Faxi - 01.01.1960, Síða 6
6
F A X I
Nú hringjum yið beint
í jólablaði Faxa var sagt frá fram-
kvæmdum við hina nýju, sjálfvirku sím-
stöð í Keflavík, sem ákveðið var að byggja
1956. Þess var einnig þar getið, að verkinu
miðaði svo vel áfram, að líklegt þætti,
að hin fjögurra ára áætlun, um að því yrði
lokið um áramótin 1960, stæðist, og að
sjálfvirki síminn yrði kominn í notkun
þegar næsta Faxablað kæmi út.
Þessi áætlun hefir fullkomlega staðizt,
sem mun allt að því einsdæmi, þegar um
opinberar stórframkvæmdir er að ræða.
En stöðin var tekin í notkun að kvöldi
kl. 22 hinn 2. jan. s.l. að viðstöddum póst-
og símamálastjóra, Gunnlaugi Briem,
ásamt mörgum forsvarsmönnum landssím-
ans. En þangað var einnig boðið bæjar-
stjórn Keflavíkur og bæjarstjóra, nokkr-
um forustumönnum hreppsmála í Njarð-
vík og fréttamönnum blaða og útvarps.
Þangað var einnig boðið hinum ýmsu
verktökum, er stóðu að byggingu nýja
stöðvarhússins, ásamt þeim mönnum, er
unnu að uppsetningu sjálfvirku vélanna.
I ræðu, er póst- og símamálastjóri flutti
við þetta tækifæri, gat hann þess, að hér
væri ekki um vígslu að ræða, heldur sýn-
ingu á þeim áfanga, sem náðst hefði með
opnun sjálfvirkrar innanbæjarafgreiðslu í
Keflavík. Keflavíkurstöðin, sagði hann,
er gerð fyrir 1400 númer.
Undanfarið hafa verið 880 símanúmer
í Keflavík, en þau aukast um 100 númer
við opnun þessarar stöðvar og 100 bætast
þar við innan skamms. Með opnun stöðvar-
innar er fyrsta áfanga náð í framkvæmd,
sem var ákveðin 1956. Þá var mikið öng-
þveiti framundan í símamálum Keflavík-
ur, gamla stöðin var orðin slitin og nærri
engir stækkunarmöguleikar fyrir hendi,
húsrými allt of lítið og óviðunandi starfs-
skilyrði fyrir afgreiðslufólkið. í heild fel-
ur framkvæmdin í sér ekki aðeins sjálf-
virka stöð innan Keflavíkur, heldur einnig
sjálfvirkt samband við Reykjavík og
Hafnarfjörð, svo og minni sjálfvirkar
stöðvar í Gerðahreppi, Innri-Njarðvík,
Sandgerði og Grindavík, svo og sjálfvirkt
samband þeirra á milli og við Keflavík,
Reykjavík og Hafnarfjörð.
Vorið 1957 var gengið frá endanlegum
samningum við firmað L. M. Ericsson í
Stokkhólmi um kaup á sjálfvirkum bún-
aði í þessar framkvæmdir en afhendingar-
frestur á svona búnaði er að jafnaði um
tvö ár. Tímaáætlunin hefur staðizt varð-
andi innanbæjarstöðina í Keflavík, en
sjálfvirka sambandið við Reykjavík og
stöðvarnar í Gerðahreppi, Sandgerði og
Grindavík mun ekki komast á fyrr en á
næsta sumri, því að efnið er ekki enn
komið til landsins.
Til þess að koma sjálfvirka búnaðinum
í Keflavík fyrir, varð að reisa viðbygg-
ingu við póst- og símahúsið þar. Að af-
loknu útboði tóku Byggingaverktakar
Keflavíkur að sér að reisa húsið, Aðal-
steinn Gíslason, rafvirkjameistari í Sand-
gerði, tók að sér raflögn, en Sighvatur
Einarsson & Co. í Reykjavík hitalögnina.
Uppsetning sjálfvirku tækjanna hófst
um miðjan ágúst s.l. og er nú að kalla
lokið. Rúmlega 7000 vinnustundir hafa
farið í uppsetninguna og hafa unnið við
hana 4 Svíar frá firmanu, auk 7—11 Is-
lendinga. Fulltrúi firmans, Björn Herneke,
verkfræðingur, stjórnaði uppsetningunni.
Sjálfvirki búnaðurinn er af nokkurrí
annarri gerð en sá, sem er á stöðvunum
í Reykjavík og Hafnarfirði. I honum eru
notaðir veljarar, þar sem tengisnertar
þrýstast saman í stað þess að strjúkast
yfir hver aðra. Slitið á þeim er því mun
minna, auk þess sem tengihraðinn er
meiri. 1 þessari stöð eru nokkur sérnúmer
m. a. fyrir klukku. Klukkan er þó ennþá
ekki kominn í samband (en verður senni-
lega komin í samband þegar línur þessar
birtast í blaðinu).
Þess er vænzt, að hin nýja stöð í Kefla-
vík muni greiða mjög fyrir bættri síma-
afgreiðslu þar, og ekki sízt þegar sjálf-
virkt samband við Reykajvík og nokkrar
aðrar stöðvar kemst á næsta sumar.
Eftir að póst- og símamálastjóri hafði
lokið máli sínu, klippti hann á streng og
skildi þar með á milli gömlu stöðvarinnar,
handunnu og hinnar nýju sjálfvirku, með
einu handtaki. Síðan valdi hann fyrsta
númerið eins og meðfylgjandi myncl sýnir.