Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1956, Síða 33

Faxi - 01.12.1956, Síða 33
F A X I 145 4. flokkur knattspyrnumanna í. B. K. Fremri röð frá vinstri: Rúnar Júlíusson, Jón Jóhannsson, Kjartan Sigtryiggsson, Gisli Sig- hvatsson, Sveinn Pétursson. Aftari röð frá vinstri: Þórhallur Stígsson þjálfari, Pálmar Breiðfjörð, Karl Hermannsson, Gísli Ellerup, Einar Norðfjörð, Guðm. Guðmundsson, Guðm. Kr. Þórðarson, Stefán Bergmann, Einar Magnússon og Skúli Fjalldal þjálfari. nafnbætur eins og Gissuri Þorvaldssyni tókst. Þessi annarlegu sjónarmið höfðingjanna varð íslands óhamingja og leiddu til algerrar frels- isskerðingar. Árið 1262 hlaut Gissur jarlsnafnbót, en þjóðin missti frelsi sitt og játaðist undir álög- ur Hákonar Noregskonungs. 21 ári áður hafði Gissur þénari Noregs- konungs látið Islendinginn Árna beisk höggva frá boinum dýrasta höfuð Norðurlanda — höfuð snillingsins Snorar Sturlusonar, sem skapaði og eftirlét þjóð sinni einhver dýr- mætustu snilldarverk heimsbókmenntanna. Höfuð sitt missti Snorri fyrir það, að hann fékkst ekki til að svíkja land sitt undir kon- ung. Hann, sem skráði söguna um frelsisbaráttu fyrstu landnemanna, viðskitpin við Una danska, viðbrögð Einars á Þverá við erind- um Þórarins Nefjólfssonar. Hann, sem gaf þjóð sinni perluna dýru, söguna um land- vættirnar. Hann — eitt rammíslenzkasta skáld og andans maður, sem ísland hefur átt, sem með snilligáfu sinni skynjaði anda Brodd- Helga, Eyjólfs Hallgerðarsonar, Þórodds goða og Þórðar gellis svífa yfir vötnunum í líki landvætta. Hann hlaut heldur að týna lífi en svíkja sitt land. Hann öðrum fremur gaf með snilld sinni íslandi tignarheitið: „Öndvegi andans í Norðurhöfum". Ágirnd, valdagræðgi og þýmennska höfð- ingja Sturlungu aldar urðu þjóðinni þung byrði. Undir þeim drápsklyfjum mátti hún stynja í rúmar 6 aldir. Þegar alþýð* þessa lands saddi hungur sitt á skóbótum og hroða, barst henni engin erlend aðstoð, engin vernd. Þegar neiðin var stærst, var hjálpin fjærst frá útlendum þjóðum. Á tímum sárra þreng- inga voru trúarljóð Eysteins munks hennar eina huggun. Og síðar, þegar enn meir svarf að, skyggn- umst við inn í dimmt og hrörlegt hús uppi á Hvalfjarðarströnd. Þar stynur á beð kaunum hlaðið þjóðskáld íslendinga, Hallgrímur Pét- ursson, sem orti einhver fegurstu trúarljóð, sem ort hafa verið í heiminum. Dýrðleg hugg- un og traust umkomulausrar smáþjóðar, sem berst upp á líf og dauða fyrir tilveru sinni. Höfundur þjóðsöngs okkar spyr því ekki að ástæðulausu: „Því er dimmt í þjóðhöfðingj- ans rann, því er engin hirð um slíkan mann“. Um svipað leyti eða litlu fyrr, situr suður á Bessastöðum Tómas Nikulásson fógeti, um- boðsmaður hans hátignar Friðriks 3. konungs yfir Danmörku og Islandi af guðs náð eins og það hefur verið orðað. Sá umboðsmaður hélt sig stórmannlega á kostnað landsmanna, kvaddi bændur óspart til að rífa hrís, svíða kol, rista torf og inna af hendi hvers konar skylduverk, samkvæmt befaling hans hátign- ar. Frægur var hann fyrir misbeiting valds síns. í híbýlum þess þjóðmærings var næg birta. 12 árum fyrir andlát Hallgríms Péturssonar var örlagaríkt ár í sögu þjóðarinnar, þegar fyrirmenn landsins voru á þingi suður í Kópavogi látnir undirrita einvaldsskuldbind- ingu um afsal þeirra fornu landsréttinda, sem þeim bar samkvæmt Gamla sáttmála. Það er eftirtektarvert, að þetta aukna tilræði er gert í skjóli blekkinga. Hinrik Bjelke annaðist undirbúning og framkvæmdir. Hann skrifaði embættismönn- um landsins bréf seinni part vetrar og bauð að Friðrik konungi 3. skyldi svarinn erfða- hyllingareiður að Alþingi, þá um vorið. En hyllingareiðinn höfðu fyrirmenn landsins og almúgans fullmektugir unnið að Lögbergi með þrem upplyftum fingrum fyrir 13 ár- um síðan. Lögmanninn sunnan og austan á íslandi, herra Árna Oddsson að Leirá, mun hafa grun- að hver fiskur lá undir steini. Allar líkur benda til, að mjög hafi boðskapur lénsherra bugað þennan trausta mann, því á Alþingi um vorið sagði hann af sér lögmannsembætti. „Vandinn eykst en veröld spillist" kvað lög- maður. Hann sá í gegnum þokuna. Lét samt undan fyrir þrábeiðni manna og hvarf frá ætlan sinni. Hann og meistari Brynjólfur voru einasta traust og vörn landsmanna gegn sívaxandi ásælni danska valdsins. Traustir sem bjarg berjast þessir 2 menn 11. aldar hlið við hlið og tekst alloft með lagni og hyggindum að hindra ágang Dana. Örugg reyndist forusta þeirra á leiðarþing- inu að Leirá, er Lögmaður hélt, til að fá því afstýrt að Verzlunarfélagið fengi sitt fram, að herða enn frekar á verzlunarfjötrunum. Lögmanni og biskupi tókst að sigra i það sinn og oftar. En við ramman reip var að draga. Og róður þeirrar aldar var þungur. Því er það að nöfn þessara manna virðast alloft gleymast, þegar vikið er að frelsisbar- áttu þjóðarinnar. Stöldrum því andartak við á þinginu suð- ur í Kópavogi 28. júlí 1662, sem lénsherra boðaði til, þar eð hann náði ekki til Alþingis í tæka tíð. Þar eru samankomnir lögmenn báðir, biskupar, 42 prestar, 17 sýslumenn, 45 lögréttumanna og bændur — almúgans full- mektugir. 26. júlí eru menn þessir kvaddir til Bessa- staða, að visu fleiri, sem aldrei komu. Léns- herra undirbýr fyrirmenn landsins undir ein- valdsskuldbindinguna með ljúfmennsku, sem honum var lagin. Lofar að vera á verði um að réttindi landsmanna verði sem minnst skert. Víst er, að meistari Brynjólfur og hinn sjötugi öldungur frá Leirá sjá lengra fram í tímann. Dráttur sá er varð á þingsetningu er talinn stafa af þrjósku öldungsins. Rök hans þá, sem jafnan voru rök Einars á Þverá. Hann minnir á þunga ábyrgð forsvarsmanna landsins fyrir óbornum niðjum þessa lands. Hinn hógværi lénsmaður tekur að ókyrr- ast og bendir á hermenn hans hátignar og hótar að beita valdi, enda vel þess megnugur með sveit hermanna og fyrir utan í Seilunni lá herskip eitt mikið. Á konunglega bókasafninu úti í Kaup- mannahöfn er bók, sem blaði hefur verið <<<<><><><<><þ<><><t><><><><><><t<><t<><><<><><<><<<><><><><><<<><<><><><><>t<><><><>0<Þ<><<><><><><>^^ Ath.: AÐALSTÖÐIN opin allan sólarhringinn - Sími 515 og 5151 Keflavíkurflugvelli

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.