Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1956, Page 11

Faxi - 01.12.1956, Page 11
F A X I 123 Minneapolis séð norður eftir 10. stræti. við þekktum nokkuð til. Þó hittum við konu, er á ættingja í Keflavík og Njarð- víkum. Heitir hún Kristín Guðmundsson (fædd Sæmundsdóttir). Hefur hún dvalið í Bandaríkjunum síðan um eða fyrir alda- mótin síðustu. Er hún gift Kristjáni Guð- mundssyni kaupmanni í Mountain. Var hún með dóttur sinni Rose, sem er kenn- ari við barnaskólann þar í borg. Báðu þær okkur að skila kveðjum til ættingja og vina í Keflavík og Njarðvíkum, þar til þær kæmu sjálfar, sem þær höfðu mikinn hug á að gera, svo fljótt, sem tækifæri gæfist. Við höfðum naumann tíma til þess að líta inn á heimili fólks, þó heimsóttum við einn af mörgum vinum séra Olafs, John Hillmann og sem var okkur sér- staklega alúðlegur og hjálpsamur. Drukk- um við hjá þeim hjónurn kaffi að íslenzk- um sið og dvöldum um stund á hinu snotra heimili þeirra. Að skilnaði bað Hill- mann mig að skila kveðju til Birgis Ólafssonar og Hauks Nordström, er hjá honum höfðu dvalið fyrir skömmu, en voru nú farnir til Islands. Séra Ólafur vígðist til þessa safnaðar þá um vorið og var ætlunin að verða þar eitt ár. En þann stutta tíma, sem ég dvaldi í Mountain, var ekki hægt að komast hjá að taka eftir því, hve séra Ölafur er þar mikils metinn og megum við því búast við, að dvöl hans þar verði lengri en ætlað var í fyrstu. En við óskum þess þó inni- lega, um leið og við kveðjum hjónin og þökkum þeim fyrir ógleymanlegar stund- ir, að við megum fljótlega sjá þau aftur heima á gamla Fróni. Nú var lagt af stað til Grand-Forks, sem er horg rétt við landamæri Norður-Dakota og Minnesota og eru íbúar um 27 þús. Leið þessa fórum við í áætlunarbíl og tók hún um tvo tíma. I Grand-Forks er háskóli. Þar er próf. Richard Beck kennari. Kennir hann þar meðal annars íslenzku. Við heimsóttum hann og dvöldum hjá honum meðan við biðum eftir lestinni. Vildi hann gjarnan sýna okkur háskólann, en til þess var eng- inn tími. En tíminn var notaður til þcss að segja fréttir að heiman og til þess að fræðast um nútíð og framtíð landanna fyr- ir vestan haf. Richard Beck sagði okkyr, að íslenzkan ætti mjög erfiða aðstöðu vestra. Innflytjendurnir, sem enn lifa, tala ís- lenzku. Afkomendur þeirra gcra það einn- ig, en þriðja kynslóðin talar ensku, aðeins fáir læra íslenzku. Þannig er hætt við, að íslenzkan deyi út, áður en langt um líður, fyrir vestan, þó eru líkur til, að hún lifi enn um skeið í hinum fjölmennari íslend- ingabyggðum. Richard Beck fylgdi okkur á brautar- stöðina og þar skáluðum við að skilnaði í Goca-Cola og lögðum nú af stað til Minneapolis. I lestinni sváfum við af og til um nótt- ina og komum aftur til Minneapolis kl. 6,30 um morguninn. Þegar á hótelið kom lágu fyrir okkur verkefni dagsins og þar með, að mér ásamt nokkrum öðrum var boðið að skoða barna- skóla þar í borginni kl. S,45 um morgun- inn. Það var stuttur tími til svefns, en þó lögðum við okkur stundarkorn. Eg hafði óskað þess að mega sjá fyrir- mvndar eða góðan barnaskóla einhvers staðar á ferð okkar og nú vorum við stadd- ir í skóla, sem var nokkurskonar æfinga- skóli og í sambandi við háskólann þar í borginni. Við náðum tali af skólastjóranum, sem veitti okkur ýmsar upplýsingar. Gátum við nú fylgst með kennslu í nokkrum bekkjum barnaskólans. Þannig var byggingu háttað, að skóla- stofurnar lágu út að gangi, en meðfram stofunum voru upphækkaðir pallar og af þeim gátum við fylgst með kennslunni í skólastofunni. Var það ýmist, að við horfð- um á kennsluna gegnum glugga á veggn- um, er þannig var gerður, að aðeins sást inn um hann, en að innan var hann sem spegill, eða við hvortveggja horfðum og hlustuðum á kennsluna af pöllunum gegn- um glugga, er í var strengt fínt en þétt vírnet. Þar sem glerið var fyrir geta áhorf- endur fylgst með kennslunni án þess að trufla nemendur eða kennara, en engri truflun virtist nærvera okkar valda, þótt til okkar sæist úr skólastofunni. Skólastofurnar voru mjög rúmgóðar og búnar fjölbreyttum kennslutækjum. Svart- ar töflur voru á veggjum, en lausar töflur voru þar einnig í grænum lit. Borðin í sumum bekkjunum voru þannig að borð- platan var á hjörum og mátti einnig hafa hana hallandi. Víðast sat eitt barn við borð, nema í yngstu bekkjunum 2. í hverri stofu var píanó. Allur virtist skóli þessi frjálslegur og agi ekki strangur. En börnin virtust háttprúð og hin eldri þrosk- uð og laus við allan óróleika og ys, sem oft veldur erfiðleikum við kennslu. 23—25 börn eru í hverjum bekk. Hver kennari er þarna aðeins stuttan tíma, lengst 3 ár. Kennir þar hver sína námsgrein. Vel var fylgst með líkamlegum þroska barnanna. Sjón og heyrn er vandlega at- huguð og svo að segja daglega fylgst með heilsufari þeirra. Við hlustuðum á söngkennslu í tveim- ur bekkjum, sennilega 10 og 12 ára. Þar Minnismerki Káins við Þingvallakirkju í Eyford.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.