Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1956, Page 22

Faxi - 01.12.1956, Page 22
134 F A X I Svanhildur Sigurgeirsdóttir, Tjarnargötu 29, Keflavík. Þessi unga og glæsilega stúlka lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík nú á s. 1. vori. Mun Svanhildur vera fyrsta konan, með heimilisfestu í Keflavík, sem lýk- ur stúdentsprófi. Svanhildur hefir nú innrit- ast í heimspekideild háskólans og les þar í vetur forspjallavísindi. Mun enn óráðið hvað hún hyggst taka fyrir í framtíðinni, en hvað svo sem það nú kann að verða, þá óskar Faxi henni og foreldrum hennar til hamingju með þessa glæsilegu frammistöðu. Hugleiðing um jóla- trésfagnað barnanna Oðum styttist til jóla, með öllu umstangi og öþarfa áhyggjum. Því miður er búið að hlaða of miklum umbúðum utan um sjálfa hátíðina, eða tilgang hennar. Það er sízt að undra þótt mörgum vilji gleymast innsti kjarni jólahátíðarinnar, að minnsta kosti blessuðum börnunum. En mikið er gert fyrir þau um jólin, sem vitanlega á að vera þeim til yndis og ánægju, þó brugðist geti til beggja vona með eftir- köstin. Meðal annars, sem gert er fyrir börnin um jólaleytið eru barnaböllin. Þau eru lof- samleg viðleitni þeirra félaga og annara samtaka, er gangast fyrir þessum skemmt- unum. Víða er sá háttur hafður, að bjóða gömlu fólki á þessar samkomur, eða aðrar slíkar, einhvern annan dag. En það má ekki gleymast, að þetta er gert í sambandi við jólin, því þyrftu þessar skemmtanir að fara fram með öðrum hætti en venjulegar skemmtanir, yfir þeim á að hvíla friður Fi Y | Ritstjóri og afgreiðslumaður: HALLGR. TH. BJÖRNSSON. Blað- A A I stjórn: HALLGR. TH. BJÖRNSSON, MARGEIR JÓNSSON, KRIST- INN PÉTURSSON. Gjaldkeri: GUÐNI MAGNÚSSON. Auglýsingastjóri GUNNAR SVEINSSON. Verð blaðsins í lausasölu kr. 10,00. — Prentað í Alþýðuprentsmiðjunni. Banki í Keflavík Keflavík og byggðir á Suðurnesjum vaxa með ári hverju og að sama skapi eykst þáttur þeirra í efnahagsþróun þjóðarinnar með auknum útflutningi sjávarafurða. Ekki verður útgerð eða framleiðsla sjávar- afurða rekin, nema með bankaviðskiptum og er því bæði dýrt og tímafrekt, að sækja öll þau viðskipti til Reykjavíkur. Vitanlega fell- ur það í hlut forsvarsmanna fyrirtækjanna, að annast þcnnan mikilvæga þátt rekstursins, og verða þeir oft daglega að sinna þessum störfum og geta þannig ekki sinnt fyrirtækj- um sínum heima fyrir sem skyldi, en allir hljóta að skilja, hve bagalegt slíkt er, jafnvel þótt þýðingarminni atvinnugrein ætti í hlut. Þarf það ekki frekari skýringa. Vert er að henda á, að með vaxandi byggð og fjölgandi fólki, getur ýmiss iðnaður aukið atvinnulífið, sem er nauðsynlegur þáttur í slíkri þróun, en til þess að það megi takast, þarf bankaviðskipti, sem staðsett séu í Kcfla- vík. Það stefnir því allt að sama marki fyrir okkur, ef við viljum vöxt og viðgang þessa bæjarfélags, sem auðvitað er, þá er okkur nauðsynlegt, að fá hér útibú, helzt frá báðum aðalbönkunum í Reykjavík, enda eiga þessir bankar orðið útibú í flestum hliðstæðum bæjum landsins og má af því nokkuð marka, hvort þessi hugmynd er gripin úr lausu Iofti eða á við rök að styðjast. Forráðamenn bæjarins verða nú að taka höndum saman og vinna að því, að hér verði kolnin bankaútibú strax á næsta ári, ef þeir vilja að cðlileg þróun haldist. Hér í Keflavík starfar sparisjóður, sem gegnir mjög merku hlutverki, enda eina pen- ingastofnunin, sem lánað hefir fé til fram- kvæmda og þó sérstaklega til íbúðarhúsa- bygginga, og hefir hann með starfsemi sinni stuðlað að því, að hér í Kcflavík og um Suð- urnes er nú þegar búið að byggja mikið af góðum og myndarlegum íbúðarhúsum. Það cr því ekki til slíkra framkvæmda sér- staklega, sem við óskum eftir bankaútibúi, heldur fyrst og fremst til stuðnings atvinnu- rekstrinum, sem sparisjóðurinn hér hefir ckki haft fjármagn til að sinna. Það sem sagt er hér að framan, er meira alvörumál en kannskc margur hyggur, því með staðsetningu bankanna hér, mundi mikið fé, sem nú er greitt í vexti til Reykjavíkur, stöðvast hér í Keflavík og notast til nýrra framkvæmda og aukins atvinnulífs í okkar unga og vaxandi bæ. og ró, að svo miklu leyti, sem unnt er. Það á að skapast af skilningi hinna eldri, á til- gangi jólanna. I sambandi við barnaböllin hef ég oft heyrt kvartað um að litlu börnin væru hrædd við jólasveinana, sem koma þar fram, og skemmta börnunum. En litlu börnin eru óvön skeggjuðum körlum, enda þeir oft ferlegir ásýndum. Af þessu myndast oft grátur og óþarfa hávaði ásamt miklum erfiðleikum fyrir mæðurnar, sem eru nú mættar með litlu börnin, í sínum fínustu fötum, sem oft er ánægjulegt að sjá, alla þá tilbreytni og hugkvæmni, sem mörg móðir leggur í útbúnað barna sinna. Vanalega eru þetta fyrstu skemmtanir, sem börnin fara á, því er gott að þaðan séu góðar endurminningar. Væri nú ekki tilbreytni, ef kona í hvít- um klæðum kæmi fram í stað jólasveins, til minnstu barnanna. Myndi hún spila og syngja fyrir börnin sálma og annað við þeirra hæfi. Visst fólk þyrfti að vera, sem stjórnaði dansinum kringum jólatréð og gætti þess að allt færi vel fram. Jólin eru talin hátíð barnanna, og eiga að vera það, við hinir fullorðnu megum ekki fara þann- ig að ráði okkar, að birta og friður jólanna hverfi í skvaldri og önn dagsins. Sumsstaðar er sá háttur hafður, að leika helgileiki um jólin, sem túlka ýms atvik úr helgisögunni, og um leið gera börnun- um skiljanlegra hvað skeð hafi endur fyrir löngu. Barnaböllin eru yndislegir mannfundir, aðeins ef hægt er að láta börnin vera stilt og prúð. Þetta held ég að mætti skapa með góðri fyrirmynd hinna eldri. Vil ég að endingu óska öllum börnum, sem væntan- lega mæta á jólatrésskemmtunum hér í bæ, gleðilegra jóla. Móðir. o<x>ooo<x>o<x>ooo^^ Aðalstöðin - Sími 515

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.