Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1956, Qupperneq 7

Faxi - 01.12.1956, Qupperneq 7
F A X 1 119 Avarp til ungskáta Flutt á fyrsta sveitarfundi Heiðarbúa í Keflavík, þann 11. október 1956. Það er regn, stormur og myrkur. — Dökkir skuggar læðast fyrir utan glugg- ann minn, — nakin trén í garðinum híma í ró dauðans. Hin litlu strá og hvert smá- blóm munu nú brátt sveipast snjó vetrar- ins. Það er keflvískt haust. Eftir dásamlegt sumar hópist þið nú í skólana, glöð og ánægð. Glöð yfir vel unnu sumarstarfi, ánægð fyrir að fá að glíma við þær þrautir, er skólinn leggur ykkur á herðar á komandi skólaári. Og í kvöld eruð þið hvað ánægðust, er þið finnið, að félag það, er þið elskið og dáið, er að hefja sína vetrarstarfsemi. Brjóst okkar fyllast þrótti og þjóðernistil- finningu er hefur okkur úr viðjum hvers- dagsleikans upp á það tilverustig, þar sem við sjáum ekkert annað en leik og starf, okkur sjálfum, bæ og þjóð til gagns og gæfu. En eitt verðum við að muna og það er, að fyrst af öllu verðum við að rækja skyld- ur okkar við heimili og skóla, áður en við göngum til leiks og starfa í okkar ágæta félagi. En til þess að við getum sinnt okk- ar hugðarmálum sem mest og bezt, verð- um við að læra eitt af því, sem hverjum manni er nauðsynlegt að nema, vilji hann framkvæmd verði öllum sem að henni standa og öllu byggðarlaginu í heild til góðs“. Við höfum nú haft Huxley á pínubekkn- um allgóða stund, svo oss finnst ráðlegt að hætta. Bollinn er tómur og vindillinn bráð- um búinn. Við þiggjum ekki meiri góð- gerðir þrátt fyrir ítrekað boð, stöndum upp, þökkum góðgerðirnar og kveðjum hans myndarlega heimili. Eg veit að góðar óskir fylgja þessu fyrir- tæki, ekki aðeins frá Huxley, heldur okk- ur öllum, því ef vel til tekst, eins og við vonum, erum við enn skrefi nær betri, ódýrari og erfiðisminni framleiðsluhátt- Höskuldur Goði Karlsson. komast áfram í heiminum, og það er, að fara hyggilega með tímann. Um þetta at- riði ætla ég nú að tala lítillega við ykkur. Margir frægir og athafnasamir menn hafa sagt, að tíminn væri sinn auður. Og það er eins með þann auð og aðra fjársjóði, er margt fólk fær handa á milli, að það ntetur hann sjaldan mikils, fyrr en það er búið að sóa honum. Sá, sem hefur eytt til ónýtis hinum dýrmæta sáningartíma, mun sjá það um seinan, að hann hefur ekkert að hirða í uppskeru lífsins. Glataðan auð má vinna sér inn aftur með iðjusemi, glataðan fróðleik með námi, glataða heilsu með reglusemi og læknis- lyfjum, en tíminn, er við glötum, er glat- aður til eilífðar; glötuð stund kemur aldrei aftur. Margar eru afsakanirnar og viðbárurn- ar er við vanrækjum það, sem við eigum að gera, en enginn er tíðari en sú, að við höfum ekki haft tíma til þess. Við tælum sjálf okkur á engum hlut meira en þeirri ímyndun, að ef við hefðum tíma til, mynd- um við koma því og því af. Margt ungt fólk hefur löngun til að menntast. Það sér, hversu mikið er varið í menntun og fróðleik, það sér, að það, sem það fer á mis, veldur því að það verður aftur úr á skeiðvelli lífsins, en því finnst það alltaf hafa nóg að gera og enga stund hafa af- gangs til námsins. Þetta er viðkvæðið. Þannig hljóðar við- báran, sem dáðleysi okkar og eigingirni blæs okkur i brjóst til þess að smeygja okk- ur undan hinum margvíslegu skyldum, er samviska okkar býður okkur að rækja. En sannleikurinn er sá, að hvergi eru færri góðverk unnin en þar, sem nægstur er tíminn. Lítum t. d. á þá, er mestu hafa af- rekað fyrir sjálfa sig og til almennings- heilla. Hvaða menn eru það? Eru það auð- menn, sem hafa nógan tíma, og sem ekki hafa annað að gera en éta og sofa? Nei — það eru flestallt eljumenn, sem aldrei eru óvinnandi árið um kring. Það eru þess konar menn, sem hafa tíma til að vinna að góðgjörða'rfyrirtækjum, sinna fátækl- ingum og mennta sig sjálfir með lestri og íhugun. I einni stofu í peningaverksmiðju í Fíla- delfíu, þar sem gullið er slegið, er gólfið allt lagt örmjóum trélistum, er eiga að hirða allt gullduftið, sem niður fellur, með- an verið er að smíða. Síðan eru listarnir teknir upp á hverju kvöldi og gullsáldinu safnað saman og brætt síðan upp og smíð- að úr því. Við getum lært af þessu dæmi, að fara spart með tímann. Söfnum saman gullsáldi tímans, höfum glöggar gætur og vakandi auga á þeim úrtíningi, þessum smábitum úr dögum og stundum, sem eru svo lítils virði hver út af fyrir sig, en harla mikils, ef þeir eru allir lagðir saman, þá munum við fá nægar tómstundir og hafa mikinn hag af. Sá, sem er nízkur á augnablikin, hefur góðar gætur á og hagnýtir sér hverja mínútu, er honum verður afgangs, eigi síður en hverja hálfa stund og hvern óvæntan leyfisdag, er honum hlotnast, en flestir fleygja frá sér ónotuðum — hann verður ekki í tímaþroti á æfikvöldi sínu, og hann kveður þennan heim auðugri að andlegum verðmætum og með meiri upp- skeru góðra verka, heldur en fjöldi ann- arra, er hafa haft nægan tíma, en varið honum illa. Höskuldur Goði Karlsson. um. G. Sv. Munið: AÐALSTÖÐIN — Sími 515 og 5151 Keflavíkurflugvelli

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.