Faxi - 01.01.1960, Blaðsíða 4
4
F A X I
S. E. Hlíðar: Nokkrar Árnesingaættir
bls. 88).
Séra Þorvarður faðir Skúla alþm. varð
prestur í Holti undir Eyiafjöllum 1847—62,
varð þá prestur að Prestsbakka á Síðu og
hélt því kalli til æviloka. Hann var þrí-
kvæntur, var Skúli alþm. af fyrsta hjóna-
bandi hans. Hálfbróðir Skúla alþm. var
séra Þorvarður prestur í Vík í Myrdal f.
1863, d. 1948, en hann var sonur Val-
gerðar, síðustu konu séra Þorvarðar.
Synir séra Þorvarðar Þorvarðarsonar eru
svo sem kunnugt er þeir Kristján læknir
í Reykjavík og séra Jón, prestur í Háteigs-
prestakalli í Reykjavík. Er þetta mikil
prestaætt, sem rekja má á ýmsa vegu.
Högni Ketilsson var fæddur 9 .apríl
1857 á Skála undir Eyjafjöllum, það er
á Ásólfsskála, en þar bjuggu foreldrar
hans þau Ketill Eyjólfsson og kona hans
Ólöf, f. 12. okt. 1829, Jónsdóttir í Mið-
skála, f. 1801, Jónssonar bónda á Mið-
skála, f. um 1755, Jónssonar bónda í
Tungu í Landeyjum, f. 1718, Guðmunds-
sonar. Móðir Ólafar var Halla Högna-
dóttir, f. 1. júní 1796 í Neðradal undir
Eyjafjöllum, líklega dóttir Högna Þor-
leifssonar, er bjó í Neðradal 1801.
Ketill, faðir Högna, var albróðir Ólafs
á Náströnd í Keflavík, þess mæta manns
(sjá Faxa XV, 2. tbk). Hann var fæddur
7. ágúst 1827 í Hvammi undir Eyjafjöll-
um en þar bjuggu foreldrar þeirra bræðra,
Eyjólfur, f. 1804, d. 1842, Ketilsson bónda
á Sauðhúsvelli, f. 1765, Valdasonar.
Eyjólfur Ketilsson fékk þann vitnisburð
hjá presti sínum, er andlát hans var fært
inn í prestsþjónustubók, að hann hefði
Skúlj Högnason.
verið „einstakur blíðlyndismaður, greið-
vikinn til allra handtaka — iðjusamur og
kappsamur, duglegur erfiðari").
Kona Eyjólfs í Hvammi var Jórunn,
f. 1804, Ólafsdóttir bónda í Hvammi, f.
1760, Tómassonar og konu hans Ólafar
Sveinsdóttur ljósmóður, er bjó í Hvammi
eftir mann sinn og kom upp mörgum
börnum þeirra. Alsystir Högna var Jórunn
Ketilsdóttir, amma Þórarins Guðnasonar
læknis í Reykjavík. Mun mikil ætt vera
komin frá því Hvammsfólki.
Þeim Önnu og Högna varð fimm barna
auðið, en þau voru: 1. Helgi, ólst upp
hjá móðurfólki Onnu. Dó uppkominn og
ókvæntur. 2. Skúli, f. 31. júlí 1887, d. 4.
júlí 1936. Var fyrirtaks trésmiður og
byggingameistari í Keflavík, frábær verk-
maður og vandaður maður, sem ekki
mátti vamm sitt vita. Kona hans var Guð-
rún Jónsdóttir útvegsbónda í Kothúsum
í Garði, Helgasonar (Faxi XIX, 5. tbk).
Synir þeirra hjóna eru Jón verkfræðingur
í Reykjavík og Rósant bifreiðastjóri í
Keflavík. 3. Jón, f. 17. jan. 1889, d. 10.
febr. 1889. 4. Þorvarður, f. 19. júlí 1893.
d. 4. ágúst 1893. 5. Severína Petrína, f. 11.
nóv. 1895, kona Ólafs Bjarnasonar út-
gerðarmanns í Keflavík. Rína var hún
kölluð, er hún var að vaxa upp i Keflavík,
hin elskulegasta stúlka í sjón og raun,
hæglát og prúð og öllum góð.
Einkadóttir þeirra Severínu og Ólafs
er Elín, kona Marteins Árnasonar skrif-
stofustjóra í Keflavík.
Anna Skúladóttir andaðist 30. apríl
1940, Högni Ketilsson 13. okt. 1942.
Severína Petrína Högnadóttir.
Sigurþór Guðfinnsson.
Fimmtugur:
Sigurþór Guðfinnsson
útgerðormaður
Þann 14. jan. s.l. var Sigurþór Guð-
finnsson útgerðarmaður fimmtugur.
Sigurþór er borinn og barnfæddur Kefl-
víkingur, sonur hjónanna Þorgerðar Þór-
oddsdóttur og Guðfinns Eiríkssonar, sem
bjuggu alla tíð í Keflavík. Var Guðfinnur
þekktur sjósóknari og lengi í félagsskap
um útgerð við mág sinn, hinn kunna út-
gerðarmann, Árna Geir Þóroddsson, sem
um langt skeið setti svip sinn á athafna-
líf þessa bæjarfélags.
Bræður Sigurþórs eru þeir Sigurgeir og
Guðmundur, en hann hefir verið .skip-
stjóri á bátum þeirra bræðranna, ávallt
aflahár og farsæll í starfi. Sigurþór er vin-
sæll og duglegur útgerðarmaður, kvæntur
er hann Kristjönu Magnúsdóttur, ættaðri
frá Patreksfirði. Hún var áður gift Þórði
Sigurðssyni vélstjóra, sem lézt af slysför-
um. Með honum átti hún 4 börn og
hefir Sigurþór reynzt þeim sem sínum
eigin börnum, en þau hjónin eiga 2 efni-
legar dætur.
Blaðstjórn Faxa.
Verkaskipting innan blaðstjórnar verður
hin sama á þessu ári og hún var s.l. ár.
Formaður blaðstjórnar er Hallgrímur Th.
Björnsson, varaform. Margeir Jónsson og
Kristinn Pétursson ritari. Ritstjóri verður
Hallgrímur Th. Björnsson, eins og undan-
farin ár.