Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1956, Page 19

Faxi - 01.12.1956, Page 19
F A X I 131 Kristinn Pétursson: Við lágum í bökum PúltiÖ og taflan, sem hótt uppi hékk, horfðust í augu við tossabekk. — En höfuð manns hugsaði biturt um verzlunarmenntun og verzlunarmátt, já, viðtengingar- og framsöguhátt og œtlaði að verða viturt. Stundirnar liðu. Og stofan varð björt af stöfum, sem kennarinn harla ört teiknaði á töfluna svarta. Margföldun, deiling og x + y, útkomur, brotabrot, geislar og pi skelfdu margt hrifnœmt hjarta. Maður botnaði í bragfrœði og — beit á jaxlinn í hagfrœði, sem annars var ekki snúin, en maður vildi ekki verða of vitur í framan, nei. Guði sé lof, að tíminn — er tíminn var búinn. Debet og kredít og dispút um val dálkanna, en Journal og Memoríal hlóðust á borð og bekki. Og kallaði einhver: Kennari! Þá kvað við: Sögðuð þér kennari? Hvern andskotann skiljið þér ekki? í dönskunni reyndist oft kunnáttan klén og kennarinn þráspurði, stífur og pen: — Naa, altso, naa, altso> ja men . . . En nemandinn vaknaði af vœrum blund, kannaðist ekki við kennslustund og svaraði: Amen, já, amen. Við lágum í bókum og lásum — fljótt á litið — í þúsund og eina nótt og þuldum í sœld og þrautum. Ó, hversu maður í minnið gróf og skotraði augum við skrifleg próf að sjá á hjá sessunautum. (Ur Kantötu Verzlunarskólakandídata 1955.) ar víða mjög þröngar og óreglulegar. Hús- in há og hallast sums staðar saman að of- anverðu. Allt er hér vafið í skógi og á sumrin mun blómskrúð vera hér mikið. I gegnum borgina rennur áin Neckar, lygn og fögur. (Eg hefi útsýni yfir hana úr herbergisglugganum mínum.) Á sumr- in leigir fólk sér báta og rær á henni sér til skemmtunar. Uppi á hæð hér rétt hjá gnæfir gamall kastali. Frá honum er í góðu skyggni hið fegursta útsýni yfir um- hverfið. — Eg læt hér staðar numið við lýsingu á borginni, en læt í þess stað 3 myndir fylgja, máli mínu til skýringar. — Þótt ágætt sé að vera hér, þá er nú nlltaf bezt að vera hcima. Og tíðreikað verður huganum á heimaslóðir. Eg bið þig, eða „Faxa“ að skila hjartans kveðju minni til allra Keflvíkinga og Njarðvík- inga, yngri sem eldri. Eg bið góðan Guð að vaka yfir bæ og byggð og blessa hvert heimili og hvern einstakling, sérhvert starf, sem unnið er, bæði heima og að heiman. Eerðu sérstaklega blessuðum börnunum í skólunum kveðju mína, svo og kennurum og skólastjórum. Björn Jónsson. P. s. Viltu láta þess getið, að utanáskrif / / * min er nuna: Herrn Pastor Björn Jónsson Ev. Stift, Túbingen, Deutschland.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.