Faxi - 01.06.1966, Blaðsíða 14
Sigurður Demetz Fransson.
Samsöngur í Keflavík
Laugardaginn 7. maí söng Karlakór
Keflavíkur í fyrsta sinn á þessu ári, undir
stjórn síns kornunga og bráðefnilega söng-
stjóra, Þóris Baldurssonar.
A svip hinna mörgu samkomugesta, sem
þetta kvöld fylltu Nýjabíó í Keflavík, var
að sjá mikla eftirvænting. Þetta sama fólk
hafði árum saman hlýtt á söng þessa ágæta
kórs undir markvissri stjórn mikilhæfs
söngstjóra. Mundi hinum unga reynslu-
litla æskumanni takast að fylla sæti meist-
arans, Hriberchecs; hvernig yrði þessi sam-
söngur? Jákvætt svar við spurningum þess-
um fékkst strax og kórinn hafði sungið
sitt fyrsta lag, enda var bæði söngstjóra og
söngmönnum óspart fagnað með dynjandi
lófataki.
Raddþjálfari kórsins nú sem áður er
Sigurður Demetz Fransson, sem að þessu
sinni söng einsöng með kórnum ásamt
þeim Hauki Þórðarsyni, Sveini Pálssyni og
Böðvari Pálssyni. Við flygilinn var Jónas
Ingimundarson.
Auk karlakórsins söng kvennakór,
einnig undir stjórn Þóris og vakti söngur
þeirra feikna hrifningu og gleði meðal
áheyrenda.
Söngskráin var í þremur köflum. Fyrst
söng karlakórinn, þá kvennakór og að
lokum sungu kórarnir saman.
Var söngskráin mjög efnismikil og fjöl-
breytt. Skiptust þar á létt og fjörleg lög
og efnismikil kórverk, bæði eftir ís-
lenzka og erlenda höfunda. Var þar m.
a. frumflutt listafallegt lag eftir tónskáldið
okkar Keflvíkinga, Bjarna Gíslason, sem
er einn af kórfélögunum. Var því for-
kunnarvel tekið. Þá voru þar einnig sung-
in nokkur lög Sigvalda Kaldalóns, snill-
ingsins þjóðkunna. Fer vel á því að Suður-
nesjamenn syngi lögin hans, því hann var
um langt skeið Suðurnesjamaður, sem
starfandi héraðslæknir með búsetu í
Grindavík.
Einsöngvarar kórsins, sem fyrr var getið,
fóru mjög vel með hlutverk sín, þeir hafa
allir áður sungið með kórnum og eru
kunnir hér fyrir góðan söng.
Að lokum er vert að geta þess, að báðir
kórarnir, söngstjóri og einsöngvarar, voru
óspart hylltir og urðu þeir að syngja mörg
aukalög. Söng sinn endurtók kórinn svo
á mánudag og þá aftur fyrir fullu húsi.
Síðan hefir hann haldið samsöngva víðar
hér um Suðurnes og alls staðar hlotið hin-
ar ágætustu viðtökur.
Eftir þessa ágætu hljómleika á Suður-
nesjum, tók karlakórinn ms. Esju á leigu
og fór mjög glæsilega söngför til Vestfjarða
um Hvítasunnuna. Að þessari ferð lokinni
Haukur Þórðarson.
Þórir Baldursson.
hitti ég að máli formann kórsins, Hauk
Þórðarson og tjáði hann mér, að ferðin
hefði í alla staði heppnast mjög vel.
Karlakórinn, ásamt kvennakórnum söng
fjórum sinnum, tvisvar á Isafirði, einu sinni
á Bolungarvík og á Patreksfirði. Var
húsfyllir á öllum hljómleikunum og
komust í sum skiptin færri að en vildu.
„Okkur var margvíslegur sómi sýndur”,
sagði Haukur: „T. d. hélt bæjarstjórn Isa-
fjarðar okkur samsæti. Við komuna til
Bolnugavíkur vorum við boðin velkomin
með stuttri ræðu, en á Patreksfirði tók
karlakór staðarins á móti okkur með söng
á bryggjunni. Vil ég nota þetta tækifæri
til að þakka öllum þeim mörgu sem stutt
hafa okkur á einn eða annan hátt á þessari
söngför og með því auðveldað okkur að
ná þessum árangri.
Ennfremur vil ég þakka skipstjóra og
skipshöfn á Esju fyrir ágæta aðbúð og
góðan viðurgerning.“
H. Th. B.
94 — FAXI