Faxi - 01.01.1964, Qupperneq 14
Hugleiðing í tilefni af áttatíu ára
afmæli Góðtemplarareglunnar
Góðtemplarareglan átti 80 ára afmæli
10. janúar síðastliðinn. Þcim, sem skrifnðu
um afmælisbarnið þann dag í dagblöðin,
bar yfirleitt saman um, að fáar félags-
málahrcyfingar hafi haft meiri áhrif á þjóð-
skipulag okkar. Til dæmis cru fundarsköp
Alþingis sniðin eftir fundarreglum Templ-
ara. Um margra ára bil hafði Reglan al-
gera forystu í leikstarfsemi og yfirhöfuð
allri skemmtistarfsemi, jafnt í höfuðstaðn-
um sem úti á landi. Og um skeið rikti hér
á landi, fyrir tilstuðlan Reglunnar, algert
áfengisbann, en segja má að það sé eitt af
höfuðstefnuskráratriðum Templara. Hins
vegar er því e'kki að neita, að álirifa Regl-
unnar gætir mun minna í þjóðfélaginu
en áður var. Ástæðuna tcl ég aðallega þá,
að öll hugsjónastarfsemi á nú mjög erfitt
uppdráttar. Hvers kyns óheiðarleiki og
spilling hefur farið hraðvaxandi. Eitt dag-
blaðanna gat þess um daginn, að á fáum
mánuðum hefði komizt upp um fimm
stórfelld fjárglæramál. Nú á dögum er
yfir hcifuð ckki lalað um fjárdrátt nema
hann skipti milljónum.
Neyzla áfengis hefur sjaldan vcrið mciri
né almennari. Áður fyrr var mjög sjald-
gæft að konur brögðuðu sterka drykki,
nú þykir slíkt engum tíðindum sæta. ís-
lenzka þjóðin þarf sannarlega á sínum
Móses að halda nú, þrátt fyrir góðæri og
almcnna velmegun.
Sumir segja að Reglan þurfi cndurskoð-
unar við til að ná eyrum þjóðarinnar á
atómöld. Mín skoðun er, að slíkra sé ekki
himnaríkið. Séu það sannindi, sem Reglan
boðar, þá eiga þau sannindi jafnt við í dag
sem í gær. Sá, sem berst fyrir vindi og
byggir trú sína á fjöldanum, — hann
verður hvorki sterkur né langlífur.
Ég er það bjartsýnn að halda, að innan
tíðar muni upp renna hér á landi breyttir
tímar og breyttir siðir: Að hinum heiðar-
lega manni verði aftur fengið öndvegið.
Að hinu feyskna og spillta verði brátt vik-
ið til hliðar og því á eld kastað. Þá er ég
sannfærður um, að þeir er alla tíð börðust
gegn áfengis- og eiturlyfjaneyzlu verða
taldir góðir synir og verðir mikils trausts.
Hilmar Jónsson.
flPWp issssl
1® |1 !***«
ti
BIFREIÐA
TRYGGINGAR
f yr ir
Megináherzla hefur veriö lögö á tryggingar fyrir sannviröi, góöa þjónustu
og fræóslu og upplýsingastarfsemi.
Afsláttur á bifreiðatryggingum er 30%, ef bifreiö veldur ekki tjóni í eitt
ár og auk þess hefur veriö greiddur 10% tekjuafgangur þau 6 ár, sem af-
koma bifreiðatrygginga hefur leyft þaö.
Áherzla hefur veriö lögö á góöa þjónustu í hvívetna og fljótt og sanngjarnt
uppgjör tjóna.
StuÖlað hefur veriö aö betri umferöarmenningu og viöskiptamönnum veitt
fræösla um trygginga- og öryggismál.
Ef bifreið y'öar er ekki þegar tryggö hjá oss, hetðum vér ánægju af að leið-
beina yður um hagkvæmustu bifreiöatryggingu, sem völ er á.
SAMVIIVIXUTRYGGINGAR
14 — F A X I