Faxi

Årgang

Faxi - 01.06.1950, Side 8

Faxi - 01.06.1950, Side 8
8 F A X I íslenzkt kynningarkvöld fé\ag Suðurnesja- manna í Reykjavík Sigrid Bardal, Lilja Eylands, Pearl Johnson, Þóra Ásgeirsson. (Fréttir vestan um haf). Manitobaháskóli héit þann 13. marz s. 1. íslenzkt kynningarkvöld. Þessir tóku þátt í kynningarkvöldinu: Frú Lilja Eylands (ræðuefni: Ársdvöl mín á Islandi), Mrs. Pearl Johnson söngkona. Miss Thora Ás- geirsson píanóleikari, einnig strokkvart- ett en í honum voru: Pálmi Pálmason, William Worbeck, Allan Béck og Harold Jonasson. Samkomustjóri var forseti há- skólans dr. A. H. S. Gillson. Fer hér á eftir það sem Lögberg segir um þetta kynningarkvöld: „Þetta kveld var Islendingum til mikils sóma“, sögðu fleiri en einn við mig að lokinni íslenzku samkomunni, er haldin var á vegum Manitobaháskólans á mánu- dagskvöldið og mun það ekki ofmæli því þátttakendur allir leystu hlutverk sín prýðilega af hendi. — Erindi fró Lilju Ey- lands fjallaði aðallega um þau kynni, er hón fékk um þróun lista á Islandi — hljómlist, málaralit, höggmyndalist, tré- skurðarlist og handiðnaðarlist; sagði hón svo skemmtilega frá og brá upp svo mörg- um skýrum myndum af því sem fyrir augu og eyru bar að unun var að hlusta á hana. Þá lék hinn kunni fiðluleikari Palmi Palmason ásamt Harry Rowlin og Harold Jonasson lag eftir Björgvin Guðmunds- son. Fró Pearl Johnson söng lög eftir Árna Thorsteinsson, Sigvalda Kaldalóns og Sigfós Einarsson; það var ekki ein- ungis að hón söng vel, heldur skýrði hón efni ljóðanna svo yndislega að hrífandi var. Ungfró Sigrid Bardal annaðist undir- spil. Ungfró Thora Ásgeirsson lék á píanó tónverk eftir Pál Isólfsson af snilld, eins og vænta mátti af henni. Konurnar og hinar tvær ungu stólkur voru klæddar íslenzkum bóningum og jók það ekki lítið á virðuleik samkom- unnar. Forseti háskólans, Dr. A. H. S. Gillson stjórnaði samkomunni; er hann eins og kunnugt er, talsvert fróður í íslendinga- sögunum í þýðingu William Morris. Kvaðst hann hefði óskað að við þetta tæki- færi hefði einnig verið upplestur ór forn- sögunum eða eitthvað atriði bókmennta- legs eðlis, en ór því myndi verða bætt þegar kennaraembættið í íslenzku og ís- lenzkum fræðum yrði stofnað við Mani- tobaháskólann; sagðist hann vonast til að þessi samkoma yrði upphafið að mörgum slíkum samkomum, er haldnar yrðu á veg- um háskólans til að kynna íslenzka menn- ingu. Að lokinni skemmtiskrá skoðuðu gest- ir íslenzk málverk og íslenzka skraut- muni, er til sýnis voru undir umsjón fró Sofíu Wathne. Yfir hundrað manns sóttu samkomuna og var margt af því annarra þjóða fólk“. (Lögberg, 16. ntarz ’50). Fimmtudaginn þ. 30. marz síðastl. hélt félagið aðalfund sinn hér í bænum. I fé- laginu eru nó um 350 meðlimir. Aðal- áhugamál félagsins, að eignast landssvæði á Suðurnesjum og gróðursetja þar skóg- arplöntur, hefur nó komizt í framkvæmd. Á félagið allstórt landssvæði að svonefnd- um Háabjalla, suðaustur af Vogastapa, sem hiefur verið girt rammbyggilegri 7 strengjaðri gaddavírsgirðingu. Á komandi árum verður haldið áfram að gróðursetja trjáplöntur á þessum stað. Gek'kst félagið fyrir því, að stofnað var Skógræktarfélag Suðurnesja í Keflavík þ. 5. marz síðstl., sem verður til að byrja með dieiid í Félagi Suðurnesjamanna í Reykjavík og fær af- not af landi félagsins í Háabjal'la tii gróð- ursetni-ngar trjáplantna. Er ætlunin að stofna sjálfstæðar skógræktardeildir í byggðarlögunum á Suðurnesjum, þegar áhugi hefur verið vakinn almennt þar syðra fyrir þessum málum. A stofnfundi Skógræktarfélags Suðurnesja afhenti Eg- ill Hallgrímsson kennari 1000 kr. til stofn- unar Skógræktarsjóðs Suðurnesja og er ætiunin að hafa í framtíðinni innsöfnun- ardag einu sinni á ári í þann sjóð. — Fé- lagið befur haft ýms fleiri mál til með- ferðar; m. a. gekkst það fyrir stofnun styrktar- og líknarsjóðs af minningargjöf- um, er bárust félaginu við jarðarför Stef- áns heit. Gunnarssonar skókaupm. Einn- ig hefur það myndað siysavarnasjóð, sem binda á við nafn Odds heit. Gíslasonar, prests að Stað í Grindavíik, sem talinn er upphafsmaður siysavarna hér á landi. Fleiri framkvæmdir hefur félagið með höndum. í stjórn voru kosnir: Friðrik Magnós- son stórkaupm. form. og meðstjórnendur Þorsteinn Bjarnason kennari, Einar Jós- cfsson kaupm., Karl Vilhjálmsson loft- skeytam., Björn Benediktsson netagerðar- maður, Þorbjörn Klemenzson trésmiður og Jón Guðmundsson verzlunarm. Dragnótaveiði stunda allmargir bátar, en nokkur óhugur greip útgerðarmenn þeirra þegar lokun fiskimiða innan Garðsskaga var auglýst fyrir- varalaust. Garðsjór hefur að undanförnu ver- ið öruggasta veiðisvæði þeirra.

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.