Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1956, Blaðsíða 29

Faxi - 01.12.1956, Blaðsíða 29
F A X I 141 Sundmót með þótttöku Austur Þýzkra sundmanna Guðmundur Sigurðsson öll köstin, kúlu- varp, kringlukast og spjótkast. Þá er að minnast stærstu keppni okkar manna, en það er landskeppni við Dan- mörk og Holland. Þeir voru tveir fulltrú- ar Keflavíkur þar, Höskuldur Karlsson og Þorvarður Arinbjarnarson. Þeir stóðu sig með prýði, bæði hvað árangur snerti og hegðun og framkomu. Eftir ferðina var öðrum veitt viðurkenning fyrir góða hegð- un og framkomu. íþróttabandalag Keflavíkur háði keppni við Ungmennasamband Kjalarnesþings, Ungmennasamband Eyjafjarðar og Iþróttabandalag Akureyrar. Þetta var fjög- urra bandalaga keppni og fór fram á Ak- ureyri. Keppt var í tíu íþróttagreinum og tveir keppendur frá hverjum aðila í grein. Við stigaútreikning voru tekin út tvö og tvö sambönd og stigin reiknuð 5 fyrir fyrsta mann, 3 fyrir annan, 2 þriðja og eitt fyrir fjórða. Þegar stig höfðu verið reiknuð út varð niðurstaðan þessi: Í.B.K.—U.M.S.K. 62 stig gegn 45 stigum. Í.B.K.—U.M.S.E. 47 stig gegn 60 stigum. Í.B.K.—Í.B.A. 57 stig gegn 50 stigum. Að þessu sinni féll niður bæjakeppni milli Selfoss og Keflavíkur vegna þess að aðfaranótt dagsins sem keppa átti, slasað- ist einn úr liði Keflavíkur og af óviðráð- anlegum ástæðum var ekki hægt að halda keppnina seinna. Að endingu er hér svo samanburður á beztu afrekum 1955 og 1956 (sjá töflu á öðrum stað). Ekki er hægt að skilja svo við þetta að ekki sé minnst á þá keppni sem náði til fjöldans, Iþróttadagskeppnina. Þar sýndu Keflvíkingar svo mikinn áhuga að á ann- að hundrað komu og reyndu hæfni sína og lögðu þar með fram sinn skerf til þess að stuðla að sigri Iþróttabandalags Kefla- víkur. Þetta líka tókst og við útreikning kom í ljós að 4,20 stig komu á hvern með- lim. Næstir voru Vestmannaeyingar með 2,73 stig á hvern meðlim. Iþróttabandalag Keflavíkur færir öllum þeim er að sigr- inum stuðluðu sínar beztu þakkir og von- ar að á komandi sumri verði þátttakan enn meiri og sigurinn þeim mun glæsilegri. Þórhallur Guðjónsson. Eins og sagt var frá í síðasta blaði var haldið sundmót í Sundhöll Keflavíkur föstudaginn 23. nóv. s. 1. Meðal þátttakenda var Austur-Þýzkt sundfólk, sem kom hingað til lands í boði Glímufélagsins Ármann. Er ávallt mikill fengur að því fyrir okk- ur Keflvíkinga, að fá tækifæri til að kynn- ast erlendu sundfólki, sem hér er á ferð, enda er áhugi fyrir slíkum mótum mikill. Urslit mótsins urðu þessi: 100 m. skriðsunrf karla. 1. Pétur Kristjánsson Armann 1.00.6 mín. 2. Wolfgang Friske A.-Þ.... 1.01.6 — 3. Guðm. Gíslason Í.R...... 1.04.1 — 4. Bernd Bludan A.-Þ....... 1.04.8 — 5. Ólafur Guðmundsson Á . . 1.05.0 — 100 m. skriðsund kvenna: 1. Ágústa Þorsteinsdóttir Á 1.11.6 mín. 2. Hanna Kúnast A.-Þ.......1.13.3 — 50 m. baksund karla: 1. Karl Schneider A.-Þ........33,0 sek. 2. Sigurður Friðriksson Keflavík 34,7 — 3. Guðm. Gíslason Í.R........40,0 — Sigurður setti í þessu sundi nýtt Kefla- víkurmet, fyrra metið, sem hann átti sjálf- ur, var 35,0 sek. 100 m. bringusund karla: 1. Wolfgang Fricke A.-Þ..... 1.14.4 mín. 2. Torfi Tómasson Ægi .... 1.22.0 — 3. Einar Kristjánsson Ármann 1.23.0 — 50 m. bringusund drengja (14 ár og yngri): 1. Geirmundur Kristinsson K . . 39,0 sek. 2. Sigurður Baldvinsson K . 42,0 — 3. Sigurður Árnason K ....... 43,2 — 50 m. bringusund telpna (14 ára og yngri): 1. Ásta Margeirsdóttir K ..... 52,0 sek. 2. Jóhanna Sigurþórsdóttir K .. 52,8 — 3. Inga Helen K ............. 55,2 — 50 m. bringusund telpna (14 til 16 ára): 1. Sigríður Sigurbjörnsdóttir Æ. 40,8 sek. 2. Ágústa Þorsteinsdóttir Á ... .42,8 — 3. Bergþóra Lövdal Í.R. 50 m. flugsund karla: 1. Roberis Wolf A.-Þ..........30,5 sek. 2. Karl Schneider A.-Þ....... 31,3 — 3. Pétur Kristjánsson Armann . . 32,1 — 50 m. skriðsund r/rengja: 1. Guðmundur Gíslason I.R. .. 30,5 sek. 2. Sólon Sigurðsson Ármann .. 32,5 — 3. Hörður Finnsson Keflavík .. 33,0 — 100 m. bringusund drengja: 1. Gunnlaugur Jónss. Ármann 1.30.0 mín. 2. Hörður Tryggvas. Keflavík 1.31.0 — 3. Tómas Zoega Ármann .... 1.31.0 — 4X50 metra fjórsund karla: 1. Sveit Austur-Þýzkalands .. 2.07.0 mín. 2. Sveit úrv. R.vik og Keflav. 2.12.6 — Að endingu var sýndur sundknattleikur og léku Reykvíkingar við Þjóðverjana. Háði það leikmönnum sýnilega, hve laug- in var lítil, en áhorfendur virtust hafa mjög gaman að leiknum. H. G. Leiðrétting. I erindi eftir Sigurð Magnússon, sem birt- ist í 17. júní blaðinu í vor og nefndist „Til sólarinnar", varð slæmt línubrengl, sem rétt þykir að leiðrétta. Rétt er erindið þannig: Sólin, drottning himin hæða, hellir geislum yfir jörð. Foldarsárin fús vill græða, frjóvgar lífi blómahjörð. Gegn um marga skín hún skugga, skrýðir flest í dýrðarhjúp. Eftir mætti allt vill hugga. Opnar heimi kærleiks djúp. ■ SPARIÐ OG KAUPIÐ FISK AýyV/ fiskbúðin Sími 826 50 m. skriðsund drengja (14 ára og yngri): 1. Birgir Jónsson Ármann ... 35,0 sek. 2. Magni Sigurhansson K....... 36,4 — 3. Þórður Kristjánsson K ..... 36,8 — Aðalstöðin - Sími 515

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.