu-
leysi hefur, sem betur fer, verið
útrýmt á öllu landinu. Þar er Ak-
ureyri cngin undantekning. Ástæð
an fyrir þessu er fyrst og fremst
skynsamleg stjórnarstefna, sam-
vinna atvinnurehenda og laun-
þega og hagstæð ytri skilyrði fyrir
þjóðarbúskapinn í heild. Meira fé
hcfur auk þess verið útvegað til
atvinnuuppbyggingar en nokkru
sinni fyrr, sérstaklega á Norður-
landi. Þetta kýs Dagur að horfa á
með blindu auga, eins og Nelson
forðum, til þess að geta búið til
þá furðukenningu, sem öll kosn-
ingabaráttan á að snúast um, —
hvorki mcira né minna. Sem sagt,
að Framsðknarmcnn hafi unnið
það sérstaka afrek að útrýma at-
vinnuleysi á einum stað á landinu,
þ. e. a._ s. hér á Akureyri, í trássi
við vond og illviljuð stjórnvöld!
Þessi kenning ritstjóra Dags
virðist svo sannheilög í huga hans
að skrif hans urðu með úrillsku-
legasta móti, þegar Isl.-ísafold
Ieyfði sér að sýna fram á, hvað
hefði í raun og veru þurrkað út
atvinnuleysið á Akureyri. Bent var
á, að hér hefðu komið til lán-
veitingar Norðurlandsáætlunar og
Atvinnuinálanefndar ríkisins, en
hvorki meira né minna en tæp-
lega 112 millj. ltróna hafa verið
lánaðar frá þessum aðilum TIL
ALLRA UMTALSVERDRA FRAM
KVÆDA í BÆNUM á þessu og
síðasta ári. Dagur var þó ekki
aldeilis af baki dottinn. Hann
svarar: Stefán Reykjalín er for-
maður Atvinnumálanefndar Akur
eyrar. Þurfa menn svo freltar
vitna við? Þetta er rétt hjá Degi.
Stefán er formaður þessarar
nefndar, en þessi ágæta nefnd,
sem í cru menn úr öllum flokk-
um, hafði engin bein afskipti af
þcssum Iánsútvegunum. Það starf
hafði á hendi Atvinnumálanefnd
Norðurlands. Formaður þeirrar
nefndar er Lárus Jónsson. Stjórn
Atvinnujöfnunarsjóðs hefur á
liendi úthlutun lána vegna Norð-
urlandsáætlunar. Þar er formaður
Magnús Jónsson, fjármálaráð-
hcrra. Formaður Atvinnumála-
ncfndar ríkisins er forsætisráð-
herra. Það ætti Dagur að muna,
því hann sá sérstaka ástæðu til
þess að atyrða hann fyrir þá fyr-
irgreiðslu að lána Slippstöðinni 8
milljónir króna, og cinnig ætti
Dagur að muna það fyrir þá sök,
að Framsóknarmenn deildu á
Bjarna Bcncdiktsson á þingi fyrir
það, að þessi nefnd hefði lánað
of mikið í Norðurlandskjördæm-
in, en of lítið til Reykjavíkur!
Efist Framsóknarmenn samt
sem áður um, að ofangreindir
Sjálfstæðismenn hafi haft meiri
áhrif á fjárútvegun til fram-
kvæmda á Akureyri en Steffin
Reykjalín, þá skal spurt að lok-
um: Hvað bjargaði þeim aum-
ingja mönnum í þeim byggðum
landsins, sem eiga cngan Stefán
Rcykjalín? 'Hvað útrýmdi atvinnu
leysi á landinu utan sjónarhrings
Dagsritstjórans? Þess er vænzt,
að skýr svör fáist við þeim spurn-
ingum í Degi.
Eitt af inörgum skotum Akurcyringa, en
< 1' >; , v*??*?*'
(Ljósmynd: HT.).
ÍBK vann meistarakeppnina
Nemenda-
tónleikar
Hinir árlegu nemendatónleikar Tón
listarskólans á Akureyri verða nk.
laugardag, sunnudag og mánudag, þ.
e. 23., 24. og 25. maí. Á laugardag-
inn verða tónleikarnir í Lóni kl. 17.
Þar koma fram yngri nemendur skól
ans og leika á píanó og fiðlur.
Á sunnudaginn verða tónlcikarnir
í Borgarbíói og hefjast kl. 15. Þar
koma fram eldri nemendur skólans
og leika á píanó. Tónleikarnir á
mónudaginn verða einnig í Borgar-
bíói og hefjast kl. 21. Þar koma fram
nemendur Sigurðar D. Franzsonar og
syngja einsöng, tvísöng og kórsöng.
Aðgangur að öllum tónleikunum er
ókeypis og allir velkomnir meðan hús
rúm leyfir.
KA-hlaupíð
hið annað í röðinni, fer fram nk.
laugardag og hefst á lþróttavellinum
kl. 2 e.h. — Rétt til þátttöku hafa
drengir og stúlkur, fædd á árunum
1956 — 1960, bæði ár meðtalin. —
Skráning fer fram fyrir keppni. —
Keppendur eru beðnir að mæta hálf-
tíma fyrir keppni. — Frjálsíþrótta-
deild KA.
I’að urðu Akureyringum sár
vonbrigði að sjá knattspyrnu-
menn sína tapa fyrir Keflvíking
um, er liðin léku sinn þriðja
leik í meistarakeppni KSÍ hér á
Akureyri, laugardaginn fyrir
hvítasunnu. Akureyringar voru
mun betri aðilinn að flestra
dómi, en þeim tókst ekki að
skora nema eitt löglegt mark,
á móti tveim mörkum Keflvík-
inga. Á annan í hvítasunnu fór
svo fjórði og síðasti leikurinn
fram í Keflavik. Þar sigruðu
Keflvíkingar, 2:0, og höfðu þar
með unnið kcppnina. Vonandi
tekst Akureyringum betur upp
í 1. deildar keppninni, sem nú
er að hefjast.
x-D Fólkið kýs ábyrgan meirihluta x-D