Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1956, Side 23

Faxi - 01.12.1956, Side 23
F A X I 135 i i Nætur- og helgidagavaktir læknanna í Keflavík: 15. til 21. des. Björn Sigurðsson. 22. til 28. des. Einar Ástráðsson. 29. des. til 5. jan. Bjarni Sigurðsson. 6. til 12. jan. Guðjón Klemensson. Nóvcmbermánuður er talinn hafa verið einhver sá votviðra- samasti, er elztu menn muna. Síldveiði hefir verið góð, þegar á sjó hefir gefið, en gæftir hafa hins vegar verið mjög stopular, vegna stöðugra umhleypinga. Þann 20. nóv. s. 1. hélt Kvennadeild Slysavarnafélags íslands í Keflavík hlutaveltu í Ungmennafélagshús- inu til ágóða fyrir starfsemi sína. Tókst hluta- veltan með ágætum að vanda og hefir formað- ur deildarinnar, frk. Jónina Guðjónsdóttir, beðið blaðið fyrir hjartans þakkir til allra þeirra, er á einn eða annan hátt studdu að því, að þessi hlutavelta tókst svo vel. „Bólstrunin" á Hátúni 4. Á s. 1. ári tók hér til starfa fyrirtæki undir þessu nafni, sem framleiðir allskonar stoppuð húsgögn og fylgist vel með timanum, hvað snertir gæði og nýjungar, eins og auglýsing frá fyrirtækinu, er birtist á öðrum stað hér í blaðinu, ber með sér. Eigandinn, Gunnar S. Hólm, sem er útlærð- ur bólstrari, hefir Stundað þá iðn í kring um 23 ár. I bólstruninni á Hátúni 4 er sjáanlega aðeins framleidd fyrsta flokks vara, enda er eftirspurn eftir húsgögnum þaðan mikil og vaxandi. Fárviðri. Aðfaranótt föstudagsins 30. nóv. gerði hér sunnanlands fárviðri eitt hið mesta um langt árabil. Olli veður þetta talsverðum skemmd- um víða, t. d. fauk allt sem lauslegt var og jafnvel þök af húsum. Hér í Keflavík var það til happs, að fárviðrið var af landátt og voru bátar í höfninni því í góðu vari. Hins vegar fauk hér m. a. þakið af annari hlið sundhallarinnar, en vegna landáttarinnar lentu þakplöturnar þar rétt hjá í svokölluð- um Bás og náðust þar flestar lítt skemmdar og var unnið að því á laugardag, að koma þaki sundhallarinnar aftur í samt lag, en þá var veðrinu slotað. Kafmagnslaus bær. Af völdum þessa fárviðris hlóðst sjávar- selta á einangrara við Irafossstöð, svo ein- angrarinn brann yfir (skammhlaup varð). Orsakaði þetta rafmagnsleysið hér suðurfrá á laugardaginn, sem flestum mun sjálfsagt í fersku minni. Meðan gert var við einangrar- ann mun rafmagn frá Elliðaárstöðinni og Ljósavatnsstöðinni hafa verið skammtað og deilt niður á Reykjavíkurbæ og nágrenni, en undir það heyra Suðumesin, sem oft i slíkum tilfellum fá að taka að sér hlutverk ösku- busku. Faxi. Enn er hægt að fá gömul Faxablöð hjá út- sölunni. Hringið í síma 114. Slysin og gatan. í seinasta Faxablaði var nokkuð rætt um slysin og slysahættuna á götunum. Hér verð- ur þetta mál ekki gert að sérstöku umræðu- efni, en samt vill^blaðið nú mjög eindregið og alvarlega vara fólk við hættunum, sem stöð- ugt fara vaxandi eftir því sem skammdegið vex og nær dregur jólunum. Þá beinir blaðið þeim tilmælum til bifreiðastjóra, að þeir sýni gangandi vegfarendum fulla tillitsemi. Mundi slík framkoma vera góð auglýsing fyrir það fyrirtæki, sem viðkomandi bifreiðarstjóri starfar hjá. Frystihólf. Eins og sjálfsagt margir vita, hafa Hrað- frystihús Keflavíkur h.f. og Kaupfélag Suð- urnesja komið upp geymsluhólfum fyrir félagsmenn kaupfélagsins í húsakynnum hraðfrystihússins. Hefir þetta lengi verið draumur margra félagsmanna, sem nú loks er orðinn að veruleika. Geymsluhólfin eru stór og rómgóð og leigunni mjög í hóf stillt, enda mun eftirspurn eftir þeim hafa verið mjög mikil. Þakkarkveðja til Karlakórs Keflavíkur. Með línum þessum vil ég þakka ykkur fyrir sönginn 18. þ. m. í verkalýðshúsinu í Kefla- vík. Það var mjög ánægjulegt að hlusta á ykkur, og þið sunguð mörg lögin með glæsi- brag. Þið áttuð það sannarlega skilið að fá troðfullt hús, og þið áttuð það líka skilið, hve hlustendur klöppuðu ykkur óspart lof í lófa. Það er mjög virðingarvert, hve þið fórnið miklum tíma til að þjálfa ykkur, þar sem þið eruð allir meira eða minna störfum hlaðnir, og er því hægt að segja, að þið hafið unnið mikið afrek með því að ná þessum árangri. Það er mér mikið gleðiefni að sjá ykkur svona marga unga og glæsilega menn hefja söngstarfsemi hér í Keflavík, því að það eru svo sorglega fáar skemmtanir hér í bænum, sem geta kallazt göfgandi. Söngurinn er list- ræn skemmtun, sem lyftir mönnum upp í æðra veldi. Ég segi því enn, þakka ykkur kærlega fyrir söngsveinar í Karlakór Keflavíkur. Og haldið umfram allt áfram að syngja og syngið svo að undir taki um öll Suðurnes. Þess væri ósk- andi, að þið gætuð sungið burt hið drunga- lega andrúmsloft, sem Suðurnesin eru svo rík af. — DD. Aukning á símastöðinni. í sumar hefur verið unnið all mikið að símalagningu í Keflavík og Ytri-Njarðvík. Lokið var að mestu við lögn í Ytri-Njarðvík, en það verk hefur verið unnið í áföngum á nokkrum síðustu árum. I fyrra var lokið við stofnlögnina þangað, en hún liggur inn að Borgarvegi.. Þá var eftir að dreifa línunum um nýbyggðina við Tunguveg, Klapparstíg, Holtsgötu, Hólagötu og víðar. Þar sem verk þetta hafði tekið til sín mikið fjárfestingarfé á liðnum árum var ákveðið að ljúka því nú, enda þótt það skilaði ekki jafnmörgum sima- notendum. Nýja hverfið sunnan Faxabrautar var einnig tekið fyrir, enda voru þangað margar flutn- ingsbeiðnir og sumar gamlar. Um síðustu áramót, þegar framkvæmdir þessa árs voru planlagðar var ákveðið að vinna að þessum tveimur framkvæmdum. Fjárveiting til þessa var, að heita má, það eina fjárfestingarfé, sem nota átti utan Reykjavíkur í ár, og var það gert með tilliti til þess að ljúka átti við 6000 númera viðbót- ina í Reykjavík, sem verið hefur á döfinni í nokkur ár. Náttúruöflin gripu þó frammí og breyttu þessari áætlun. Skip hlaðið síma- varningi sökk í Eystrasalti síðastliðinn vetur. Endurnýjun á þeim varningi tafði afgreiðslu verksmiðjunnar til Landssímans um 8—10 mánuði. Þetta þýddi það, að Keflavík fékk allmikla viðbótar fjárveitingu. Fé þetta var notað til lagna um fyrr greindann norðurbæ. Að vísu kom það ekki að fullum notum fyrir íbúa þessa bæjarhluta, vegna þess að stofn- lagnir vantar frá stöðinni norður að aðalgötu. En þó var hægt að fullnægja öllum flutn- ingsbeiðnum sem fyrir lágu og auk þess hægt að afgreiða örfáar elstu símabeiðnirnar. Vænt- anlega verður hægt að ljúka því verki á næsta ári. Árshátíð. Þann 24. nóv. s. 1. hélt Verkalýðs- og sjó- mannafélag Gerðahrepps upp á afmæli sitt í Samkomuhúsi hreppsins. í afmælishófi þessu var margt til fróðleiks og skemmtunar, m. a. var fluttur þar leikþáttur af heimafólki, Guðm. Jónsson söng einsöng með undirleik Fritz Weiseppel og Sigríður Hannesdóttir söng gamanvísur. Þá las form. félagsins upp meðfylgjandi vísur til afmælisbarnsins, eftir Sigurð Magnússon í Valbraut: Afl samtaka auka má, alþýðu það varði. Von og þróttur vaxi hjá verkalýð í Garði. Heyrir lýður hér í kvöld hugrekki og traust ei linni. Félag þetta fái völd, fylgi lukka hugsjóninni.

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.