Faxi - 01.12.1956, Síða 21
F A X I
133
S,
JÓLIN
KRAFTSÚPA.
114 1. kjötkraftur af kálfakj. — 1 dl. rjómi.
4 eggjarauður. — Salt.
Eggjarauðurnar og rjóminn er þeytt
saman, þeytt áfram á meðan sjóðandi kjöt-
kraftinum er hellt út í. — Þetta má ekki
sjóða saman. Framreitt með eggjakúlum
eða niðurskorinni eggjahvítu.
Þá fer jólahátíðin í hönd einu sinni
enn. — Nú er það húsmóðirin, sem ber
hita og þunga dagsins í enn ríkara mæli
en áður. — Undirbúningur jólanna er
langur og erfiður. — Það þarf um svo
margt að hugsa. — Ekki má gleyma að við
verðum að hugsa til pyngju húsbóndans,
— að við göngum ekki of nærri mánaðar-
laununum. Það þarf að sauma föt á börnin,
eða jafnvel að takast á hendur ferð í höf-
uðborgina með allan hópinn og ganga húð
úr búð, móta föt og skó o. s. frv.
Húsmóðirin hugsar og „spekúlerar'* —
það þarf meira en litla skipulagshæfileika
til að allt nái saman, svo allt fari vel. —
Oft ásaka eiginmennirnir okkur fyrir
eyðslusemi. — Nú skal ég ráðleggja þér
að senda „gamla manninn" sjálfan í
nokkrar sendiferðir. — Eg gæti bezt trúað
að hann hætti að nöldra á eftir!!
Húsmóðirin þarf að hreinsa húsið hátt
o g lágt, baka og búa til sælgæti ,svo er það
sjálfur hátíðamaturinn, nei við höfum sko
harla lítið frí, þegar allt kemur til alls. —
Því flestar verðum við að nota kvöldin,
þegar barnahópurinn er komin í rúmið,
og „kallinn“ getur þá leyft sér að halla sér
út af með blað í hönd og beðið um einn
kaffibolla.
Annars átti þetta nú ekki að verða nein
rauna upptalning. — Því jólin er hátíð,
sem við gleðjumst á. — Hátíð, sem okkur
öllum er kærkomin og ekki síst á Islandi,
þar sem skammdegið grúfir yfir.
Jólin er hátið barnanna og við gleðjumst
með þeim, en við megum aldrei gleyma að
segja þeim frá Honum, sem er okkar sam-
eiginlega jólagjöf.
Við getum líka gjarnan hugsað til allra
þeirra hrjáðu, sem engin jól fá. Látum
hugan reika ofurlítið austur til Ungverja,
sem með hetjulund eru ennþá að reyna
að brjótast undan oki, sem stórveldi legg-
ur á þá. — Biðjum algóðan Guð og styrkja
þá í raunum þeirra, — og veita þeim
styrk.
Börnin lesa æfintýri, en móðirin er sú
sem verður að hlusta á þau.
*
Bölsýnismaðurinn segir: „Ef ég reyni
ekki, þá tapa ég ekki“.
Bjartsýnismaðurinn segir: „Ef ég reyni
ekki, þá get ég ekki unnið“.
KÁLFASTEIK.
114 kg. kálfakjöt. — 40 gr. hveiti.
50 gr. flesk (bacon). — 100 gr. smjör.
2 tsk. salt. — /4 1. kjötkraftur.
14 tsk. pipar. — 1 dl. rjómi.
Kjötið, helzt læri, er skorið í þunnar
sneiðar og barið. — Fleskið er síðan strengt
utan um sneiðina. Það er gott að festa
með tálgaðri eldspýtu. Blandið saman salti,
pipar og hveiti, veltið kjötinu þar úr. —
Steikt á pönnu úr smjörinu brúnuðu, síð-
an er kjötkraftinum og rjómanum hellt
yfir, steikin látin hægsjóða í 45 mín. —
Nauðsynlegt er að hafa djúpa pönnu eða
bara góðan pott með flötum, góðum botni.
Við suðuna myndast sósan. — Borið fram
allt á einu fati. — Með þessu er gott að
hafa stappaðar kartöflur, súrar agúrkur og
grænar baunir.
Þessi poki er einkar þægilegur, þar sem pláss
er lítið. — Hver skólatelpa getur saumað hann.
— Efnið getur verið hvað sem er. Þægilegt
og ódýrt.
Eg vil nota tækifærið og óska ykkur
öllum gleðilegra jóla og nýs árs.
Platína.
Kjörbúðin, Keflovík
Munið Kjörbúðina í jólainnkaupunum
Fjölbreytt álegg
5 tegundi raf saladi
Sendum heim í desember.
Kjörbúðin, Hringbraut 55
> 04>&XX>OOO<XXX