Faxi - 01.07.1945, Blaðsíða 1
FAXI
6. tbl. 5. ár Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík Júlí 1945
VALTÝR GUÐJÓNSSON:
Verkamarenabústaðir í Keflavík
Haustið 1942 var á fundi í Verkalýðs-
og sjómannafélagi Keflavíkur samþykkt
að hefja undirbúning að stofnun bygg-
ingarfélags verkamanna. Nokkru síðar
sama haust var félagið stofnað, með
rúmlega 20 félagsmönnum.
Þá höfðu slík félög starfað um nokk-
ur ár í Reykjavík og Hafnarfirði og
öðrum kaupstöðum landsins. Höfðu
þau komið upp vönduðum fbúðum
með fyrirstríðsverði fyrir félaga sína.
Efnalitlir menn höfðu þannig eignast
vandaðar íbúðir með aðstoð bygging-
arfélaganna, sem þeim að öðrum kosti
hefði reynst ókleift að eignast.
Byggingarfélag verkamanna í Kefla-
vík er nú að hefja starfsemi sína. Er
þegar búið að leggja grunn að 4 íbúð-
um, en í ráði er að reisa 10 til 12 íbúðir.
Má segja, að seinna sé á stað farið en
æskilegt hefði verið, og stórmikill hag-
ur fyrir félagsmenn, ef þessi starfsemi
hefði verið hafin strax á árunum fyrir
stríð.
Fyrirkomulag þeirra verkamanna-
bústaða, sem þegar hafa verið byggðir
hér á landi er einkum með tvennu
móti. Annars vegar eru tveggja hæða
hús á kjallara, með 4 íbúðum, sameig-
inlegu þvottahúsi og miðstöð og sama
inngangi fyrir hverjar tvær íbúðir (sbr.
Reykjavík og Hafnarfjörð). Hinsvegar
eru einlyft hús, tvær íbúðir byggðar
saman, og er þó hvor íbúð út af fyrir
sig (Akranes, Akureyri).
Báðar þessar gerðir hafa sína kosti
og galla. Fjögra íbúða húsinu eru falleg
á að líta, og setja svip á umhverfið.
Undir þau þarf tiltölulega litla lóð mið-
að við hverja íbúð. Eru þetta ágætir
kostir. En gallinn við þau er, hve íbúðir
þeirra hafa margt sameiginlegt af nauð-
synlegustu þægindum, og því hætt við
að eigendur þeirra verði ekki eins á-
nægðir með eign sína, og ef þeir gætu
verið alveg út af fyrir sig. Einlyftu
húsin eru frekar óásjáleg, og þurfa
stóra lóð miðað við íbúð. Þau eru hins
vegar mjög þægileg til íbúðar, og hafa
þann höfuðkost, að þar eru íbúðirnar
alveg aðskildar. Kostnaðarverð beggja
slíkra húsa er talið að vera mjög svipað.
Vegna þess, að menn voru ekki á
eitt sáttir um það, hvernig verkamanna-
bústaðirnir yrðu hafðir hér, og líkaði
ekki allskostar við þessar tvær aðal-
gerðir, hefur teiknistofa húsameistara
ríkisins, sem annast teikningar verka-
mannabústaða, teiknað verkamannabú-
staðina hér með nýju fyrirkomulagi,
sem hvergi hefur verið haft áður á
verkamannabústöðum hér á landi. Eru
það tveggja íbúða hús, ein hæð með
kjallara, og íbúðirnar aðskildar. Sam-
einar þessi gerð kosti hinna fyrri bú-
staða, húsin verða falleg á að líta, lóðir
undir þau sæmilega eðlilega stórar, og
íbúðirnar þægilegar. Stærð hverrar í-
búðar er 8X9,25 m., þrjú rúmgóð her-
bergi, bað, eldhús, og innri og ytri for-
stofa. I kjallara er miðstöð, þvottahús
og geymsla, auk tveggja stórra her-
bergja, sem eigendur geta hagnýtt sér