Faxi - 01.12.1956, Blaðsíða 41
F A X I
153
Innsiglingin til Grindavíkui'. (Uppdráttur þessi er frá Vitamálaskrifstofunni).
munu þegar hafa borizt í sjóð þann,
er verja á til kaupa á radíóstefnu-
tækjum til væntanlegs Oddsvita, og
ntí síðast hin rausnarlega gjöf slysa-
varnadeildarinnar Hraunprýði í
Hafnarfirði.
A fyrstu árum Félags Suðurnesja-
manna í Reykjavík var stofnaður
sjóður innan félagsins, er heitir
Slysavarnasjóður Félags Suðurnesja-
manna og verja skyldi til slysavarna
á Suðurnesjum. Mætti nú ætla að
Félag Suðurnesjamanna vildi fyrir
sitt leyti heiðra minningu síra Odds
með því að láta sjóð þennan renna
að einhverju eða öllu leyti til vænt-
anlegs Oddsvita, en vel má vera að
sjóðnum sé nú ætlað annað hlutverk
en hið upphaflega, það er að reisa
hina fyrirhuguðu minningarkapellu
á Grímshól á Vogastapa og lýsa upp
heiðina og hraunið.
Gera má ráð fyrir að næsta lands-
þing Slysavarnafélags Islands, sem
háð verður hér í Reykjavík í þessum
mánuði, heiðri minningu síra Odds
með fjárframlagi til væntanlegs
Oddsvita og ætla má að þeir, sem
fara með fjármál ríkisins og vita-
og hafnarmál landsins láti ekki sinn
hlut eftir liggja, að vinna að fram-
gangi þessa nauðsynjamáls.
Æskilegt hefði verið, að vitinn
hefði byrjað að leiðbeina sjófarend-
um í dag á 120 ára fæðingarafmæli
síra Odds, en vonandi verður þess
ekki langt að bíða að vitinn rísi af
grunni.
Vitabygging þessi á að vera fögur,
táknræn og listræn og íbúum staðar-
ins og þjóðinni allri til sóma.
Fyrir nokkrum árum voru stór-
endurbætt hafnarskilyrðin í Grindavík og
hefir síðan verið þar aukin útgerð og mik-
ið athafnalíf.
Umhverfis Hópið (höfnina) í Grinda-
vík, sem liggur við hin fengsælu fiskimið,
er sérkennilegt bæjarstæði. Þar mun á
komandi árum rísa fallegur bær og verða
einn mesti útgerðar- og athafnastaður á
Suðurnesjum.
Mikil breyting hefir orðið á sjósókn og
veiðiaðferðum Islendinga og hagnýting
sjávarafurða hér á landi frá því sem var á
dögum síra Odds, en öll þessi mál lét
hann sig miklu skipta. — Þjóðin hefir nú
tekið nýtízku tækni í þjónustu sína á öll-
um sviðum atvinnulífsins og slysavarn-
anna.
Egill Hallgrímsson.
<XXX><><><><><>«><><><XX><><X>«X><><XXX><XXX><XX><X><><XXX><><XXX> 000<c>GG><i>G0<i>G0<i><Í>G><Í>0GG><>G<>0<i><t<><><t>00<i><>G<><í>00<i>00G><c>G0G><<>
Munið Innlánsdeildina
6V2% vextir.
+
KAUFÉLAG SUÐURNESJA
Myndir og málverk
til tækifærisgjafa .
-K
RAMMAR OG GLER
Sólvallagötu 11 — Sími 342
GXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX<>&<><><><><><><><><><><><> <XX>«XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX