Faxi - 01.02.1967, Qupperneq 8
Leikfélag Keflavíkur:
ii
Leikrit í 3 þáttum eftir Einar
H. Kvaran. Leikstjóri Ævar R.
Kvaran.
Leikfélag Keflavíkur frumflutti þetta
ágæta leikrit þriðjudaginn 24. janúar s.l.
í Félagsbíói í Keflavík, fyrir fullu húsi
hrifinna, og þakklátra Keflvíkinga, sem
með sanni gátu verið stoltir af frammi-
stöðu síns unga og efnilega leikfélags, er
svo til eingöngu byggir starfsemi sína á
fórnfúsu starfi áhugasamra heimamanna,
undir stjórn hins kunna leikara, Ævars
R. Kvaran, sonar-sonar höfundarns.
Sé það haft í huga, að ekkert af þessum
leikurum hefur notið menntunar í leik-
skóla, má hiklaust telja frammistöðu þeirra
með afburðum góða.
Um höfundinn ætti ekki að þurfa að
fjölyrða. Einar H. Kvaran var fágað önd-
vegisskáld og hugsjónamaður, er setti svip
á íslenzkt þjóðlíf um og fyrir síðustu
aldamót með ljóðum sínum og öðrum
mannbætandi ritstörfum.
Leikritið Syndir annarra, er eitt af þess-
um ritverkum Einars. Þar er att saman
tveimur ólíkum sjónarmiðum, sem uppi
voru með þjóðinni, þegar hún var að
vakna til sjálfsforæðis á ný eftir margra
alda frelsissviftingu og kúgun. Sjónarmið
strípaðrar gróðahyggju, sem allt lét falt
fyrir peninga og sjónarmið hinna andlegu
verðmæta, þar sem samleið áttu ættjarðar-
f /
ást, þjóðlegur metnaður, umburðarlyndi
og sannur drengskapur, sem á engu góðu
kunni að níðast.
Eftir harða viðureign þessara óskyldu
afla, nokkurs konar ragnarök, — sigrar
hið góða og upp rís nýr og betri heimur,
ef svo mætti að orði kveða, og mennirnir
eru fúsir að fyrirgefa syndir annarra.
Eins og ég gat um í upphafi þessa
spjalls,, var sýningin í heild vel samfelld
og hrífandi. Leyndi sér ekki, að mikil
vinna og góð hafði verið lögð í æfingar
og allan undirbúning, bæði af leikurum og
leikstjóra, svo að vart mun slíks dæmi áður
hér í Keflavík.
Eins og lesendur Faxa rekur minni til,
var upphaflega ætlun leikfélagsins að hefja
sýningar á „Syndir annarra" í nóvember,
enda var þá búið að æfa mjög vel á
okkar keflvíska mælikvarða, en hinn á-
gæti og vandláti leikstjóri mun ekki hafa
verið á sömu skoðun og lét halda æfing-
um áfram, þar til framangreindum árangri
var náð.
Aðal persónur leiksins eru tvenn hjón:
Þorgeir Sigurðsson ritstjóra leikur Sverr-
ir Jóhannsson og æskuvin hans, Grím
Asgeirsson, yfirdómslögmann, leikur Pét-
ur Jóhannsson.
Segja má, að hlutverk Péturs sé einna
fyrirferðamest á sviðinu og er leikur hans
bæði öruggur og sannfærandi. Flutti hann
áhugamál sín af þvílíkum eldmóði og
sannfæringarkrafti, að ætla hefði mátt að
þar fjallaði um hlutverk lærður leikari.
Sverrir fór einnig mjög vel með sitt
vandasama hlutverk, en í því á hann innra
með sér í stöðugri baráttu við skugga for-
tíðar sinnar, jafnframt því sem hann þarf
að verja þjóðlega skoðun sína fyrir áleitni
vinar síns, lögmannsins, er vill fá hann
með illu eða góðu til fylgis við sig um
sölu Þingvalla til erlends auðkýfings.
Konu lögmannsins, Onnu, leikur Erna
Sigurbergsdóttir af næmleik og röggsemi,
hvort heldur hún er reið og í æstu skapi
eða glöð og hamingjusöm.
Konu ritstjórans, Guðrúnu, leikur Þór-
dís Þormóðsdóttir. Tókst henni að gera
mynd þessarar ungu konu bæði sannfær-
andi og minnisstæða í hinum margþættu
geðhrifum, sem hún þarf að túlka. Er
leikur Þórdísar að mínu viti listræn hnit-
miðun.
Frú Berg, ömmu Guðrúnar, leikur Jón-
ína Kristjánsdóttir frábærlega vel og af
góðum skilningi, og móðurlegri um-
hyggju fyrir velferð ungu hjónanna, sem
hún ann.
Þórdísi og Pétur skrifstofumann hjá
Grími lögmanni, leika þau Hanna María
Karlsdóttir og Þorsteinn Eggertsson. Er
leikur beggja með ágætum, bæði léttur og
blæbrigðaríkur. Enda þótt hvorugt hlut-
verkanna sé stórt, falla þau bæði vel inn í
heildina. Þorsteinn hefir leikið áður, og
er frjálsmannlegur á sviði. Sama má segja
um Hönnu Maríu, enda vakti hún þegar í
barnaskóla á sér athygli sem efni í góðan
leikara. Maríu, roskna, ógifta konu, leikur
Margrét Friðriksdóttir. Er þetta lítið hlut-
verk en prýðis vel leikið. Mundi Margrét
sjálfsagt valda öðru stærra verkefni.
Vinnukonurnar Rósa og Gróa eru leikn-
ar af Steinunni Pétursdóttur og Sigrúnu
Ingadóttur. Þetta eru ekki stór hlutverk,
enda munu þær báðar vera nýliðar. Var
leikur beggja góður, einkum þó Steinunn-
ar, enda má segja, að hlutverk hennar gæfi
fleiri tækifæri.
Onnur smáhlutverk má nefna: Stein-
þór kosningasmala, leikinn af Jóni Rík-
arðssyni og Ola sífulla, leikinn af Guð-
mundi Sigurðssyni. Báðir gerðu þeir hlut-
verkum sínum góð skil og féllu vel inn
í heildarmyndina.
Leiktjöld gerðu málararnir Helgi Krist-
insson og Kristinn Guðmundsson og voru
þau mjög vel gerð. Búningana gerði frú
Jónina Kristjánsdóttir og voru þeir vel
við hæfi þessa tíma, sem leikurinn gerist
á. — Má um búningana og leiktjöldin
Guðrún og Þorgeir
ritstjóri (Þórdís
Þormóðsdóttir og
Sverrir Jóhannes-
son).
SYNDIR ANNARRA
24 — FAXI