Faxi - 01.05.1973, Síða 7
í ÞRÓTTIR
VINNUR Í.B.K.
l.-deild í ár?
Liðið sýnir miklo framför undir leiðsögn Joe Hooley hins enska.
Hefur unnið unnið tvö mót
Sigurgleði. — Guðni hampar bikarnum
að unnu móti
Meistaraflokkur ÍBK hefur tekið ótrú-
legum stakkaskiptum undir stjórn enska
þjálfarans, Joe Hooley. Liðið er með öllu
óþekkjanlegt frá því á fyrra ári, þót.t
litliar mannaskiptingar hafi átt sér stað.
Frammitsaða liðsins hefur verið með fá-
dæmum góð það sem af er leiktímabils-
ins, s:graði bæði í Meistarakeppni KSÍ
og Litlu bikarkeppnlnni, með yfirburð-
um. Sem dæmi má nefna, að þeir sigruðu
FH með fimm mörkum, sem öll voru
skoruð af einum og sama leikmanninum,
Steinari Jóhannssyni, sem er með ein-
dæmum í okkar knattspyrnusögu. 1 fyrra-
haust töpuðu Keflvíkingar fyrir sama liði
með tveggja marka mun.
Allmiargir töldu það óðs manns æði að
ráða hingað erlendan þjálfar.a og hreina
móðgun við þá stétt hér á landi, en ÍBK-
liðið hefur þegar sannáð, svo ckki verður
um villzt, að tími var kominn til að
hleypa nýju blóði í þennan þátt. knatt-
spyrnunnar. Eins og fram hefur komið
í dagblöðunum, og raunar öðruin fjöl-
miðlum einnig, þá spá flestir þeir sem
spurðir voru, að ÍBK yrði sigurvegari í
1. deildinni 1973. Slík viðurkenning á
getu liðsins yljar fylgjendum þess vafa-
lítið um hjartaræturnar, en leikmenn
\erða að gæta þess að láta niðurstöð-
urnar ekki villa um fyrir sér og ganga of
sigurvissir til leiks. Slíkt hefur orðið
mörgum góðum liðum að fótakefli.
Þegar þet.ta er ritáð hafa Keflvíkingar
spilað einn leik í 1. deildinni — við íA.
Sigruðu þeir með yfirburðum, 4—1 og
sýndu mjög ákveðinn og heilsteyptan
leik. Mörkin gerðu þeir Steinar Jóhanns-
son, tvö, Einar Gunnarsson og Grétar
Magnússon sitt hvort.
Þorbjörn Kjœrbo
sigraði í Dunlop
Suðurnesjamenn létu ekki sitt eftir
^ggj.a í fyrstu opnu golfkeppninni á sumr-
'lu •— Dunlop-keppninni, sem haldin var
‘l golfvellinum í Leirunni um fyrri helgi.
^amla kempan, Þorbjörn Kjærbo, sem
^targir héldu að hefði dregið sannan segl-
111 í golfinu, sigraði í keppninni, án for-
Sjafar, méð 159 hö ggum, en í öðru og
Þriðj.a sæti voru þeir Einar Guðnason og
Hallur Þórmundsson.
í keppni með forgjöf sigraði Heirnir
^karphéðinsson á 143 höggum nettó, en
1 öðru sæti varð Sigurður Hafsteinsson
°g í þriðja sæti Hallur Þórmundsson.
Þorbjörn sést hér taka við sigurlaununum
úr hendi umboðsmanns Dunlop, Arna
Árnasonar
Kver á aS gera við vegarspottann
í Græncsbrekkunni?
Vegarspottinn frá Grænási og niður að
Reykjanesbraut hefur angrað margan öku-
manninn, að undanförnu. Eftir umhleypinga-
saman vetur hafa komið I götuna margar
djúpar holur með hvössum brúnum, til viðbót-
ar þeim sem fyrir voru, svo að vegurinn er
orðinn illakandi þeim hundruðum bifreiða sem
um hann eiga leið á degi hverjum.
Að því að bezt er vitað virðist það vera á
reiki, hvort Njarðvíkurhreppur eða yfirvöld
Keflavíkurflugvallar eigi að sjá um viðhald
þessa spotta, svo að verkinu er ekki sinnt.
Okumönnum finnst tími til kominn, að þsss-
ir aðilar reyni að fá úr því skorið, einhvers stað
ar hlýtur það að vera hægt, hvorum þeirra til-
heyri þessi vegarhluti, og láti siðan lagfæra
hann, enda er þarna um að ræða akbraut inn
í alþjóða flughöfn, þar sem fjöldi útlendinga
fer um, sem ekki sér nema Suðurnesin. Litil
landkynning að því, eða hitt þó heldur.
F A X I — 83