Faxi - 01.12.1956, Blaðsíða 39
F A X 1
151
Egill Hallgrímsson, kennari:
ODDSVITI í GRINDAVÍK
Á undanfömum árum hefir verið rætt um
á hvern hátt eigi að heiðra minningu sr. Odds
V. Gíslasonar, er lengi var prestur í Grinda-
vík, og sem að allra dómi var merkur braut-
ryðjandi um slysavarnir og mikill framfara-
maður um allt er laut að útgerð og sjósókn.
Nokkrar hugmyndir munu hafa komið
fram, t. d. sú, að reist verði á Grímshóli á
Vogastapa minningarkapella um sr. Odd.
í grein, sem birtist í Mbl. 7. okt. 1954, kom
fram, að ég hygg í fyrsta sinn, sú tillaga, að
reisa til minningar um sr. Odd veglegan inn-
siglingarvita í Grindavík, sem bæri nafn hins
mikla brautryðjanda og vísaði sjófarendum
leiðina inn í hina nýju höfn í Hópinu með
sterku ljósi og héldi á þann hátt áfram
björgunar- og framfarastörfum sr. Odds.
Hugmyndin er frá Agli Hallgrímssyni kenn-
ara, enda mun hann fyrstur hafa hreift þessu
máli. Eftir að hugmyndin um Oddsvita kom
fram, tóku að berast myndarlegar gjafir í
þessu skyni, og er þeirra að nokkru getið í
meðfylgjandi grein, er Egill Hallgrímsson rit-
aði um málið 8. apríl s. 1. Síðan greinin er
rituð hafa enn borizt myndarlegar gjafir til
vitans, t. d. frá Kvennadeild Slysavarnafél.
Islands í Keflavík, er á þessu ári hélt upp á
25 ára starfsafmæli sitt, en við það tækifæri
gaf deildin rausnarlega gjöf til Oddsvitans í
Grindavík.
Draumurinn um Oddsvita í Grindavík er
nú að nokkru orðinn að veruleika. I sumar
var þar settur upp radíóviti, sem enn starfar
reyndar á tilraunastigi, en spáir þó góðu um
framtíð sína, þegar lagfæringar hafa verið
gerðar og nokkur reynsla fengist. Til þess að
slíkur viti komi að fullu gagni, þurfa fiski-
skipin að hafa sérstök radartæki, sem ennþá
munu aðeins vera komin í 2 báta. Vonandi
leiðir þessi tilraun með radíóvita í Grinda-
vik til aukins öryggis fyrir ísl. fiskiskip og
mun þá ekki standa á því, að slíkum tækjum
verði víðar upp komið, — en sem sagt, hérna
kemur þá hin ágæta grein Egils Hallgríms-
sonar:
Ritstj.
I dag eru liðin 120 ár frá fæðingu séra
Odds V. Gíslasonar, brautryðjandans
mikla í slysavörnum hér á landi.
A undanförnum árum hefir margt verið
rætt og ritað um síra Odd og störf hans,
meðan hann dvaldist hér á landi og hans
lofsamlega minnzt að vcrðleikum.
Síra Oddur var fæddur í Reykjavík 8.
apríl 1836. Hann þjónaði Staðarprcstakalli
í Grindavík á árunum frá 1878 til 1894 og
stundaði sjóinn jafnfram af kappi og fyrir-
hyggju. A þessum árum hóf hann haráttu
sína fyrir slysavörnum.
Síra Oddur var fjölhæfur gáfumaður
Oddur V. Gíslason.
með manndómslund og flutti mál sitt af
miklu kappi í ræðu og riti. Hann var um
margt langt á undan samtíð sinni, hafði
langsjónarmið að leiðarljósi, var sem lýs-
andi viti, er vísaði leiðina í slysavarnamál-
um þjóðarinnar. Hann barðist fyrstur
manna fyrir þeirri hugsjón að koma á
slysavörnum hér á landi og hóf með því
á loft mcrki slysavarnahreyfingarinnar á
Islandi.
Svo sem flestir brautryðjendur mætti síra
Oddur tómlæti og skilningsleysi. Landar
hans báru á þeim tíma lítt gæfu til þess
að hlíta leiðsögn hans og forsjá. Þjóðin
virtist ekki skilja hvað hann var að fara.
Hann hvarf af landi brott til Vesturheims
og dvaldist þar síðan til æviloka. En nú
metum vér mikils hið merka brautryðj-
andastarf hans í þágu slysavarnanna á Is-
landi.
Við brottför síra Odds féll niður mcrki
slysavarna hér á landi, og það var ekki fyrr
en löngu seinna, eða árið 1928, er Slysa-
varnafélag Islands var stofnað, að merkið
var hafið á ný. Síðan hefir félagið og
deildir þess unnið af áhuga og fórnfýsi í
þágu þessa göfuga málefnis, svo að um allt
land loga nú bjartir kyndlar þeirrar hug-
sjónar, er síra Oddur barðist fyrir. Björg-
unarafrek Islendinga hafa að verðleikum
vakið mikla athygli og aðdáun erlendra
þjóða.
Fyrir einu og hálfu ári síðan kom fram
sú hugmynd, að reistur yrði til minningar
um síra Odd veglegur innsiglingarviti í
Grindavík, sem hæri nafn hans og vísaði
sjófarendum leiðina inn í hina nýju höfn
t Hópinu með sterku ljósi og radíóvita.
Slíkur viti myndi fullnægja þörf grind-
vískra sjómanna og annarra þeirra, er þar
leita hafnar. Vita þennan ætti að reisa sem
allra fyrst og fyrir almanna fé sem þakk-
lætisvott alþjóðar fyrir hið merka braut-
ryðjandastarf síra Odds.
Hér færi vel saman að efla slysavarnir,
auka öryggi sjófarenda við landtöku í
Grindavík í myrkri og dimmviðri og
minnast látins brautryðjanda í slysavörn-
um á sjó á viðeigandi hátt.
Síra Oddur dvaldist, svo sem fyrr segir,
í Grindavík um nokkurt skeið sem sókn-
arprestur og sjósóknari og hóf þar baráttu
sína fyrir slysavörnum. Ætti minning hans
því fyrst og fremst að vera lielguð Grinda-
vík.
Grindvíkingar hafa ekki látið niður falla
slysavarnir, þótt brautryðjandinn hyrfi
þaðan. Þeir urðu fyrstir til þess að bjarga
mannslífum úr sjávarháska með björgun-
artækjum Slysavarnafélags Islands og hafa
flestar bjarganir hér við land farið fram í
Grindavík frá því Slysavarnafélagið var
stofnað.
Er ánægjulegt til þess að vita, að vax-
andi áhugi er nú fyrir því, að reistur verði
innsiglingarviti í Grindavík til minningar
um síra Odd. Á forseti Slysavarnafélags
íslands, hr. Guðbjartur Ólafsson, þakkir
skyldar fyrir ágætar undirtektir í máli
þcssu þcgar frá upphafi. Margar fjárgjafir