Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1956, Side 3

Faxi - 01.12.1956, Side 3
F A X 1 115 Marta Valgerður Jónsdóttir: S Jólaboð að Landakoti á Vatnsleysuströnd Þegar líður að jólum leita minningar liðinna ára á hugann, fremur venju, eða svo hefur mér farið. Vinir okkar stíga þá fram í ljósi endurmirvninganna og varpa birtu inn í hug okkar. Þá er hver gleði- stund lifandi á ný. Fyrstu minningar mínar um jólaboð eru bundnar við beztu vini foreldra minna, þau Landakotshjón Guðmund Guð- mundsson og konu hans Margrétu Björns- dóttur. En heimili þeirra stóð með mikl- um menningar- og glæsibrag um tugi ára, eða frá 1868 til 1920. Foreldrar mínir bjuggu, þegar þetta gerðist, í Breiðagerði á Vatnsleysuströnd, er var um það bil miðja vega milli Auðna og Stóra-Knarrarness. Þar er nú ekki leng- ur byggt ból, heldur sléttur völlur. Nú vorum við boðin í jólaveizlu að Landakoti. Eg mun ekki hafa verið há í loftinu, því faðir minn bar mig á hand- legg sér, frá heimili okkar, inn að Landa- koti í bezta vetrarverðri, síðari hluta dags.. Snjór var á jörðu og hjarn, heiðskírt og tungl í fyllingu og stjörnurnar tindruðu svo fagurlega. Eg var gagntekin af fegurð þessa jóla- kvölds og spurði margs, mun faðir minn þá fyrst hafa beint hug mínum að dásemd stjörnuheimsins. Atti ég oft síðar sælar stundir með föður mínum, er við gengum út á stjörnubjörtu kvöldi og virtum fyrir okkur næturhimininn. Það var ævinlega hátíð og fagnaðarfund- ur er þau hittust foreldrar mínir og Landa- kotshjónin, sátu þær Margrét og móðir mín sælar saman og ekki man ég glaðari menn en þá Guðmund og föður minn, er þeir sátu á tali saman, heyrðust þá stórir hlátrar og dillandi. Það lætur því að lík- um að vel hafi verið tekið á móti okkur er við komum á leiðarenda. Húsfreyjan hæg og hljóðlát lagði mig blíðlega að vanga sér og handtak hennar hlvtt og undur mjúkt yljaði inn' að hjartarótum. Húsbóndinn tók mig í arma sína, lyfti mér hátt upp, kyssti mig og hló. Þannig var ég boðin velkomin í jólafögnuðinn í Landa- koti. Það var rúmgott húsnæði í Landakoti, enda var þess full þörf, því margt fólk var þar í heimili. Húsin voru tvö og gang- ur milli húsanna, svo ekki þurfti að fara út þegar farið var milli húsa. Aðalhúsið var ein hæð og loft, niðri voru tvær stofur með suðurhlið (borðstofa og stássstofa) og forstofa á milli þeirra. Ur borðstofu var gengið fram í rúmgóðan gang, þar var stiginn upp á loftið, dyr á hægri hönd vísuðu inn í eldhúsið, en dyr til vinstri inn í stórt og rúmgott búr. Eld- húsið var stórt, úr því voru dyr inn í gesta- herbergi, það herbergi leit ég ævinlega hýru auga þegar ég stálpaðist, því þar voru bækur húsbóndans í stórum skáp, sem náði til lofts. Dyr voru úr svefnherbergi inn í stássstofuna. Uppi á lofti voru þrjú her- bergi stór, hjónaherbergið eða kvisturinn með tveimur gluggum í suður, stúlkna- herbergið í austurenda og piltaherbergi í vesturenda. 1 þessum herbergjum var setið við vinnu. Nyrðra húsið hafði verið byggt er garnli bærinn var rifinn, var það einnig port- bvggt og bjuggu sjómenn þar á vertíðum. Þetta jólakvöld voru bæði húsin ljósum prýdd, svo að hvergi bar á skugga. I borð- stofu var stórt dúkað borð prýtt kertaljós- um. Húsbóndinn settist nú við orgelið í stássstofunni og urðu þeir að syngja er Systurnar María Eiríksdóttir fósturdóttir hjónanna í Landakoti og Guðrún Eiríksdóttir fósturdóttir hjónanna á Hliði á Álftanesi. sungið gátu. Guðmundur var einkar lag- inn á að koma fólki í stemningu og fá það til að syngja. Voru nú sungnir jóla- sálmar góða stund áður enn sezt var að borðum. Guðmundur í Landakoti var fyrirmann- legur í sjón og ágætum gáfum gæddur og svo glaður og skemmtilegur að lengra verður vart jafnað. Hann var söngmaður ágætur, hafði fagra bassarödd, hann hafði á hendi um tugi ára söngstjórn og organ- istastarf í Kálfatjarnarkirkju, var kirkju- söngur þar, að sögn kunnugra, betri og fágaðri enn þá gerðist út um sveitir lands- ins. Kristleifur sál. Þorsteinsson fræðaþul- ur á Stóra-Kroppi í Borgarfirði hefur ritað um sönginn í Kálfatjarnarkirkju í Kirkju- ritið 1940, einnig er í ritinu Úr byggðum Borgarfjarðar, grein, Söngur og söngmenn, getur hann þess þar, er hann í fyrsta sinni kom í Kálfatjarnarkirkju, sá Guðmund koma í kirkjuna þá ungann og glæsilegann með flokk ungra manna, sem allir höfðu æft með honum söng. Lýsir Kristleifur síðan þeirri hrifningu er gagntók hann undir messunni og segist aldrei hafa heyrt slíkan söng. Segir Kristleifur að til Guð- mundar hafi valist á vertíðum gáfaðir og söngelskir menn, einkum úr Borgarfirði og Arnessýslu. Guðmundur í Landakoti stundaði nokk- uð lækningar, einkum útvortis, las einnig mikið í þeim fræðum. Mun hann hafa gjört þetta einungis til að reyna að líkna, því á þeim tímum voru fáir lærðir læknar og fólk svo fátækt að það leitaði þeirra ekki nema í ýtrustu neyð. Hygg ég að óhætt megi segja, að Guðmundur tæki aldrei borgun fyrir þessa þjónustu. Guðmundur í Landakoti var fæddur 28. febr. 1841, var hann elzti sonur hjónanna þar, Guðmundar Brandssonar síðar al- þingismanns og Margrétar Egilsdóttur bónda á Þórustöðum á Vatnsleysuströnd, Guðmundssonar prests á Kálfatjörn Böðvarssonar prests í Guttormshaga, Högnasonar prests í Breiðabólsstað Sig- urðssonar. Kona Egils hreppstjóra á Þóru- stöðum og móðir Margrétar var Guðrún Magnúsdóttir bónda á Brunnastöðum á

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.