Faxi - 01.06.1960, Qupperneq 12
92
F A X I
FAXI
Ritstjóri og afgreiðslumaður: HALLGR. TH. BJÖRNSSON. Blað-
stjórn: HALLGR. TH. BJÖRNSSON, MARGEIR JÓNSSON, KRIST-
INN PÉTURSSON. Gjaldkeri: GUÐNI MAGNÚSSON. Auglýsingastjóri: GUNNAR
SVEINSSON. Verð blaðsins í lausasölu kr. 10,00. — Prentað í Alþýðuprentsmiðjunni.
Sjómannadagurinn 1960
SUÐURNESJAMENN!
Trésmíðaverkstæði
Héðins og Hreins
Önnuhúsi í Ytri-Njarðvík
býður yður þjónustu sína.
Smíðum:
Eldhúsinnréttingar
(Leggjum áherzlu á nýtízkulegt
fyrirkomulag. Útvegum teikn-
ingar, ef óskað er).
Innbyggða skápa
(Höfum sýnishorn af mjög
fullkomnum rennihurðaútbún-
aði. Húsbyggjendur ættu að
kynna sér þessa nýung á verk-
stæði okkar).
Gluggar
(Smíðum glugga fyrir tvöfalt
gler með sérstaklega öruggum
lausafögum, vatn- og vindþétt-
um).
Sólbekkir
(Margar gerðir og margvíslega
' uppsettar. Plastsýnishorn fyrir-
liggjandi).
Svalahurðir
(Tvöfaldar með karmi).
Bílskúrshurðir
(Úthúum og setjum upp „bal-
lanshurðir" fyrir bílskúra og
fleiri byggingar).
Nánari upplýsingar á verkstæðinu og
eftir vinnutíma í síma
! 2352.
;______________________________
Sjómannadagurinn að þessu sinni var
hinn ánægjulegasti, enda var veðrið yndis-
legt og mikil og almenn þátttaka i hátíða-
höldum dagsins. En þau hófust með því að
safnazt var saman við barnaskólann kl. 1
og þaðan gengið til hafnarinnar með lúðra-
sveit bæjarins t fararbroddi.
Athöfnin við höfnina hófst með því að
sóknarpresturinn, séra Björn Jónsson, flutti
guðsþjónustu og blómsveigur var lagður
á hafið til minningar um drukknaða sjó-
menn.
Minni dagsins flutti Margeir Jónsson.
Iþróttir dagsins hófust með kappróðri,
4 sveitir kepptu. Tvær sveitir fullorðinna
og tvær drengjasveitir. I keppni drengja
sigraði sveit Harðar Falssonar á 2:03,4
mín. Sveitina skipuðu eftirtaldir drengir:
Olafur Sigurðsson, Sævar Brynjólfsson,
Ibsen Angantýsson, Þorsteinn Arnason,
Sigurjón Þórðarson, Jónatan Einarsson.
Sveit nr. 2 fékk tímann 2:03,9 mín.
Sveitina skipuðu:
Stýrimaður: Marinó Jónsson, Olafur
Sveinsson, Ragnar Guðlaugsson, Baldur
Bragason, Gísli Sighvatsson, Brynjar
Hansson og Karl Taylor.
Keppni fullorðinna. Sveit Angantýs
Guðmundssonar sigraði nú í þriðja sinn
á tímanum 1:55,0 min. og vann til eignar
bikar þann, sem gefinn var til verðlauna
fyrir þessa keppni.
Sveitina skipa, auk Angantýs, eftirtaldir
menn:
Bragi Sigurðsson, Rúnar Hallgrímsson,
Marinó Haraldsson, Guðm. Haraldsson,
Björn Jóhannsson.
Önnur svcit fékk tímann 2:06,7. Hana
skipuðu:
Jóhannes Jóhannesson, stýrimaður,
Héðinn Jónsson, Kjartan Sigurðsson,
Isleifur Guðleifsson, Þorkell Indriðason,
Halldór Brynjólfsson, Jónatan Agnars-
son.
Stakkasund:
1. Hörður Falsson, 53,2 sek.
2. Ingólfur Falsson, 1:14,8 mín.
3. Hlöðver Hallgrímsson, 1:15,1 mín.
Togað var reipi milli bryggja og dró
sveit Ibsens Angantýssonar keppinauta
sína í sjóinn, en sveitina skipa, auk hans,
Gunnar K. Þorgeirsson, Valur Símonar-
son, Hlöðver Hallgrímsson og Margeir
Sigurbjörnsson.
Hina sveitina' skipuðu þeir Hörður
Falsson, Ingólfur Falsson, Þorsteinn Arna-
son, Sigurður Heberts, Kjartan Sigtryggs-
son og Ölafur Sveinsson.
Klukkan 5 fór fram á íþróttavellinum
knattspyrnukappleikur milli skipstjóra og
vélstjóra. Sigruðu vélstjórar með 4 mörk-
um gegn engu.
I hálfleikshléi var keppt í stakkaboð-
hlaupi, og sigraði sveit Ingólfs Falssonar.
Með honum voru: Björn Jóhannsson, Þor-
steinn Arnason og Einar Erlendsson.
Hina sveitina skipuðu þeir: Hlöðver
Hallgrímsson, Magnús Sigurðsson, Ibsen
Angantýsson og Kjartan Sigtryggsson.
Sveit skipstjóra skipuðu:
Guðjón Jóhannsson, fyrirliði,
Magnús Bergmann,
Haukur Bergmann,
Jóhannes Jóhannesson,
Jónatan Agnarsson,
Örn Erlingsson,
Guðmundur Þorvaldsson,
Rúnar Hallgrímsson,
Pétur Guðmundsson,
Baldur Guðmundsson.
Karl Þorsteinsson.
Sveit vélstjóra skipuðu:
Hans Daníelsson, fyrirliði,
Friðrik Sigurbjörnsson,
Svavar Færseth,
Magnús Karlsson,
Björgvin Hilmarsson,
Steinn Erlingsson,
Arnoddur Tyrfingsson,
Eðvarð Vilmundarson,
Héðinn Jónsson,
Hörður Falsson,
Isleifur Sigurðsson.
Bikar þann, er veittur er fyrir mesta
þátttöku í íþróttum dagsins, hlaut Hörður
Falsson. Hann tók þátt í fjórum greinum:
róðri, stakkasundi, reiptogi og knattspyrnu.